Vísir


Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 2

Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 2
2 VÍSIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975 Thntm Hvað finnst þér um Al- þingi og störf þess? Siguröur H. Guðjónsson, lag- nemi: Ég veit ekki hvað segja skal. Afgreiðslustofnun aðallega. Ekkert nema formsatriðin. Kristinn Guðjónsson, ketilgæslu- maður: Agæt samkoma. Besta bii sem hægt er að komast á. Sigrlöur Sigurðardóttir nemi: Uþingismennirnir mættu mæta >etur,hugsa meira ogláta ekki þá >em fátækastir eru bera þyngstu Dyrðarnar, sbr. námsmenn. Trausti Hermannsson, skrifstofu- maður frá ísafirði: Stórt leikhús. Þeir á Alþingi eru að gera i buxurnar i' dag. Skjöldur Þorgrimsson, starfs- maður Fram leiðslueftirlits sjávarafurða: Allt ágætt. Ég vil bara að þessi stjórn fari frá sem fyrst og Alþýöuflokkurinn taki við. Matthias Garðarsson, heilbrigðisfulltrúi: Mér finnst stjórnmálamennirnir vera of hræddir um atkvæðin. Námsmenn um stjórnvöld: Kalla yfir sig harðar varnaraðgerðir „Framkoma stjórn- valda kallar yfir þau harðar varnaraðgerðir af hálfu námsmanna". Þetta segir i frétt frá kjarabaráttunefnd náms- manna. Þá segir enn- fremur, að nefndin mum' enn um sinn reyna að vinna að því eftir frið- samlegum leiðum, að Al- þingi komi málum í við- unandi horf. Skorað er á þingflokkana að lýsa þvi yfir, að svo verði gert. tslenskir námsmenn höfða jafn- Flautusónötur Bachs fluttar í vetur Fyrstu tónleikar 16. nóvember Kammermúsikklúbburinn er nú að hefja tónleikahald sitt á nýju starfsári. Fyrstu tónleikarn- ir verða hinn 16. nóv. n.k. Verða þá fluttar tvær af flautusónötum Jóhanns Sebastians Bachs og auk þess partita fyrir einleiksflautu. Flytjendur verða Manuela Wisler (flauta), Helga Ingólfsdóttir (sembal) og Pétur Þorvaldsson (selló). Flautusónötur Bachs eru taldar meðal merkustu tónverka, sem samin hafa verið fyrjr flautu. framt til láglaunafólks i land- inu, að það láti þetta mál til sin taka, enda sé skerðing náms- lána i raun enn einn þátturinn i kjaraskerðingu alþýðustétt- anna. Kjarabaráttunefndin segir, að fjárlagafrumvarpið og það hik, sem ráðamenn hafi sýnt við að lýsa yfir vilja sinum til að breyta þvi, sé i raun ekkert ann- að en striðsyfirlýsing þeirra gagnvart námsmönnum. Námsmenn segjast hafa hald- ið fundi með ráðherrum fjár- mála og menntamála en frá þeim hafi engin skýr svör feng- ist. Þeir segja, að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eigi að skerða kjör námsmanna um fast að helming, og hafi þau þó verið bág fyrir. — AG — Nokkur óvissa rikir um það hversu margar Bach samdi. Þær hafa oft verið taldar sex. Kammermúsikklúbburinn beitir sér nú fyrir þvi að þær verði allar fluttar hér, likt og hann hefur gert um Brandenborgar-konsert og sellósvitur Bachs. Er ráðgert að þær fjórar flautusónötur sem eftir eru verði fluttar siðar á vetrinum. Eftir nýár er ennfremur gert ráð fyrir tónleikum sem helgaðir verða kammertónlist eftir Brahms. Hvernig nýtum við auðlindir okkar til fóður- og fœðuöflunar? Hvernig eru islenskar auð- lindir nýttar til fóður- og fæðu- öflunar? Um þetta verður fjall að á ráðstefnu i Reykjavik 28. þessa mánaðar. Þar verður reynt að fá yfirlit um það hvernig auðlindir lands og sjávar nýtast nú og hvaða möguleikar eru til bætts skipu- lags og breyttrar tækni, er tryggt geti eðlilegan viðgang at- vinnulifsins, samhliða verndun og hóflegri nýtingu þeirra land- kosta, sem byggt er á. Landvernd gengst fyrir þess- ari ráðstefnu i samvinnu við Verkfræðingafélag Islands og Félag islenskra búfræðikandi- data. — Talið er timabært að leiða þessa hópa saman með til- liti til þeirra upplýsinga, sem nú liggja fyrir um takmörk núver- andi auðlinda landsins. — AG Lesendur! Það er mjög jákvætt að fá bréf frá lesendum um það sem þeim liggur á hjarta, eða flýgur i hug af einhverju tilefni, jafnvel alveg tilefnislaust. Skrifið sem mest, en vinsam- legast ihugið eftirfarandi tilmæli: Látið fylgja nafn, heimilis- fang, og helstsi'manúmer svo að hægt sé að hafa samband við ykkur ef þurfa þykir. Þetta á lika við um þá sem ekki vilja láta nafns sins getið. Æskilegast er auðvitað að bréf birtist undir nafni skrifanda, en slikt getur þó verið samkomulagsatriði. Löng bréf geta verið góð, en stutt bréf eru þó yfirleitt betri. Skrifið þvi ekki lengra mál en tilefni gefst til. Reynt er að leita svara við fyrirspurnum eða vangaveltum lesenda, en slikterþó ekki alltaf hægt. Jákvæð og skemmtileg skrif eru ekki siður vel þegin en kvartanir og aðfinnslur. Veit ekki einhver eitthvað skoplegt? Utanáskrift okkar er: VISIR (c/o „Lesendur hafa orðið” — Siðumúla 14, Reykjavlk. Nú, og þeir pennalötu geta notað simann. Hringið i sima 86611 á milli kl. 13 og 15. Ti/ skattayfirvalda: Opið bréf Ingimundur Jörundsson skrifar: Opið bréf með opnum kjafti ætla ég nú að skrifa þér. 1 skyndi veifa skáldarafti, skömmunum svo helli úr mér. Opna verð ég á mér kjaftinn ofsköttun þvi pinir mig. I mér reiðin eykur kraftinn enda komin hátt á stig. með opnum kjafti! Hver á mér svo grátt að gjalda að grimmd sem þessi hitti mig? Hægristjórn ég hélt til valda. Er hún að þakka fyrir sig? Meira en helftin hýru minnar heimt er nú i rikissjóð. Til andskotans og ömmu sinnar ofan i neðstu vitisglóð. Þangað hafa Islands aurar, árum saman runnið greitt. Gráðugir þvi mammonsmaurar, munu valda yfirleitt. Hvenær enda sú mun saga sést ei næsta dægurhring. En máski innan margra daga, meðan situr næsta þing. En ef þeir lækka ekki skattinn á sem létu seðil minn. Þeim mun seinna skemmta skrattinn, með skörunginn við eldinn sinn. LESENDUR HAFA ORÐIÐ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.