Vísir - 11.11.1975, Side 1

Vísir - 11.11.1975, Side 1
VISIR 65. árg. ■ -Þriðjudagur IX. nóvember 1975. 256. tbl. wm STÆRSTA „PÚTNAHÚS" Á LANDINU Þaö er nú hálf svinslegt að vera að drepa þessi grey, en neytandinn krefst þess. Þessir grisir eru næstum tilbúnir á disk neytandans. — Sjá grein og myndir bls. 8-9 Bœjarlœkurinn malar bóndanum gull _ sja bU: „ w w w HVAÐ ER I BIO? Kvikmyndagagnrýnendur VISIS segja i dag frá fjórum kvik- myndum sem nú eru sýndar i kvikmyndahúsum borgarinnar. Eru það eftirtaldar myndir: S.P.Y.S. i Háskólabió, Trader Horn i Gamla Biói, Barnsránið i Laugarásbiói og loks Emmanuelle i Stjörnubiói — en myndin hér fyrir neðan er úr einu atriði þeirrar myndar. Ertu ónœgður með. nafnið þitt? Ætli Nebúkadnesar Nebúkadnesarson hefði svarað spurningu blaðamanns Visis i „Visir spyr” játandi? Kannski, og kannski ekki. En reyndar rákust Visismenn ekki á Nebúkadnesar, heldur sex aöra islendinga, og spurðu þá hvernig þeim likaði viö nafnið sitt. — Sjá b!s. 2. S.þ. fordœmir zíónisma — sjá bls. 5 5-700 MILLJON KRÓNA TAP HJÁ ÁLVmmiDJU Fyrirsjáanlegt er að á þessu ári verður 5-700 milljón króna tap á rekstri álverksmiðjunnar í Straumsvík. Hjá verk- smiðjunni liggja nú í birgð- um um 30 þúsund tonn af hrááli, og á núverandi markaðsverði er verðmæti þess um 4 milljarðar króna. Greina má smá-bata- horfur á álmarkaði í Bandaríkjunum og Þýska- landi, en horfur eru ekki verulega bjartar þegar þess er gætt að um 3,5 mill- jónir tonna liggja hjá hin- um ýmsu álframleiðend- um í heiminum. — ÁG — Nú standa yfir fundir um hœkkun á rafmagnsverði til Álverksmiðjunnar. — Sjá nánar á baksíðu Dauðaslys á Akureyri í gœrkvöldi — kona fyrir bíl — hemlar biluðu 44 ára gömul kona lést f bflslysi á Akureyri f gærkvöldi. Slysið átti sér stað á vega- mótum Flugvaliarafleggjara og Norðurlandsvegar sem er rétt sunnan við bæinn. Konan kom út úr bil og ætlaði yfir götuna. t þann mund kom önnur bifreið að norðan. öku- maður reyndi að hemla, en hemlarnir biluðu um leið og virkuöu ekki. Billinu lenti þvi á konunni með þeim afleiðingum að hún lést á sjúkrahúsinu á Akureyri i gærkvöldi. Konan var frá Sval- barðsströnd. -EA. íslendingar vildu ekki fordœma zíonismann islendingar greiddu atkvæði á móti ályktunartillögu á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna i gær, um að zionisminn skyldi fordæmdur. 72 þjóðir greiddu atkvæði með þvi að kalla zionismann kyn- þáttahatur. Zionismi er trúar- stefna gyðinga. islendingar greiddu einnig at- kvæði á móti tillögu um að skipa sérstaka nefnd til að tryggja Þjóðfrelsishreyfingu Palestinu- araba sérstök réttindi i umræðum um lausn vandamálanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi tillaga er af mörgum talin vera til þéss eins gerð, að skemma fyrir sam- komulagi egypta og israela. Hinsvegar sátu islendingar hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu egypta um að Þjóöfrelsishreyfing Palestinu ætti að vera með við Genfarsamningana. — ÖH WHITLAM VIKIÐ ÚR RÁÐHERRASTÓLI w,4

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.