Vísir - 06.10.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 06.10.1975, Blaðsíða 3
Vísir. Mánudagur 6. október 1975 3 SAS setur upp stöðvardeild hér á landi SAS flugfélagið mun setja upp sú þjónustustarfsemi sem slikt sérstaka stöðvardeild á íslandi hefur i för með sér. vegna þess að það hefur flug Þá verðuf sú breyting á að ts- hingað með eigin vélum á næsta land verður sérstakt markaðs- ári. Yfirmaður deildarinnar svæði en hefur hingað til tilheyrt veröur Skandinavi og verður því sem SAS kallar „Distrikt hann jafnframt æösti yfirmaður Nord” ásamt Færeyjum og SAS á islandi. Grænlandi. Hingað til hefur SAS rekið hér Birgir Þórhallsson, sem verið ski-ifstofu, en þjónusta verið hefur sölustjóri SAS hér á landi keypt, af islensku flugfélögunum. frá upphafi starfseminnar, gegnir Með tilkomu eigin flugrekstrar þvi starfi áfram. verður hins vegar tekin upp hér .ÓT. Hespulopi vinsœlostur Veruieg aukning hefurorðiö á útflulningi utlarvöru frá Ala- fossi hf. á þessu ári. Búiðer að flytja út 50 þúsund tilbúnar flikur og búið að panta svo mikið til afgreiðslu á næstu mánuðum, að afgreiðslugeta fyrirtækisins er fullnýtt á þessu sviði. Veruleg aukning hefur og orð- ið á handprjóngarni. A Hespu- lopi stærstan þátt i þvi að venju. Á árinu hafa lika verið kynntar .nýjar tegundir af ullarbandi. Alafoss hefur um nokkurra ára skeið séð um útflutning á framleiðslu ýmissa fyrirtækja, sem eru viðsvegar um landið. Hefur þessi tilhögun komið sér vel fyrir báða aðila, skapað aukna fjölbreytni i atvinnulifi þeirra staða þar sem fyrirtækin starfa. Ennfremur hefur hún skapað nýja möguleika fyrir band og vefnaðarframleiðslu Alafoss hf. A þessu ári hafa markaðs- rannsóknir Alafoss beinst að þvi að koma áklæðum og værðar- voðum, sem ofnar hafa verið á vegum fyrirtækisins, á markað. Verða þessar rannsóknir efldar á næstu mánuðum enda bendir margt til þess að um verulegan útflutning geti orðið að ræða. —EKG Pyrstur meö fréttimar VÍSIR HÚn il 11 hjá'P3' sv° sern.. „rænm hakka uartö«uSk p.TS.^ö,n sté'skál er MlKomnasta e’ véfin idhúséraen uwSh Renvvo°d LfeVTiB n-rrss •• « «*t»- „,fs.52^ Lao9ave9 Eftir Óla Tynes Ummæli Ólafs Jó- hannessonar dóms- málaráðherra um flug- vélakaup Landhelgis- gæslunnar i ræðu sem hann flutti á fundi Framsóknarféla gs Reykjavikur á mið- vikudag verða að telj- ast undarlegasta fram- lagið til þessa máls hingað til. Það er greinilegt að ráðherr- ann hefur enn minna vit á málinu en ,,sér- fræðinganefndin” sem hann afskrifar mjög svo fyrirhafnarlitið. „Mér að mæta” Ráðherrann fjallar um vernd- un 200 milna landhelgi og segir meðal annars: „Landhelgisgæslan er þess vanbúin að taka á sig þetta verkefni, en hún hefur þó betri skipakost en áður. Menn hafa verið að lýsa furðu sinni yfir þvi að landhelgisgæslan skuli fá sambærilega flugvél við þá sem hún hefur haft. Menn hafa gert svo litið úr sér að fara með spé um þetta efni. Vita menn ekki að þessar vélar þurfa að vera á lofti klukkutim- úm saman? Fyrir starfsmenn landhelgisgæslunnar er ekkert of gott. 1 þessum efnum er mér að mæta. Það er mikil fölsun hjá blaðamönnum, jafnvel i Rikis- útvarpinu sjálfu að vitna i skýrslusem þeir segja vera sér- fræðingaskýrslu. Hvaða sér- fræðingar voru i þessari nefnd? Þar var maður frá hagsýslu- stofnun sem mér vitanlega hef- ur aldrei komið nálægt flugi, þar var fulltrúi minn i dóms- málaráðuneytinu, ágætur mað- ur sem aldrei hefur komið ná- lægt flugi, og það var flugum- sjónarmaður frá Reykjavikur- flugvelli og Forstjóri Land- helgisgæslunnar. Hvorugur þeirra er flug- maður.” í mikilli hættu? Og dómsmálaráðherra heldur áfram sinum furðulega mál- flutningi: „Enginn þessara manna þarf klukkutimum saman að vera á flugi i misjöfnu veðri. Þetta er það sem kallað er sérfræðinga- skýrsla um flugvélamál Land helgisgæslunnar og blaðamenn vitna i. Við eigum ekki að telja það eftir sem gert er fyrir Land- helgisgæsluna. Það getur verið að þessir menn eigi eftir að lenda i mikilli hættu, og það verður ekki skemmtilegt fyrir þá sem hafa haft uppi leiðinda- áróður i garð Landhelgisgæsl- Myndir : Bragi unnar og starfsmanna hennar, ef eitthvað kemur fyrir.” Þann- ig fórust ráðherra orð um flug- vélakaupin. (Millifyrirsagnir eru minar). Klaufaleg lágkúra Mér er til efs að á þessari öld hafi nokkur stjórnmálamaður beitt lágkúrulegri aðferð við að réttlæta gerðir sinar, hvað þá að hann hafi farið jafnklaufa- lega að þvi. Það var t.d. sjálft dómsmála- ráðuneyti ólafs Jóhannessonar, sem ásamt fjármálaráðuneyt- inu skipaði nefndina, sem hann nú segir dckert vit hafa á þessu máli. t öðru lagi segir hann, að einn nefndarmannanna hafi verið einhver flugumsjónarmaður frá Reykja vikurflugvelli. Þessi maður er Leifur Magnússon. Hann er varaflugmálastjóri, hefur verið yfirmaður flug- öryggisþjónustunnar i meira en áratug og er sjálfur flugmaður. Ólafur Jóhannesson sakar blaðamenn (jafnvel i Rikisút- varpinu?) um falsanir, vegna þess að þeir vitna til skýrslu nefndarinnar sem hann skipaði sem skýrslu sérfræðinga. Ja, þú verður að fyrirgefa, ráðherra, okkur datt satt að segja ekki i hug að þú skipaðir i' nefndina menn sem þú vissir að hefðu ekkert vit á þvi sem þeir voru að fjalla um. í felur bakvið gæslumenn Aumasti hlutinn af málflutn- ingi ráðherrans er þó eftir: Blaðamönnum og öðrum gagn- rýnendum á sko eftir að hefnast fyrir gagnrýnina, ef eitthvað kemur fyrir. Þarna er farið niðurfyrir allar gangstéttarhellur. Hvorki blaðamenn né aðrir hafa gagnrýnt þá menn, sem eitthvað gæti komið fyrir. Þeir starfsmenn gæslunnar sem starfa fyrir hana i lofti eða á legi hafa sýnt það oftar en einu sinni að þeir eru starfi sinu fyllilega vaxnir og spara ekkert þegar að þvi kemur að verja landhelgina. Ekki spara fé Enginn hefur mótmælt þvi að svo miklu fé verði verið til Landhelgisgæslunnar að það nægi til að tryggja að hún hafi góöum og öruggum flugvélum á að skipa. Menn eru einfaldlega ekki á einu máli um hvaða teg- und flugvélar eigi að kaupa. ts- land er ennþá lýðræðisriki. Menn hafa til þess fullan rétt að vera ósammála um hvað sem er oghaldasinum skoðunum fram. Tilfinningamál Ólafur Jóhannesson færir engin rök fyrir sinu máli. Hann óvirðir menn sem hann hefur sjálfur átt aðild að að skipa i starf. Hann reynir að fela sig á bak við þá starfsmenn Land- helgisgæslunnar sem gegna störfum sem áhætta getur falist i. Enginn hefur „haldið uppi leiðindaáróðri i garð starfs- manna landhelgisgæslunnar”. Það er æðsta stjórn Landhelgis- gæslunnar sem hefur verið gagnrýnd. Hún situr bakvið skrifborð og eina hættan sem henni er búin virðist sú að menn séu henni ekki sammála. Brostnar forsendur? Ýmsir starfsmenn Land- helgisgæslunnar sem ég hef tal- að við, þar á meðal reyndir og virtir skipherrar, hafa verið hlynntir þvi að kaupa Fokker Friendship vél á þeirri forsendu að hún geti borið meiri tækja- búnað en minni vél. Þeir hafa sérstaklega nefnt 360 gráðu rad- ar, neðan á skrokknum. Nú hefur þvi verið lýst yfir að hann sé meðal ýmissa tækja sem ekki sé talin ástæða til að kaupa. Eru þá ekki forsendurn- ar að bresta? Fokker vél ber óneitanlega meira en Beech- craft C-90, sem „sérsfræðinga- nefndin” mælti með. En ef ekki er keypt i hana sem svarar auknu burðarþoli, skiptir það litlu. Öryggishliðin Ég efast ekki um að Ólafi Jó- hannessyni sé einlæglega annt um öryggi starfsmanna land- helgisgæslunnar. En ef grund- valla á Friendship-kaupin á þvi, er enn komið að fölskum for- sendum. Beechcraft King Air er ekki ab neinu leyti ótryggari vél. Ef gera á dæmið upp til fulls kysu flugmenn jafnvel frekar að nauðlenda Beechcraft vélinni á sjó, þar sem hún er með væng- ina neðan á skrokknum. Það mun i þessu tilfelli eins og jafnan þegar menn deila, að báðir hafa nokkuð til sins máls. Virtasti skipherra Landhelgis- gæslunnar sagði við mig að sér þætti verst að ekki hefði verið keypt fjögurra hreyfla Orion skrúfuþota. Ég er honum alveg sammála um að það hefði verið mjög æskilegt. Ég hefði svo sannarlega getað unnt fluglið- um gæslunnar að hafa þá vél. En eitt er að vilja og annað að geta. Fyrir jafn staurblanka þjóð og við Islendingar erum þýðir ekki alltaf að fara eftir óskum, hversu réttlætanlegar þær kunna að vera. Menn verða að sniða sér stakk eftir vexti. Þvi þýðir ekki fyrir dómsmálaráð- herra að stilla starfsmönnum Landhelgisgæslunnar upp á skrifborbið sitt og segja að það sé verið að ógna öryggi þeirra með þvi að gagnrýna stjórn- velskar ákvarðanir. — ÓT.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.