Vísir - 12.12.1975, Page 2

Vísir - 12.12.1975, Page 2
rimsm: Heldur þú að Flugleiðir standi á bak við Air Viking málíð? JL •lúlius Arnórsson, tæknifræðing- ur: — Ég hef enga hugmynd um það. Ég hef litið fylgst með þessu máli. Þó hef ég trú á að sitthvað eigi enn eftir að koma i ljós. Magnús Ólafsson, blaðamaður: — Það er ekki gott að segja. Það hefur margt fróðlegt komið fram i þessu máli. Og enn á örugglega ýmislegt eftir að koma i ljós,-sem gæti veitt upplýsingar. Eg tel ekki óliklegt að Guðni búi yfir ein- hverri meiri vitneskju sem geti breytt miklu. Karl Sigmundsson, atvinnulaus: — Ég er frekar litið kunnugur þessu máli. Aðeins fylgst með þvi i sjónvarpsfréttum. Mér finnst þetta mál athyglisvert en maður veit ekki hvað er satt. Ragnar Karlsson, skrifstofumað- ur: — Eftir nýjustu fréttum að dæma þá virðist það svo, þó furðulegt sé. En það reynir vist hver að bjarga sér. Það er ein- hver stórpólitik að baki. Sölvi Jónsson, atvinnulaus eins og er: — Það gæti vel verið að Flug leiðir vilji alveg yfirtaka markað inn. Ég hef bara ekki fylgst sér- staklega með þessu máli, hef heldur takmarkaðan áhuga á þvi. Páll Bjarnason, árkitekt: Ég veit ekki. Það getúr hins vegar verið að það sé einhver pólitisk pressa að baki. Það á öruggiega ýmislegt eflir að koma i ljós. Föstudagur 12. desember 1975. visir JOLAGETRAUNIN (7) Hvar halda þau sig í dag, Steini, Gunna og fjölskylda? Eins og venjulega er þaö hlut- verk ykkar að finna það út. Einn þeirra sem sendir inn rétt- ar úrlausnir fær svo ríkuleg verðlaun fyrir, sem sé Nord- mendehljómtæki frá Radióbúð- inni. En hver það verður, veit enginn. Það gæti allt eins orðið ÞU. Jólakaka 350 g. smjör, 350 g púðursykur, 50 kokteilber, 225 g rúsinur, 350 g kúrenur, 150 g ffnmalað súkkat, 75 g niðurskornar möndlur + 75 g malaðar möndlur, 5 egg, 350 g hveiti, 1 tsk. lyftidyft og 2 dl sérri. Hrærið sm jör og sykur saman. Skerið kokteilberin I tvennt, og blandið þeim út i, ásamt rúsinum og kúrenum. Hrærið eggjarauðunum út i. Setjið hveiti og lyftiduft út i. Þeytið eggjahviturnar, og blandið þeim varlega út í. Deigið á að vera svo mjúkt, að það festist ekki við skeið. Setjið mjólk út i eftir þörfum, ef deigið festist við skeið. Setjið deigið i form, og bakið i kiukkutima á 175 gráðu hita. Minnkið siðan hitann niður i 160 gráður, og bakið i 2 tima i viðbót. At- hugið með meðprjóni hvort kakan er til- búin. Arnaldur nýtur þess augsýni- lega að drekka teið sitt í dag. En það er ekki bara te sem boð- iðer upp á, heldur heil jólakaka, eða a.m.k. uppskriftin að henni. Hvar er svo þessi kaka mat- reidd? □ BANDARÍKJUNUM □ ENGLANDI □ ÁSTRALÍU Setjið kross við rétt svar. Geymið seðilinn, og safnið öll- um seðlunum tíu saman, þegar qetrauninni er lokið. Þá skal senda seðlana ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri til Vísis. Dregið verður úr rétt- um úrlausnum fyrir jól, um hin glæsilegu verðlaun. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Furðuleg ofstoða íþróttafréttaritara Jóhannes Sæmimdsson skrifar: Fimmtudaginn 4. 12,var slitið námskeið fyrir leiðbeinendur I iþróttum A-stig. Námskeiðíð, en fór fram i Menntaskólanum I Reykjavik, stóð yfir i rúma 70 tima og lauk með prófi, sem 17 manns gengust undir. Það, sem vekur furðu mina og vonbrigði er afstaða fjölmiðla til fræðslumála iþróttahreyf- ingarinnar. Haft var samband við Morgunblaðið, Timann, Þjóðviljann og Visi, en enginn fréttamaður hjáþessum blöðum lét sjá sig, þrátt fyrir góð orð um að koma og segja frá þessu námskeiði. Það, sem ég vonaðist sérstak- lega eftir að blaðamennirnir myndu gera, var að segja frá og vekja athygli á þvi, sem verið er að gera i fræðslumálum iþrótta- hreyfingarinnar. Mér finnst það ansi hart, að þurfa að skrifa i kvörtunartón i lesendadálk dagblaðs til þess að koma á framfæriupplýsingum um að 17 nýir leiðbeinendur hafi bæst i hóp þeirra er nú þegar hafa lok- ið A-stigi. Iþróttafréttaritarar móta almenningsálitið á iþrótt- um með skrifum sinum. Með þvi að sýna fræðslumálum iþróttanna engan áhuga með skrifum um þau, geta þeir hæg- lega drepið þennan visi að fræðslu sem gæti ef vel tekst til, haft ómetanlega þýðingu fyrir iþróttafélögin. Hjá Iþróttafélög- unum er hvergi nærri nóg af menntuðum leiðbeinendum og er það vandamál, sem allir gera sér grein fyrir. Það er þvi mikil ábyrgð sem hvilir á ykkur, iþróttafréttaritarar, en oft finnst mér á skrifum ykkar og þvi sem þið segið ekki, að þið gerið ykkur ekki grein fyrir ábyrgðinni og hversu miklu góðu þið getið komið til leiðar og jafnframt, hversu miklum skaða þið getið valdið. SRthvað að vera í stjóm eða stjórnarandstöðu? Emil K. Thorarensen, Eskifirði skrifar: Þvi hefur verið haldið á lofti að undanförnu að stjórnmála- menn gerðust oft óábyrgir þegar þeir væru i stjórnarand- stöðu. Hefur Lúðvik Jósefsson manna mest verið gagnrýndur i þessu sambandi. Um daginn sagði Gunnar Thoroddsen i sjónvarpinu, vegna framkomu breta i fisk- veiðideilunni, að rikisstjórnin hefði ýmis tromp á hendi sér og nefndi nokkur þeirra, svo sem að kæra breta fyrir Nato og kæra þá fyrir öryggisráð SÞ Það vakti furðu mina að ráð- herrann skyldi ekki nefna þann möguleika að láta alþjóðadóm- stólinn i Haag útkljá þetta mál. Eins og allir vita var Gunnar Thor og hans flokkur i stjórnar- andstöðu 1972. Þá hvatti hann eindregið til þess að islendingar legðu málið fyrir Haa-dómstól- inn og spáði jafnframt góðum málalokum fyrir okkur. En tók jafnframt fram að ef úrskurður dómstólsins yrði okk- ur ekki i hag þá færum við ekki eftir honum. í fyrrnefndu sjón- varpsviðtali passaði Gunnar sig hins vegar vel að minnast ekki einu orði á þetta fyrrverandi þjóðráð sitt. Hvað hefur gerst hjá þessum mikilhæfa stjórn- málamanni? Hefur Gunnar misst trúna áHaag-dómstólnum eða er hann einn þeirra sem umpólast við að fara úr stjórnarandstöðu i stjórn??

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.