Vísir - 06.10.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 06.10.1975, Blaðsíða 6
6 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Frainkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjórifrétta: Arni Gunnarsson Fréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson x^Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innaniands. i lausasölu 40 kr. eintakið. Biaöaprent nf. Andróðri erlendra þarf að svara Reglugerðin um 200 sjómilna fiskveiðilögsögu tekur gildi innan nokkurra daga. Þess er ekki að vænta að til árekstra komi innan nýju fiskveiðitak- markanna fyrr en eftir 13. nóvember þegar gild- andi samningar falla niður. Á þessu stigi er ógern- ingur að segja fyrir um hvað gerist er samnings- timabilið endar tæpum mánuði eftir útfærsluna. Engar likur eru á að nýtt bráðabirgðasamkomu- lag verði gert fyrir þennan tima. Framferði Vest- ur-Þjóðverja og einstrengingsháttur bresku stjórn arinnar hafa mjög dregið úr samkomulagsmögu- leikum. En það var tvimælalaust rétt stefna af hálfu Islendinga að vera reiðubúnir til viðræðna, en setja jafnframt ströng skilyrði fyrir hugsanlegum skammtima samningum. Þessi lokaáfangi i þriggja áratuga baráttu fyrir fullum yfirráðum yfir fiskimiðum landgrunnsins er stærsta skrefið sem stigið hefur verið til þessa. Við höfum aldrei fyrr staðið jafn vel að vigi við útfærslu fiskveiðilögsögunnar og nú. Framvinda hafréttar- reglna hefur verið svo ör allra siðustu ár að staða okkar er mjög sterk á alþjóðavettvangi að þvi er varðar lagalegan grundvöll. Við verðum þrátt fyrir þessa aðstöðu að gera okk- ur grein fyrir þvi að áform okkar mæta harðri and- spyrnu hjá þeim þjóðum sem hér hafa haft fisk- veiðihagsmuna að gæta. Bresk og vesturþýsk stjórnvöld munu ekki láta þegjandi undan siga. Af þeim sökum skiptir miklu að við kynnum áform okkar og lagalegan rétt á erlendum vettvangi. I þeim efnum er ekki nóg að einblina á ráðstefnusal- ina. Við verðum einnig að láta rödd okkar heyrast utan þeirra. I Lundúnabréfi i Visi fyrir helgi var með skýrum rökum bent á að bresk blöð móta nú almenningsá- litið i Bretlandi og afstöðu stjórnvalda til land- helgisútfærslunnar. Skrif bresku blaðanna um þetta málefni hafa verið okkur mjög andsnúin og byggð á rangfærslum. Engin andsvör hafa komið fram þar sem okkar málstaður hefur verið skýrður. í þessu sambandi er þvi haldið að breskum al- menningi að íslendingar hafi gert öðrum þjóðum erfitt um vik að ná samkomulagi um verndun fiski- stofna. Þvi er ennfremur dróttað að Islendingum að þeir séu að stuðla að atvinnuleysi i Evrópu með að- gerðum sinum. Jafnvel virtustu blöð i Bretlandi hafa gerst sek um alvarlegar rangfærslur og vill- andi upplýsingar. Mikils er um vert að við snúum vörn i sókn á þess- um vigstöðvum og aukum til mikilla muna kynn- ingarstarf okkar erlendis. Við höfum gert allt of lit- ið af þvi að senda upplýsingar og fréttir héðan um ákvarðanir okkar og þær forsendur sem þær eru reistar á. Á þessu þarf að gera bragarbót. Það má gera á margvislegan hátt. Þvi er ekki að neita að stjórnvöldum ýmissa rikja var gerð rækileg grein fyrir aðstæðum okkar með viðræðum þeim sem for- sætisráðherra og utanrikisráðherra áttu fyrr á þessu ári við þjóðarleiðtoga. Þrátt fyrir þessar viðræður virðist vera full þörf á að auka kynningarstarf erlendis og tryggja að and- svör komi fram við þeim áróðri sem beint er gegn okkur i þessu máli. Hér er um mikilsvert atriði að ræða sem við megum ekki leiða hjá okkur með öllu. Visir. Mánudagur 6. október 1975 Sigvaldi Hjólmarsson skrifar: RANNSÓKN Á FORSPÁR- HÆFILEIKUM Merkur árangur. Fé vantar til dulsálar- frœðilegra rannsókna, einkum viðvíkj- andi meintum sýnum á framliðnum — VIÐ GERÐUM i vetur all-um- fangsmikla tilraun á forspárhæfi- leikum meðal skólanemenda, segir dr. Erlendur Haraldsson, lektor i tilraunasálarfræði við Háskóla íslands. Tilraunin var fólgin i þvi að þátttakendur, alls að tölu 450, voru látnir geta uppá bókstöfum. Giskanirnar voru alls 45 þúsund eða um 100 á hvern. Og i ljós kom að hæfileiki manna til að sjá fyrir ókomin atvik stóð i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.