Vísir


Vísir - 11.11.1975, Qupperneq 11

Vísir - 11.11.1975, Qupperneq 11
Þriðjudagur 11. nóvember 1975. 1 cTYlenningarmál Kátir • W niosnarar Háskólabió S.P.Y.S. er einskonar fram- hald af M.A.S.H. Þar eru aðal- leikararnir þeir sömu, en þó i öðru gervi. Þeir leika nú njósn- ara, starfandi fyrir CIA i Paris. Þeir vita ekki um tilveru hvor annars fyrr en salerni eitt i Paris springur i loft upp, þar sem þeir eru nærstaddir. Þeir hittast þá hjá yfirmanni sinum og þegar honum hefir tekist að sefa þá felur hann þeim það verk að bjarga sovéskum fim- leikamanni. Þetta verk ferst þeim illa úrhendi, og þeir missa af manninum. Fyrir bragðið eru njósnararnir komnir i ónáð hjá CIA og ákveða að starfa á eigin spýtur. Þeir fá i lið með sér nokkra róttæka stúdenta i Paris,en þeir vita ekki að þessir nýju félagar eru njósnarar. Gengur nú á ýmsu, verkefni þeirra félaga er að ná dýrmætri sendingu leyniskjala og fara þeir m.a. til London, en eins og áður tekst starf þeirra ekki mjög vel. Þeir lenda i klandri og stúdentarnir sem voru félagar þeirra vita um uppruna þeirra og reyna að útrýma þeim. KGB og CIA og kinverskir njósnarar eru á eftir þeim félögum og verður Ur mikill hasar i kirkju einni. Að lokum komast þeir félagarnir undan, en ekki nutu þeir ávaxta erfiðis sins. Þessi mynd hefur það til sins ágætis að það eru ágætir leikar- ar i aðalhlutverkum en efnið allt er mjög léttvægt og reyndar ekki gerðar neinar kröfur til annars. Hún er fyrst og fremst skemmtun, það er ekki verið að leggja áhersiu á ofbeldi og mannvonsku, heldur að syna spaugilega hliðarfc svona mynd- efni. En hún er lika bara ein af hundrað slikum myndum, og það er ekkert i henni sem maður hefur ekki séð áður. Þó er hún hin þokkalegasta afþreying þótt ekki nálgist hún að vera það sem M.A.S.H. var. — ÞJM KVIKMYNDIR Umsjón: Rafn Jónsson og Steinn Björnsson Aðalsöguhctjan leikin af Michael Caine kemst i hann krappan I lok myndarinnar. Hér er hann næstum drukknaður i rauðvini. Njósnamynd en ekki hasamynd Laugarásbió Bresk, 1974. Þá er komin mynd frá tjallan- um um málefni írlands. Þessi fjallar um njósnara i gagn- njósnadeild bresku stjórnarinn- ar og hefur hann það verkefni með höndum að girða fyrir vopnasendingar til hryðju- verkamanna á N-Irlandi. Þessi vopn hafa, skv. myndinni, hing- að til eingöngu verið frá rússum sem smygla þeim til trlands með hjálp tékkneskra aðila. Syni njósnarans er rænt og þess krafist að hálf milljón punda i demöntum sem nota átti til að girða fyrir frekari vopnasend- ingar sé greidd í lausnargjald. Yfirmenn deildarinnar hyggj- ast ekki láta að þessum kröfum, en njósnarinn stelur gimstein- unum og fer á fund mannræn- ingjanna. Þeir ná demöntunum, en skila ekki drengnum. Njósnarann grunar að þetta mál sé ekki tengt irskum hryðjuverkamönnum, eins og aíhr héldu fyrst i stað, heldur sé einhverinnan stjórnarinnar sem ágirnist peningana. Mannræn- inginn gerir ýmislegt til að láta grun falla á föður drengsins sem var rænt og hann veit ekki hvað- an á sig stendur veðrið þegar hinar ýmsu sakir eru bornar upp á hann. En að lokum hreins- ar hann sig af öllum grun og fullur sigur vinnst. Þessi mynd er dæmi um það hvernig sakamálamyndir eiga að vera, hæfilega spennandi frá upphafi til enda og ofbeldi, ævintýraleg geta aðalsöguhetj- unnar og óraunveruleiki lögð að mestu til hliðar. Myndin er sem sagt ekki has- armynd, heldur spennandi njósnamynd. —RJ. cEn|mamie(I& Fallegar stúlkur — Falleg mynd Ef þú vilt sjá klámmynd, skaltu ekki fara í Stjörnubíó. En ef þú vilt sjá fallegar stúlkur í fallegri mynd, skaltu fara þangað__________________ Stjörnubió Frönsk, 1973. Emmanuelle er ung og falleg stúlka, saklaus og eiginmannin- um trú. Hann er hinsvegar lifs- reyndur og hefur þá reglu i hjónabandi sinu að þar skuli rikja algert frjálsræði. (Senni- lega vegna þess að hann veit að Emmanuelle ef of mikill krakki til að halda framhjá). Maður hennar er sendiráðsstarfsmað- ur i Thailandi og er þvi sjaldan heima við og i sifelldum erinda- gjörðum hingað og þangað fyrir sendiráðið. A meðan er Emmanuelle i félagsskap eigin- kvenna annarra sendiráðs- manna. Þessar konur hafa ekk- ertvið að vera nemá lifa kynlifi og tala um það. En þar sem karlmannsleysi hrjáir staðinn leita þær bliðu hverrar annarr- ar. Út á þetta gengur myndin, aðgerðarleysið. Enda er hún efnislaus. Það er ekkert gert nema kysst og strokið, klappað og kjassað og konurnar eru nær einráðar i þeim efnum. Það er algjör hending ef Emmanuelle er i fötum og þá sjaldan það gerist, eru þau svo þunn að alls staðar sér i bert. Þessi mynd er falleg og ekki k'.ámfengin, konurnar eru fal- íegar, landslagið er fallegt og ‘leikstjóranum hefur vel tekist að gera kynlifsatriðin þannig úr garði að þau verða ekki ógeðs- leg. Sennilega eru frakkar eina þjóðin sem getur gert svona kynlifsmynd án þess að hún verði sóðaleg. Hitt er svo annað mál að samknæmt upplýsingum frá fróðum manni hafa einhver atriði verið klippt úr myndinni, sem hafa ofboðið siðgæðiskennd islendinga. Heldur litið fannst mér fara fyrir leik, konurnar voru allar eins og klipptar út úr blaði og Emmanuelle er falleg stúlka sem skortir allan per- sónuleika. Ég vil koma þvi að að lokum að mér finnst það einkennilegt að banna mynd börnum innan 16 ára þar sem fólkið sýnir hvort öðru bliðu (kannski á svolitið á- kveðinn hátt), en leyfa siðan börnum að fara á myndir þar sem ofbeldi, hatur og mann- vonska eru eini boðskapurinn. 1 Noregi voru bæði Tommy og Emmanuelle bannaðar innan 18 má að sitt sé siðgæðið i landi ára en hér var Tommy aðeins hverju. bönnuð innan 12 ára. Svo segja —RJ Emmanuelle hin unga og saklausa biður þess að fuliorðnast og vcrða lifsreynd. stjörnu- kíkirinn Sá háttur verður eftirleiðis hafður á hér á kvikmynda siðunni, að gefa kvikmynd- unum stjörnur eftir ágæti þeirra að mati umsjónar- manns. Reglan verður sú að opin stjarna eða hvit táknar að myndin sé léleg að mati umsjónarmanns, ein svört, sæmileg, tvær, góð, þrjár mjög góð, og fjórar, frábær. Gamla bió ¥ ,,Trader Horn” Laugarásbió X-Jf Barnsránið. Háskólabió >f>f S.P.Y.S. Stjörnubió * Emmanuclle. Tónabió >f>f)f Tommy Hafnarbió >f>f>f>f Sviðsljós. Nómur Metro-Goldwyn-Mayer Gamla Bíó: Trader Horn, bandarisk, gerð 1973. Framleiöandi: MGM — Lewis J. Rachmil. Handrit: William N'orton og Edward Harper. Leikstjórn: Reza S. Radyi. Kvikmyndataka: Ron- ald W. Browne. Tónlist: Shelly Manne. Aðalhlutverk: Rod Tay- lor, Anne Heywood, Jean Sorel, Don Knight. Tekin I Metrocolor. Vinsælar kvikmyndir i Bandarikjunum og i Englandi eiga eitt sam- eiginlegt: Þær eiga allar eftir að fá fram- hald eða verða endur- gerðar. Mynd sú er Gamla Bió sýnir núna er endurgerð myndar frá 1931 sem hét sama nafni. Ef til vill verður sú mynd sýnd hér i sjónvarpinu og geta menn þá haft samanburð. Og þyrftu þess nauðsynlega. Sé þetta raunsönn eftirliking getur „frummyndin” vart verið upp á marga fiska. Hér ganga aftur klisjur frá timum þöglu myndanna og heyrir myndin þvi varla nútimanum til. Söguþráð- urinn er að miklu leyti áþekkur „Námum Salómons konungs,” er MGM hefur þegar þurr- mjólkað. T.a.m. heitir ein sögu- persónan sama nafni og þar. Það eina góða við „Trader Horn” er falleg myndataka (á köflum) og geysifagurt lands,- lag Kenya og Uganda þar sem framleiðendur segja myndina tekna. Auðvitað eru margir kaflar teknir heima i Kaliforniu, en framleiðandinn gætir þess að atriði falli vel saman. Auk þess eru þarna bráðfalleg villidýr,sem skila ágætum leik, og menn geta glaðst yfir kossa- senunum (voru þó piptar út) og allri þessari stórkostlegu vit- leysu. —SB

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.