Vísir - 06.10.1975, Blaðsíða 14

Vísir - 06.10.1975, Blaðsíða 14
14 Visir. Mánudagur 6. október 1975 Enska knattspyrnan: Tap hjá QPR og West Ham — og Manchester United náði aðeins jafntefli, svo enn stendur allt í járnum í 1. deildinni í Englandi Manchester United inissti af tækifærinu til að taka örugga forustu i 1. deildinni ensku á laugardaginn, þegar liðið náði ekki nema jafntefli á heimavelli gegn Leicester City — eina lið- inu i 1. deild, sem enn hefur ekki unniö leik. Hvorugu tókst aö skora mark, en aðeins eitt hefði nægt United til að taka forustuna, þvi bæði West Ham og Queen Park Rangers töpuðu sinum leikjum. Manchester United átti skilið að sigra i leiknum, en framlinu- mönnum mistókst allt þegar að marki Leichester kom. Sjálfsmark bakvarðarins, John McDowell, hjá West Ham var eina markið sem skorað var i viðureign liðsins við Everton i Lundúnum. Hann bætti aðeins við lausan skallabolta, sem stefndi að marki hans, en það var nóg til að markvörðurinn missti af boltanum. Queen Park Rangers hélt jöfnu á móti Leeds út fyrri hálf- leikinn og nokkuð fram i þann siðari. Þá skoraði Stan Bowles úr vitaspyrnu fyrir QPR, og allt utlit var fyrir að það ætlaði að nægja. En þá tók Peter Lorimer til sinna ráða — skoraði tvö mörk með stuttu millibili — og þar með varð draumur Lundúnarliðsins um sigur að engu orðinn. En við skulum nú lita á úrslit leikja i 1. deildinni: Arsenal-Manchester City 2:3 Birmingham-Sheffield Utd. 2:0 Coventry-Burnley 1:2 Derby-Ipswich 1:0 Leeds-QPR 2:1 Liverpool-Wolverhampton 2:0 Manchester Utd.-Leichester 0:0 Middlesb.-Aston Villa 0:0 Newcastle-Tottenham 2:2 Norwich-Stoke 0:1 West Ham-Everton 0:1 Sigur Leeds yfir QPR kom liðinu upp i 4. sæti — aðeins einu stigi á eftir 3 fyrstu liðunum — Manchester United, West Ham og QPR. Leeds hefur einn leik til góða — gegn Derby — sem sigraði Ipswich 1:0 á laugardaginn. Eina mark leiksins skoraði Francis Lee, sem hefur heldur betur verið á skotskónum i siðustu leikjum — skoraði m.a. þrjú af mörkum Derby i leiknum við Slovan Bratislava i Evrópukeppninni á miövikudaginn. Tottenham var tveim mörk- um undir i leiknum við Newcastle, en náði að vinna áöur en yfir lauk. Arsenal tókst það aftur á móti ekki i leiknum við Manchester City— en var ekki langt frá þvi. City komst i 3:0 en Arsenal skoraði tvo siðustu mörk leiksins. Sheffield United situr enn á botninum i 1. deild — tapaði um helgina fyrir Birmingham 2:0. í þeim leik var Len Badger rekinn af velli eftir að hann hafði lent i útistöðum við einn af leikmönnum Birmingham — og skilið hann blóðugan eftir á vellinum. t 2. deild hefur Sunderland forustu — eitt litið stig — eftir marklaust jafntefli I Ports- mouth. Notts County náði held- ur ekki nema jafntefli á laugar- daginn og er i öðru sæti ásamt Fulham, sem sigraði Blackburn Rovers á útivelli 1:0. Úrslit I 2. deild: Blackburn-Fulham 0:0 Blackpool-Luton 3:2 Bolton-Charlton 5:0 BristolRovers-Nottingham 4:2 Chelsea-York City 0:0 Hull-Southampton 0:0 Notts. County-Bristol City 1:1 Oxford-Orient 2:1 Plymouth-Carlisle 2:1 Portsmouth-Sunderland 0:0 West Brom-Oldham 0:0 1 3. deildinni náði efsta liðið Crystal Palace aðeins jafntefli á útivelli gegn Port Vale 0:0 —og sama gerði Bury, sem var einu stigi á eftir fyrir leikina á laugardaginn, gegn Colchester. I 4. deild tapaði Reading 2:0 fyrir Scunthorpe og missti þar með af efsta sætinu — þrjú lið fóru upp fyrir Reading — Tranmere, Lincoln og Northampton, sem öll sigruðu i sinum leikjum á laugardaginn. Brian Kidd, Arsenal, til vinstri og Joe Corrigan markvöröur Manchester City eru báðir ákveðnir á svipinn þegar þeir horfa á eftir boltanum viö mark Manchester i leik liöanna á leikvelli Arsenal, High- bury, á laugardaginn. Manchester City sigraöi ileiknum 3:2 Jóhannes með Celtic á Hampden Park í kvðld! r — Atti stjörnuleik þegar Celtic sigraði Hearts 3:1 á laugar- daginn og er enn einu sinni valinn í lið vikunnar í Skotlandi Jóhannes Eðvaldsson fær hverja lofgreinina á fætur annarri f skosku biöðunum eftir 3:1 sigur Celtic yfir Hearts I skosku „yfirdeildinni” á laugardaginn. Er honum þar hrósað f hástert og talinn besti maður liðsins og á vellinum I mörgum blöðum. t fimmta skipti i röð er hann valinn I lið vikunnar, og segir það ekki svo litið um ágæti hans, enda eru ekki neinir smákarlar sem þar koma til greina eins og gefur að skilja i' landi þar sem knattspyrnanér eins i hávegum höfð og i Skotlandi. Eftir allar umferðirnar nema eina i deildarkeppninni, hefur hann verið valinn i lið vikunnar, og eru það ekki nema afburða- menn, sem ná þvi. Hann skoraði ekkert af mörkunum þrem i leiknum, en átti þátt i öðru markinu, sem Deans skoraði. Harry Hood skoraði fyrsta markið en Wilson það þriðja. 1 kvöld leikur Jóhannes með Celtic á móti Patriek Tristle á Hamden Park i Glasgow i undanúrslitum deildar- bikarsins. Mun hann leika á miðjunni eins og i siðustu leikj- um, en þar hefur hann komið mjög vel út. Ef Celtic sigrar i þeim leik, er liðið komið i úrslit i deildarbikarnum og mætir þar annað hvort Rangers eða Montrose, sem leika annað kvöld. Rangers heldur enn forustu i deildinni — sigraði Aberdeen á heimavelli með minnsta mun, eða 1:0. ÍJundee United gerði það gott á laugardaginn — sigraði Ayr United 3:2 og er i fjórða sæti i deildinni — en Motherwell tapaði nú sinum fyrsta leik — hafði áður gert 5 jafntefli. Annars urðu úrslitin i ,,yfir- deildinni” þessi á laugar- daginn: Celtic-Hearts 3:1 Dundee United-Ayr Utd. 3:2 Hibemian-Dundee 1:1 Rangers-Aberdeen 1:0 St. Johnstone-Motherwell 2:1 Staðan að loknum sex um- ferðum er þessi: Rangers 6 4 2 0 8:2 10 Celtic 6 4 1 1 13:6 9 Hibernian 6321 8:5 8 DundeeUtd. 6 3 1 2 9:7 7 Motherwell 6 0 5 1 7:8 5 Ayer Utd. 6 3 1 3 7:9 5 Aberdeen 6 1 2 3 10:12 4 Hearts 6 1 2 3 7:11 4 Dundee 6 1 2 3 7:12 4 St.Johnstone 6 2 0 4 6:10 4 Jóhannes Eövaidsson á hvern stórleikinn á fætur öörum I Celtic- búningnum. Ted McDougall með fjögur mörk í forskot Ted McDougall, Norwich er enn langmarkahæstur i ensku knattspyrnunni — með 15 mörk að loknum II leikjum. Röð efstu manna er annars þessi: I. deiid: Ted McDougall, Norwich 15 Peter Noble, Burnley 11 Dennis Tueart, Man. City 9 Malcolm McDonald, 8 Newcastlc 8 Peter Lorimer, Lceds 8 Alan Cowling, Newcastle 7 JoeRoyie, Man. City 7 2. deild: Mick Walsh, Blackpool 7 Mick Chaimon, Southampt. 6 Pauæ Cheesley, BristolCitv 6 George Jones.Oldham 6 3. deild: David Kemp, Crystal Palace Ray Treacy Preston Fred Binney, Brighton Peter Silvester, Southend Mick Cullerton, Port Vale 4. dcild: John Ward, Lincoln Ronnie Moore, Tranmere Fren O'Gallaghan, Doncaster

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.