Vísir - 25.10.1975, Page 5
VÍSIR. Laugardagur 25. október 1975.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: G.P.
Kvema-
banki
Fyrsti kvennabankinn, ein-
göngu ætlaður fyrir viðskipti
kvenna, var opnaður á dögunum
i New York, og var þessi mynd
hér við hliðina tekin við það
tækifæri.
Bankavarðmaöur (kona) sést
hengja upp skilti, sem ber svip
dollaraseðils, en mynd af Mona
Lisuhefurveriðsett inn fyrirhina
venjulegu mynd af George
VVashington.
Ógnaröldin í Beirót
Daglega fer nýjum sögum af átökum í Líbanon, þar sem f jórar fylkingar öfga-
hópa eigast við með launmorðum, mannránum og áhlaupum, þar sem beitt er
stórskotaliði. — Þetta eru hægri öfgamenn falangista, vinstri öfgamenn og sam-
herjar Palestínuaraba, kristnir menn og múhameðstrúar.
Á myndinni hér við hliðina, sem tekin var í Beirút á dögunum, sjást grímuklædd-
ir hryðjuverkamenn falangista.
Nóbels-
hafar
Þessa vikuna hafa verið að
berast fréttir af veitingu
Nóbelsverðlaunanna í hinum
ýmsu visindagreinum og birtum
við hér þrjár myndir af visinda-
mönnum sem þótt hafa skarað
framúr á sinu sviði.
Hér fyrir ofan eru dönsku
prófessorarnir, Aage Bohr og
Ben Mottelsen, sem fengu verð-
launin i eðlisfræði asamt þriðja
prófessornum, James Rain-
water i Bandarikjunum.
Hér við hliðina sést Renato
Dulbecco i rannsóknarst. sinni
i Krabbameinsstofnuninnni i
London, en þessi italsk-ættaði
bandarikjamaður fékk verðlaun
i læknisfræði ásamt tveim
öðrum bandariskum visinda-
mönnum, Pavid Baltimore og
Kven-
þjóð-
in
Howard Temin vegna uppgötv-
ana þeirra um áhrif æxlisvirusa
á frumur.
Hér á myndinni til vinstri sést
Prelog VVIádimir i Sviss, sem
fékk Nóbelsverðlaunin i efna-
fræði þctta árið.
Þessir fulltrúar kvenþjóðarinnar hér á myndunum fyrir ofan
og neöan skarta hvcr á sinn máta sinu fegursta. — Það er sama,
hversu mikið i ræðu og riti reynt er að færa konurnar i spor karl-
mannanna, alltaf verða einhverjar til að slá á ákvcðna strengi
undirstrika sérkenni kynjanna (guði sé lof!)
Ilér á myndinni fyrir neðan sýna tískudrósir vortiskuna, eins
og frömuðurnir i Paris hugsa sér hana, en i tuskubransanum
hafa menn þetta langan fyrirvara á þvi að kynna tiskuna, svo að
mönnum gefist timi til að vinna efnin i réttum tiskulitum og
glöggva sig á hve mikið þurfi að framleiða. — Ilolly Meryl hér að
ofan er ekki að sýna neina tisku aðra cn þessa sigildu.