Tíminn - 22.10.1966, Qupperneq 8

Tíminn - 22.10.1966, Qupperneq 8
 LAUGAPÍ>AGUR ?2. október 19«6 ú eawraaaai Fréttir.frá starfsemí S.Þ. Hverjar yrðu afleiðingarnar, ef hætt væri að rækta deyfilyfjagrös? í umræðum um eiturlyfja- málið hefur þeirri hugraynd oft verið hreyft að láta efna- fræðilega samsett lyf koma í stað deyfilyfja sem unnin eru úr jurtum. Með því móti mundi t. d. lögleg ræktun ópíums ekki verða möguleg, og tæki- færi til ólöglegrar ræktunar, sölu og „rýrnunar" í lyfjaiðn- aðinum mundu verða mik'.u færri en nú er. Enda þótt farið sé að fram- leiða í æ ríkara mæli lyf un*i- in úr gerfiefnum, er vandatnál- ið ekki eins einfalt og viröast má við fyrstu sýn, segir í ný- birtri skýrslu sem slcrifstofa Sameintiðu þjóðanna hefur samið og lögð verður fram á fundi eiturlyfjanefndarinnar í desember. Skilyrði er, að deyfilyf unr.- in úr gerfiefnum, jafnvel þó þau séu einnig vanamyndandi, verði jh^ngóð eða betri en hin, þtÆ hefur enn ekki gerzt, segir í skýrslunni, held- ur eru hin nýju lyf þvert á móti ennþá hættulegri að því er snertir vanamyndun. Af þeim 89 eiturlyfjum, sem nú eru undir alþjóðlegu eftir- liti, eru 60 unnin úr gerfiefn- um. Fræðilegir möguleikar á að framleiða fleiri slík lyf eru „svo til ótæmandi." Auðvelt er að hafa eftirlit með slíkum lyfj um, enda koma þau lítið við sögu í ólöglegri eiturlyfjaverzl un. En einungis fá þeirra eru til sölu og notuð til lækninga. ekktust þeirra eru pethidin, methadon, normethadon og de xtromoramid. Eitt sem mælt hefur með lyfjum unnum úr gerfiefnum er hið hagstæða verðlag á brá efnunum. En hér verður líka að taka með í reikninginn kostnaðinn við rannsóknir og framleiðslu, og er mikið vafa- mál hvort framleiðsluverð verð ur mismunandi á hinum ýmsu tegundum. Vandamálið, hvort stíjfna beri að því að hafa eingöngu á boðstólum deyfilyf unnin úr gerfiefnum, er þannig bæði flókið og yfirgripsmikið, og er nauðsynlegt að kanna það gaumgæfilega, segir í skýrsl- unni. Afleiðingarnar fyrir þá sem rækta jurtirnar. Annað veigamikið vandamál í þessu sambandi er, hvaða af- leiðingar það muni hafa fyrir lönd, sem rækta jurtir til deyfi- lyfjagerðar, verði ræktun 'þeirra bönnuð. Að því er varðar ópíum verða Indland og Tyrkland harðast úti, þó önnur lönd eigi hér líka hlut að máli. Eftir því sem lögleg framleiðsla ópí ums hefur verið takmörkuð (úr 1171 tonni árið 1963 niður í 940 tonn árið 1964) hafa þessi lönd dregið úr fram- leiðslu sinni og minnkað rækt- unarsvæðin. Það er ekki sérlega arðvæn- legt að rækta ópíum til lög- legrar sölu. i skýrslunni segir að kíló af ópíum með 12 pró- sent morfín-innihaldi kosti 11 dollara (473 ísl. kr.).; Sú staðreynd að umrædd lönd eru þegar farin að rækta aðrar jurtir á tilteknum svæð- um, og að tiltölulega fámenn- ir hópar fást við ræktunina (77.747 í Indlandi o.g 160.671 í Tyrklandi), bendir til þess, að löndin mundu án verulegra vandkvæða geta lagt niður ópí- um-rækt, ef þau hlytu alþjóð- lega aðstoð. Hins vegar er lögð á það áherzla í skýrslunni, að ópíum-verzlunin sé tiltölulega þýðingamikil fyrir útflutnings- löndin vegna öflunar erlends gjaldeyris. Tæknihjálp, sem koma á í staðinn fyrir ópíum-ræktun, hefur verið veitt Burma, Afga- nistan, íran og verður veitt ákveðnum svæðum i Thaílandi. í íran hefur verið tekin upp ræktun á sykurrófum og baðm- ull, sem veitir fyrrverandi ópí- um-ræktendum viðunandi arð. Kóka-jurtin er álitleg tekju- lind þeim sem rækta hana, og ræktarlandið er um það bil 190.000 hektarar i Perú og Bóliviu. Perú hefur undirrit- að Eiturlyfjasáttmálann frá 1961 og lofað að afnema óhæf- una á 25 árum. Ríkisstjórnin hefur einnig skipað nefnd sem á að finna viðeigandi úrræði fyrir þá sem snúa sér frá kóka- ræktun. Bólivía er líka farin að fá áhuga á málinu. Cannabis (indverski hamp- urinn, sem hasjisj er unnið úr) vex villtur og dreifist auðveld- lega. Svo að segja um heim allan er hann ræktaður ólög- lega, segir í skýrslunni. Hamp- urinn er mest notaður í iðn- aði. í Indlandi og Pakistan er „hartsið“ notað til lækninga. Þetta „harts,“ sem hefur að geýma eiturlyfið, fæst einungis í stóru magni sé kvenjurtin látin vaxa annars staðar e n karljurtin. Það á sér ekki stað þar sem hampur er ræktaður löglega. Líbanon, Marokkó, Suður- Afríku og Brasilíu eru með- al þeirra landa þar sem mest kveður að ólöglegri ræktun jurtarinnar. Marokkó er Líban- on hafa fengið alþjóðlega að stoð til að rækta aðrar jurtir en cannabis. í Líbanon er ver- ið að gera tilraunir með sól- fylgjur. Fæst eining? Þriðja mikilsverða atriðið í þessu sambandi er spurningin, hvaða afstöðu lönd eins og td Sovétríkin, Kína, Norður-Kór- ea og Norður-Víetnam muni taka. Þau framleiða öll ópiurn eða lyf sem. unnin eru úr ópí- um. Árið 1964 voru Sovétrík- in annar mesti ópíumframleið- andi heims með 20 af hundraði heildarframleiðslunnar, en Indland framleiddi 69 af hundr aði og Tyrkland 9 af hundraði alls ópíums í heiminum. í skýrslunni er vísað til til- lögu, sem lögð var fyrir eit- urlyfjanefnd Sameinuðu þjóð anna gíðast þegar hún kom saman og var þess efnis, að framkvæmdasjóri samtakanna sendi fyrirspurn til aðildarríkj- anna um ópíum framleiðslu þeirra. í skýrslunni er geng- ið lengra og lagt til, að fyrir- spurnin taki líka til annarra eiturlyfja og lyfja úr gerviefn- um, jafnframt því sem málin verði enn betur skýrð með fyrirspurn frá Alþjóðaheilbrigð ismálastofnuninni (WHO). Norðmenn hafa lagt fram 10. 000 dollara til Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna umfram þá upphæð sem þeir leggja reglulega fram til starf- seminnar. Fjárhæðin var lögð fram eftir að forstjóri Flótta- mannahjálparinnar hafði farið fram á aðstoð til handa rúm- lega þúsund manns sem flúið hafa frá portúgalska Angóla til Zambíu. 2000 örsnauðar f jölskyldur vinna þrekvirki. Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðh- þjóðanna (FAO) skýrir frá því, að 2000 kóreanskar flóttamannafjöl skyldur, sem eru blásnauðar hafi í kyrrð og ró unnið sann- kallaða hetjudáð. Með allra frumstæðustu verkfærum hefur þeim tekizt að byggja tveggja kílómetra langa stíflu eða flóð- garð fyrir utan þorpið Daeduk á suðurströnd skagans og hafa þannig breytt 770 hektara hafs botni í ræktarland, sem allar fjölskyldurnar geta lifað af. Hve einsætt þrekvirki er hór um að ræða, má sjá af því, að hollenzkir og japanskir verk- fræðingar álitu, að verkið mundi taka 8—10 ár — með nýtízku tækni og tækniþjálfuð- um verkamönnum. Flóttamannafjölskyldurnar 2000 luku því á 4 árum og 7 mánuðum — með eigin hönd- um og heimtatilbúnum verk- færum. Leiðtogar þeirra gera ráð fyrir, að vinnudagarnir hafi samtals verið 1.495.095. Þrisvar sinnum ruddist vatn- ið gegnum flóðgarðinn, og varð þá að byrja aftur frá byrjun. Að þessum framkvæmdum stendur kóreanskur flótta- mannafélagsskapur, sem nú leggur á ráðin um nýja sókn til að endurheimta 7000 hekt- ara í viðbót af hafsbotninum. „Endurheimta“ er einmitt rétta orðið, því hér er um að ræða jarðveg sem skolazt hefur til hafs ofan úr fjöllunum. Jafnskjótt og það fréttist, hvað flóttamennirnir hefðu fyr ir stafni í Daeduk, barst þeim hjálp, bæði matvæli og efni til litlu vinnustofunnar þar sem þeir bjuggu til verkfæri sín. Mannúðarstofnanir í Kór- eu og Nýja Sjálandi lögðu fram hjálp, m.a. fyrir milli- göngu Herferðar gegn hungri. Stjórnarvöldin létu byggja íbúð arhús, gáfu þorpinu skóla og sendu 500 atvinnuleysingja af götunum í Seoul til að hjálpa til. Lokaáfanganum var náð 30. maí í ár, þegar forseti Kóreu kom á vettvang í þyrlu til að vígja hið nýja landsvæði. Lét hann i ljós vonir ríkisstjórn- arinnar um, að fordæmi flótta- mannanna í Daeduk kæmi til leiðar keðjuverkun eftir endi- langri ströndinni, sem leiddi til þess að landinu bættust enn stór flæmi nýrra ræktarlanda Sendinefnd íslands á þingi Samainuðu pjóðanna. Fremri röð frá vinstri Emil Jónsson, utanríkisráðherra. Hannes Klartansson, Benedikt Gröndal og Kristján Albertsson. Aftari röð. Haraldur Kröyer, Friðjón Þórtfarson og Jóhannes Elfasson. Sigurður Jónsson Innstu-Tungu í dag 22. október, fer fram frá Stóra-Laugardalskirkju í Tálkna- firði útför Sigurðar Jónssonar frá Innstu-Tungu í Tálknafirði, og dóttursonar hans, Sigurðar Theó- dórssonar, Réttarholtsvegi 55, vél- virkjanema úr Landssmiðjunni, sem hvarf af dansleik frá félags- heimilinu Birkimel á Barðaströnd 24. júlí sJ. Sigurður Jónsson var fæddur 29. ágúst 1878 að Dynjanda í Arnar- firði, sonur hjónanna Jóns bónda á Dynjanda Bjarnasonar ættaður frá Söndum í Dýrafirði, og konu hans Þorbjörgu Sigurðardóttur frá Hagakoti 1 Ögursveit Guðmunds- sonar sterka á Kleifum í Skötu- firði. Sigurður Jónsson ólst upp í föðurhúsum í stórum systkina hópi. Snemma fór Sigurður til sjós, bæði á opin skip sem þilskip eins og títt var á þeim árum. Árið 1905 gekk Sigurður Jóns- son að eiga eftirlifandi konu sína Sigríði Guðmundsdóttur úr Hokins dal í Arnarfirði. Þau áttu þrju börn: Þorbjörgu gifta Andrési Finnbogasyni skipstjóra í Reykja- vík Karólínu gifta Theódóri Ó.afs- syni vélvirkja í Reykjavík, og Guð- mund, sem þau misstu á fermmg- araldri. Tóku þau þá fósturson, Guðmund S. Guðmundsson, -er.i bætti þeim sonarmissinn og hef- ur æ síðan búið með þeim Sigurður Jónsson bjó á ýmsum stöðum í Arnarfirði fram til ar^- ins 1920, að þau hjón fluttu að Litlu-Eyri í Bíldudal, þar sem þau bjuggu til ársins 1925, er þau fluttu til Tálknafjarðar og bjuggu þar lengst í Innstu-Tungu. En nú fyrir rúmu ári var heilsu hans Framhald á bls. 12

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.