Vísir


Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 14

Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 14
14 VtSIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975 . ; ' Það verður stœrro en venjuleg vœrðarvoð... Tjald þýsku ólympiufaranna i Montreal á næsta ári verður gert úr sams konar efni og stúlkan á myndinni sveipar um sig. í allt tjaldið mun þurfa um 20.000 ferm. og er það framleitt i Krefeld am Nederrhein, þar sein stærstu dúkaverksmiðjur Þýskalands eru. Efni það er hér um ræðir er bæði gert úr hráefn- um náttúrunnar og gerviefnum. Þegar allt efnið er fullgert, þarf að gefa þvi áferð, sem þolir öll veður. Síðan verður það flutt til Kanada. LAWFORD MEÐ NÝJA ÁST... Leikarinn Peter Lawford, sem fyrir nokkru skildi við eiginkonu sina, Mary Rowan, hefur nú fundið ástina að nýju — og í þetta sinn er hún 26 ára gamall einkaritari, Maxine Yates. Lawford, sem er fimmtugur að aldri, segir að þau Mary hafi aldrei passað saman og ást sin á Maxine sé takmarkalaus, þrátt fyrir að 25 ára aðskilji þau. Aðsögn kunningja Lawford’s, erhannallurannarmaður sfðan hann hitti ungfrú Yates. „Hann hefur allur lifnað við á ný” sagði hárgreiðslumaður hans, Jim Markham. Þau Lawford, og Maxine hitt- ust i veislu, sem kunningjar hans héldu, og segist Maxine hafa kennt i brjóstium hann vegna einmanaleika hans, frá þvi kona hans hafði yfirgefið hann. Þau héldu áfram að hitt- ast. „Ég varð hugfangin af sögunum hans. Það er alveg ótrúlegt, hvað hann þekkir margt frægt fólk, nú og svo var hann giftur systur forsetans, Pat Kennedy.” Breitner leikur í kvikmynd.... A þessari mynd sjást leikarinn Hardy Krúger (t.v.) og þýski knattspyrnumaðurinn Peter Breitner saman i kvik- mynd, sem leikstjórinn Peter Schamoni er nú að gera á Spáni. Breitner sem er 24 ára gamail leikur nú með spænska liðinu Real Madrid, en i fyrra varð hann heimsmeistari sem meðiimur þýska landsliðsins. Breitner leggur stund á félags- fræði og ætlar ekki að halda áfram i kvikmyndum, þótt hann hefði samþykkt að leika i þess- ari, sem nefnist „Kartöflu- Fritz”. Enda fer mest ailur timi hans i æfingar hjá liði sinu. Breitner hyggst þó leika með löndum sinum á næsta ári gegn Grikkjum og Búlgörum. Sýningar- stúlkur frá Senegal Fleiri en þúsund fyrirtæki og samtök frá 55 Afriku-Asiu- og Suður- Amerikurikjum tóku þátt i þrettándu innflutningssýningunni sem vanþró- uðu rikin halda á hverju ári. Að sögn þeirra, er skipulögðu sýninguna, sem var haldin i Vestur-Berlin, var' sýningin mun fjölbreyttari en siðast, og höfðu framleiðendur og dreifendur bersýnilega aðlagað sig markaðskröf- um i Evrópu. Við opnun sýningarinnar lagði efna- hagsráðherra Vestur-Þýskalands, Detlev Rohwedder, blessun sina yfir Langferða- vagn sem tek- ur 144 í sœti Eitt af fáu, sem vakti veru- lega athygli á bilasýningunni i Frankfurt á þessu ári, var þessi langverðavagn, sem mun vera sá stærsti i heimi. Hann er átján metrar að lengd, fjögurra metra hár og tveggja og hálfs metra breiður. Hann tekur um 144 manns i sæti, sem komið er fyrir á tveimur hæðum, og 40 i viðbót geta komist fyrir stand- andi. 1 honum eru öll þau full- komnu þægindi, er slikur bill þarf að hafa nú á dögum, og verðið er um hálf milljón þýsk mörk. Vagninn er framleiddur i Stuttgart. Kjörorð sýningarinnar þetta árið var : „öruggari akstur”. Mikil áhersla var þvi lögð á ýmsan öryggisútbúnað. Þar má nefna radarstýrða fjarlægðar- mælingu sjálfvirkt úðarakerfi og yfirbyggingu úr rafhúðuðu plötustáli. í ár sýndu 913 aðilar frá 27 löndum á sýningunni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.