Tíminn - 11.11.1966, Side 13

Tíminn - 11.11.1966, Side 13
FÖSTUDAGUR 11. nóvember 1966 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Iþróttir í Islenzku sjónvarpi ' Þótt íslenzka sjónvarpið sé enn á tilraunastigi, er þeSar Ijóst, að íþróttir muni skipa veglegan sess í dagskránni, og þarf það ekki að koma nein- um á óvart, því að lýsing frá íþróttamótum er mjög vinsælt sjónvarpsefni. Nú þegar hafa verið sýndar nokkrar knatt- spymukvikmyndir, og hafa þær yfirleitt verið góðar, en þó hef ur komið frarn gagnrýni vegna útsendinganna- Bcr þar fyrst að nefna, að flestum þykir út sendingatíminn óheppilegur þ. e. klukkan hálf sjö. Margir hafa ekki lokið vinnu á þessum tíma og hafa kvartað yfir því, að þeir missi af stórum hluta út- sendingarinnar. í þessu sam- bandi hefur verið réttilega bent á, að laugardagseftirmiðdagar séu heppilegri tími, og er ekk ert líklegra en að sjónvarpið breyti tímannm, þegar það hefur útsendingar fleiri daga vikunnar. f annan stað hefur komið fram gagnrýni á íþróltaþul sjónvarpsins, sem mörgum fhmst „mala“ of mikið í út sendingu knattspymukvik mynda. Hér er á ferðinni við kvæmt mál og sennilega skipt ar skoðanir um það. Sá, sem þessar línur skrifar, hefur séð íþróttaútsendingar hjá erlend um sjónvarpsstöðvum einkuin þar sem knattspyrna hefur ver ið ofarlega á baugi, bæði á Bretlandseyjum og Norður- löndum. í Bretlandi eru íþrótia þulir sjónvarps og litvarps mjög færir, enda skólaðir sér staklega fyrir störf sín. Þessir brezku þulir, sem segja má, að séu þcir beztu í heiminum á þessu sviði, tala yfirleitt mikið með sjónvarpsútsendingum. En þeir lýsa ekki beint gangi leiks ins, t. d. knötturinn fór út fyr ir hliðarlínu, Englcndingar eiga .innkast, o. s. frv- heldur útskýra leikina. I þessu kemur fram mismunur á sjónvarpi og út- varpi. Þegar um sjónvarp er að ræða, sér áhorfandinn með eig in augum, hvcrnig leikurinn gengur fyrir sig, í einföldustu atriðum — liann sér það og það þarf ekki að segja honum það — en það er ekki víst, að hann skilji eðli hans. Og í þessu atriði þarf sjónvarpsþulurinn að koma til hjálpar, — útskýra leikinn. Þulurinn þarf að geta útskýrt fyrir sjónvarpsáhorf- endum, t.d. hvaða leikaðferðir Sjónvarpið færir íþróttamót inn í heimahús. liðinn leika, og láta í Ijósi per sónulegar skoðanir á ýmsurn atriðum. Ilin bcina lýsing á að eins að vera veikur undirtónn. f útvarpslýsingu cr þetta í mörgum tilfcllum þveröfugt. Þá sjá menn ekki lcikinn fyrir framan sig, — og þá vcrður hin einfalda lýsing nauðsynleg, t-d. knötturinn lirökk af NN og það er hornspyrna. Ef íþróttasjónvarpsþulir á Bretlandseyjum og Norðurlönd um eru bornir saman, kemur fljótt í Ijós, hve miklir yfir- burðamenn þcir fyrrnefndu, eru. Það hafa ísl. sjónvarps- áhorfendur getað dæmt um með því að bera saman lýsinSar brezku þulanna í útsendingunni frá leik Sovétríkjúnna og Port úgal, — og hins vegar lýsing ar danska þulsins í leiknuin, sem sýndur var í fyrrakvöld, Svíþjóð — Danmörk. Og þá er koniið að spurningunni: Hvern ig er ísl. íþróttaþulurinn? Á þessu stigi finnst mér persónu lega of snemmt að dæma um hæfni hans, ísl. sjónvarpið er jú á tilraunastigi og hann, eins og annað ísl. sjónvarps- fólk, þarf tíma til að átta sig á hlutunum. En ef ég mætti ráða, myndi ég kjósa, að var- lega væri af stað farið í byrj- un og ekki talað of mikið með útsendingum og smáútskýring ar annað kastið látnar nægja. Á þessu stigi er ekki ástæða til að fjölyrða meira um ísl. sjónvarpið, en eitt er víst, að allir iþróttaáhugamenn fagna því, hve íþróttum er gefið mik ið rúm j því. — alf. Ágúst Ögmundsson, einn af landsliðsmönnum VALS I handknattleik, sést hér í skotfæri á móti Þrótti í Reykja- víkurmótinu. VALS-liðinu hefur ekki gengið of veH byrjun og átti t. d. í erfiðleikum með Þrótt og tapaði fyrlr KR. (Tímamynd Róbert). Landsleik við Noreg aflýst Alf-Reykjavík, — Blaðaíulltrúi Handknattlelkssambands íslands, Axel Sigurðsson, skýrði blaðinu frá því í gærkvöldi, að landsleiknum íslaiul — Noregur, sem fram átti að fara í Osló 4. desember n. k., hafi verið aflýst. | Ástæðan er sú, að um gagnkvæm ' skipti var að ræða þ. e. að áætlað var að Nonnenn léku hér á næsta ári ,en vegna slæmrar fjárhagsaf komu, treysta þeir sér ekki til að standa við þann lið. Hefur lands leiknum í Osló því verið aflýst. Stjóm HSÍ hefur þess í stað nú snúið sér til Vestur-Þýzkalands og athugað mögulcika á landsleikjum við V-Þjóðverja. Er möguíeiki á þvi, að þcir geti komið hingað síð ast í þessum mánuði, en þá verða þeir í keppnisför um Norðurlöml. Endanleg ákvörðun í máiinu verð ur væntanlega tekin í dag. UMFI skorar á Alþingi og ríkisst jórn að hækka framlög til íþróttasjóðs Sambandsráðsfundur Ung- mennafélags íslands var haldinn á Sauðárkróki 25. september sl. Mörg mál voru tekin fyrir á fund inum og ýmsar ályktanir Serðar. M.a. var skorað á ríkisstjórnina og Alþingi að hækka framlag til íþr,- sjóðs, þannig, að áætluð vangold- in þátttaka sjóðsins greiðist að fullu næstu 4—5 árin. Þá beindi fundurinn þeirri ein dregnu áskorun til rikisstjórn- arínnar og Alþingis að stuðlað verði að því, að framkvæmdum við byggingar fþróbtakennara- skólans að Laugarvatni verði hrað að, svo að skólanum verði hið fyrsta gert mögulegt að veita skólavist þeim, er þar vilja stunda nám, enda taldi fundurinn að skortur á íþróttakennurum og leiðbeinendum á sviði félagsmála standi frjálsu starfi út um landið mjög fyrir þrifuni. Á sambandsfundinum var geng- ið frá reglum fyrir næsta lands- mót, sem háð verður 1968. Þátttökutilkynning- ar í íslandsmót Þátttökutilkynningar fyrir fs- landsmótið í handknattleik þurfa að hafa borizt til Handknatt- leiksráðs Reykjavíkur, c/o fþróttamiðstöðinni í Laugardal, fyrir 20. nóvember n.k. (HKRR) STUTTAR FRÉTTIR Aðalfundur knatt- spyrnudeildar Vals Aðalfundur Knattspyrnu- deildar Vals verður haldinn í fé- lagsheimili Vals að Hlíðare.nda mánudaginn 21. nóvember n.k. Hefst fundurinn klukkan 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Vals menn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. ★ Spánn sigraði Frakkland með 4:1 í knattspymulandsleik, sem var liður í Evrópnkeppni landsliða áhugamanna. f hálf leik var staðan 2:0. ★ f fyrrakv. sigraði Liverpool Burnley með 2:0 í 1. deild á Englandi og á Skotlandi sigraði Rangers Kilmarnock með 3:0. ★ f Evrópubikarkeppni bikar| hafa sigraði Real Zaragossa ensku bikarmeistarana Evervon með 2:0. Eins og kunnugt er, sló Everton danska liðið AB út í fyrstu umferð keppninnar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.