Vísir - 11.11.1975, Blaðsíða 4
4
REUTER
AP/NTB
Þriðjudagur 11. nóvember 1975. VISIR
Þessar buxur virðast
vera eins og
\ allar hinar.
ÍÞœr eru það ekki.
I Þetta eru
KORATRON
buxur.
Þœr þarf aldrei
að pressa.
MIKIÐ STÆRÐARURVAL
^GAteURÍNN
A-ÐALSTRÆTI 9 -
SÍMI12234
Hve lengi viltu
biða
eftir f réttunum?
Viltu fá þær heim til þín samdægurs? Eda viltu bíða til
næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins í dag!
MUÖStflVER
Sími (96)23626 Glerárgötu 32 Akureyri
ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚT
IANDSTJOMNN
StTTI WHITLAM
FHÁ ÍMBÆTTI
Landstjóri Ástraliu,
sir John Kerr, vék i
nótt Gough Whitlam,
forsætisráðherra, úr
embætti, og fól leiðtoga
stjórnarandstöðunnar,
Malcolm Fraser, að
mynda stjórn til bráða-
birgða.
Landstjórinn lýsti
þvi yfir eftir viðræður
við Whitlam að þessi
ákvörðun hefði verið
nauðsynleg til þess að
finna lýðræðislega
lausn I anda stjórnar-
skrárinnar á stjórnar-
kreppu sem staðið
hefur siðustu fimm vik-
ur.
Ætluðu að kjósa
um sœti
andstöðunnar
Þá voru tæpar tvær stundir
liðnar, siðanþing verkamanna-
flokksins (Whitlams) hafði boð-
að að stefnt skyldi að kosning-
um 13. desember i þeim kjör-
dæmum sem þingmenn eiga i
efri deild. — En það er einmitt
efri deild — þar sem stjórnar-
andstaðan er i meirihluta —
sem neitaði að afgreiða
fjáröflunarfrumvarp stjórnar-
innar, ivon um að þing yrði rof-
ið og efnt yrði til almennra
kosninga.
Hálfri stundu eftir að land-
stjórinn hafði tilkynnt að hann
hefði vikið stjórninni frá sam-
þykkti efri deildin frumvarpið
til þess að nýja stjórnin hefði Ur
einhverju fé að spila.
Fékk engu ráðið
og bar að víkja
Landstjórinn hafði lýst þvi
yfir að nýja stjórnin yrði aðeins
til bráðabirgða, og þar til efnt
hefði verið til almennra kosn-
inga. Hann sagði að það væri
siðferðisleg skylda forsætisráð-
herra sem engu fengi ráðið og
ekki gæti einu sinni útvegað þvi
opinbera fé til daglegra þarfa að
segja af sér og boða til nýrra
kosninga. Til þess hefði
Gough Whitlam verið ófáan-
legur, og þvf hefði landstjóra-
embættinu borið skylda til að
taka i taumana.
„Lögreglustiórinn"
sem nú tekur við
Malcolm Fraser, sem land-
stjóri Ástraliu hefur falið að
fara með bráðabirgðastjórn,
eftir aö Whitiam var vikið frá,
hefur veitt frjálslynda flokknum
forystu i stjórnarandstöðunni
siðan i mars á þessu ári.
Þessi milljónabúhöldur frá
ViktóriU hefur átt sæti á þingi i
20 ár og hefur lengi þótt liklegur
til að taka við þjóðarforystu I
framtiðinni.
Hann varð hermálaráðherra
1966, en tók við embætti
menntamálaráðherra 1968.
Þegar hann sagði sig Ur
stjórninni 1971 eftir beiskar
deilur við John Gorton forsætis-
ráðherra. var Fraser varnar-
málaráðherra. SU deila spratt
upp úr ágreiningi Frasers og
háttsettra foringja hersins um
niðurskurð á aðstoð við stjórn
Suður-Vietnams. Hitnaði mjög i
kolunum og sá kvittur komst á
kreik að Fraser léti
leyniþjónustuna njósna um her-
inn þvi að hann treysti ekki
hershöfóing junum.
Fraser er kvæntur maður og á
fjögur börn Hann er mikill
áhugamaður um stangaveiði og
ljósmyndun. 1 daglegu tali er
hann oft kallaður „lögreglu-
stjórinn”, þvi að maðurinn er
ábúðarmikill i daglegri fram-
komu sinni við undirmennina.
Forsœtisráðherrann
sem vikið var frá
Þegar Gough Whitlam gerðist
fyrsti forsætisráðherra Verka-
mannaflokks ÁstraUu i 23 ár eft-
ir kosningarnar 1972 hófst hann
þegar handa um róttækar
breytingar i innanrikismálum
og stefnu Ástraiiu I utanrikis-
málum.
Hann þykir heyra til þeim
fámenna hópi stjórnmála-
manna, sem eru nær ofstækis-
trúar á efndir kosningaloforða
sinna. Lét hinn 59 ára gamli
forsætisráðherra ekki lengi biða
eftir efndum sinna.
Aöur en mánuður var liðinn
frá kosningasigrinum, hafði
stjórn hans viðurkennt alþýðu-
lýðveldið Kina, en Ástralia
hefur fylgtfram tilþessa afstöðu
Bandarikjastjórnar til valdhaf-
anna i Peking. Whitlam lét af-
nema breskt titlatog meðal
landsmanna sinna og mælti með
nýjum þjóðsöng, sem leysa
skyldi „God save the queen” af
hólmi.
„Nú talar Astralia með skýrri
og sjálfstæðri röddu, og ég held,
að hlustað sé á hana með nýrri
virðingu,” sagði Whitlam við
Gough Whitiam og kona hans,
Margrct, eftir kosningasigurinn
i fyrra.