Tíminn - 11.11.1966, Blaðsíða 16
í FÚTSPOR FEÐRANNA
Ný bók eftir Þorstein Thorarensen um gullaldarárinl900-'10
SJ-Reykjavík, fimmtuidag.
Þorsteinn Thorarensen fyrrver
andi fréttaritstjóri Vísis, boðaði í
dag til blaðamannafundar til að
kynna bókina „f fótspor feðranna“
sem fjallar um gullaldarárin 1900
—1910. Þorsteinn liefur einkum
unnið að þessari bók síðan hann
hætti starfi hjá Vísi. Bókin fjall-
ar „um eitt þýðingarmesta og
umdeildasta tímabilið í íslenzkri
stjórnmálasögu — fyrötu spor
þjóðarinnar á braut sjálfstæðis“,
eins og komizt er að orði í kynn
ingu á bókinni og höfundi á bókar
kápu. „Bókinni er fyrst og fremst
ætlað að vera tengiliður fyrir nú.
verandi og uppvaxandi kynslóð við
nánustu fortíð, tímann, þegar feð-
ur þeirra og afar stóðu í barátt-
unni, — baráttu, sem oft var æði
heit. Jafnframt er í henni lýsing
á höfuðstaðnum og bæjarlífinu
um síðustu aldamót.“
Fundurinn með blaðamönnunum
var haldinn í áætlunarbíl, og var
Þorsteinn Thorarensen
ekið fyrst inn að Elliðaánum og
síðan niður Suðurlandsbraut og
Laugaveg, um miðbæinn og vestur
í bæ. Þorsteinn rakti í stuttu máli
sögu margra húsa á. þessari leið,
sem voru reist um aldamótin og
taldi upp ýmsa merkismenn, sem
hefðu búið í þeim. Þessi fyrirlest
Framhald a ois 15
SKÁKFRÉTTIR
í fréttaskeyti af skákmótinu í
gærkvöldi segir, að biðskákir úr
fimimtu umferð hafi verið tefldar.
Friðrik vann skák sína við Ortega
og Ingi gerði jafntefli við Rodrigu
ez. Úrslit í fimmtu umíerð urðu
því þau, að ísland hlaut 2Vz vinn
ing, Kúba 1% Bandaríkin hlutu 3
Þýzkland 1, Danmörk 2V2> Spánn
H/2, Júgóslavía 2 og Argentína 2
vinninga, Rússland 3, Itúmenía 1,
Noregur i/2, Búlgaría 3%, Tékkó
slóvakía 2Vz og Ungverjaland U/2.
Fannst látínn
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
í dag var í útvarpinu auglýst eft
ir 52 ára verkamanni, sem síðast
hafði sézt til fyrir hádegi á mið-
vikudag, er hann var við vinnu
sína niður við höfn. Um hádegið
i dag fannst maðurinn í kirkju-
garðinum við Suðurgötu og var
látinn. Virðist allt benda til, að
hann hafi orðið bráðkvaddur.
Það voru nokkrir unglingar,
sem gengu fram á manninn í
kirkjugarðinum og létu lögregluna
vita.
Nafn mannsins var Þorsteinn A.
Jónsson til hermilis að Ásgarði
125.
Handritamálið
tekið til dóms
Aðils-Khöfn, EJ—Rvík, fimmtu
dag .
Munnlegum málflutningi í
handritamálinu lauk í dag, er
Poul Sehmith, lögfræðingur
menntamálaráðuneytis Dan-
merkur, flutti lokasvar sitt. Var
málið siðan tekið tíl dóms, en
ekki er enn ljóst hvenær dóm
ur fellur, þótt það verði innan
14 daga.
Rök málsaðila fyrir lfæsla
rétti hafa verið hin sömu og fvr
ir landsréttinum, en landsréttur
inn felldi þann úrskurð sem
kunnugt er, að lögin um af-
hendingu handritanna væru
efcki í andstöðu við stjórnarskrá
landsins.
Gunnar Christrup, hrl, lög
fræðingur stjórnar Árnasafns,
lagði á það mesta áherzlu í mál
flutningi sínum, að hér væri
um eignarnám að ræða, þar
sem Árnasafn væri sjálfstæð
stofnun og hér væri verið að
taka hluta af eigum safnsins og
gefa þær úr landi — án þess
að til kæmi skaðabætur, svo
sem stjórnarskráin segði til um
í sambandi við eignarnám. Því
ætti að dæma lö.gin í andstöðu
við stjórnarskrána og fella þau
þar með úr gildi.
Lögfræðingur danska mennta
málaráðuneytisins, Poul Sc-
hmith, lagði aftur á móti á það
áherzlu, að Arnasafn væri í
eigu háskólans í Kaupmanna
höfn, og háskólinn væri ríkis
eign. Væru handritin því ríkis
eign, og hægt væri að ráðstafa
þeim svo sem stjómvöldum
þóknaðist.
Einnig lagði hann áherzlu á,
að þótt íslenzku handritin væru
flutt til fslands, þá þýddi það
ekki, að íslendingar fengju eign
arréttinn yfir handritunum. Þau
Framhald á bls. 15.
Helgi Bergmann sýnir 34
myndir í Templarahöllinni
Helgi Bregmann viS málverkiS, sem enginn nema kaupnadi faer aS vita, hva'S heltir.
GÞE—Reykjavík, fimmtudag.
Það má með sanni segja, að
Helgi Bergmann listmálari láti
skammt stórra högga á milli,
ekki eru nema nokkrir mánuð
ir síðan hann hélt mikla mál
verkasýningu í Kópaivogi, og
nú á sunnudaginn opnar hann
aðra, að þessu sinni í Templara
hölbnni.
— Þetta eru 34 myndir flest
ar nýjar, sagði Helgi, er Tím-
inn heimsótti hann upp í Templ
arahöll í dag. Það seldist allt
upp á sýningunni hjá mér í
vor og ég fékk fjölmargar pant
anir um málverk, svo að ég
hætti við að fara í siglingu
eins og ég hafði ætlað mér,
kláraði það, sem ég átti ófull-
gert fyrir aðra sýningu. Að
henni lokinni ætla ég að leggja
land undir fót, en ég verð að
hætta við að fara til ítalíu eins
og ég hafði ætlað mér út af
þessum óskaplegu flóðum.
— Þetta eru mestmegn
is' landslagsmyndir hjá þér.
— Já, flestar eru frá Þtng
völlum og Snæfellsnesi, en
svo eru hérna nökkrar mynd
ir, sem hægt er að segja, að
séu í abstraktstíl, og þær hef
ég flestar málað út frá áhiif-
um, sem ég hef orðið fyrir af
tónlistarverkum. Ein beitir
Symphony Fantastique og er
tileinkað .veíki Berfioz, önocr
Framhaíd á bls. 15.
MIKIÐ UM NAUTGRIPASLÁTRUN í BORGARNESI
LEGGJA ALGJÖRLEGA
MI9UR KtiABÚSKAPINN
KJ—Borgarnesi fimmtudag.
Nautgripaslátrun stendur nú
sem hæst í liinu nýja og niyndar I
lega sláturhúsi Kaupfélags Borg-
firðinga í Borgarnesi. Er slátrað.
hér af öllu svæðinu vestan frá'
Breiðuvík á Snæfellsnesi, en engl
in nautgripaslátrun fer fram íj
hinum tveimur sláturhúsum KB.I
Ástæðan fyrir þessu er sú, að
væntanlegir kaupendur erlendis
setja það sem skilyrði fyrir kjöt
kaupunum, að ekki sé slátrað
hrossum í sama sláturhúsi og naut
gripaslátrun fer fram í og fer því
hrossaslátrunin fram að Vegamót.
um og Hurðabaki.
Óvenju mikið er um nautgripa-
slátrun núna, og kemur það til af
Stórtap vegna rat-
magnsskorts eystra
SJ-Reykjavík, fimmtudag.
Mikið vandræðaástand ríkir nú
fyrir austan vegna sífelldra trufl
ana á rafmagni. Síldarverksmiðjurn
ar á vcitusvæði Grímsárvirkjunar
voru látnar stöðva rekstur sinn í
gærmorgun, í annað sinn, og voru
ekki komnar í gang aftur um
kvöldmatarleytið í dag, en gert
ráð fyrir að hægt yrði að hefja
bræðslu aftur síðar í kvöld. Önn
ur nýja dísilvélin á Seyðisfirði var
komin í gang í dag, en í nótt bil
aði önnur 700 kílówattavélin á
Norðfirði, cn vonir standa til
að fljótlega verði hægt að gera
við þá bilun með * því að nota
stykki úr vélinni sem bilaði fyr-
ir helgi!
Framkvæmdastjóri Síldarverk
smiðja ríkisins á Seyðisfirði sagði
að þetta væri afleitt ástand og
hefði verksmiðjan tapað miklu
magni af síld auk vinnslustöðvun
Framhald á bls. 15.
rninni heyfeng en oft áður, og dæmi
eru til þess, að bændur eru algjör
lega hættir við kúabúskap og
farga því flestum kúm sínum en
I selja aðrar. Vegna hinna miklu
anna í sláturhúsinu — þessarar
óvenju miklu slátrunar — þurfa
| bændur að hafa sláturgripi á gjöf
í þó nokkurn tíma áður en þeir
losna við gripina, og eyða þannig
dýrmætu heyi í þá, sem þeir
mega nú helzt ebki við á þessum
tíma.
Sauðfjárslátrun er lokið hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga og var
alls slátrað í þrem sláturhúsum
félagsins tæpum 72.500 fjár, sem
skiptist þannig, að á Vegamótum
var slátrað 7973, að Hurðabalri
16.446 og í Borgarnesi 48.069 fjár.
Meðalþungi dilka var 12.96 kg. en
var í fyrrahaust 14.16. Er þetta all
mikill munur, svo ekki sé meira
sagt, og minnka tekjur sumra
bænda allverulega.
Arnarfellið fór héðan x gær með
69 þúsund gærur beint til Finn-
lands.
SAMSÆTI AÐ SÖGU
í tilefni af sextugs afmæli Eysteins Jónssonar 13. nóvember
n. k- efna vhiir hans og samherjar til fagnaðar sunnudagskvöld
ið að Hótel Sögu honum til heiðurs. Fagnaðurinn liefst með
kvöldverði kl. 19.30.
Aðgöngumiða þarf heUt að vitja fyrir kl. 16 í dag í Tjarnar-
götu 26 símar 1-60-66 og 1-55-64 eða á afgreiðslu Tímans Banka
stræti 7-