Vísir - 12.12.1975, Side 13
12
Föstudagur 12. desember 1975.
VISIR
þar sem hann starfar sem raf-
magnstæknifræðingur. „Við
erum nii í efsta sætinu i „Als-
venskan”, höfum unnið tvo sið-
ustu leiki okkar — Frölunda 20:18
og Kristianstad á miðvikudaginn
20:17. Næsti leikur hjá okkur
verður ekk i fyrr e n 21. des„ þvi að
sænska landsliðið er nú byrjað
siðasta undirbúning sinn fyrir
landsleikinn við tékka i undan-
keppni ólympiuleikanna.
Lugi-liðið er m jög gott um þess-
ar mundir, enda höfum við æft
mjög vel að undanförnu — og
gerum við okkur miklar vonir
um að verða i einum af fjórum
efstu sætunum i „Alsvenskan”.
'Fyrirkomulagið hér er þannig að
efsta liðið vinnur deildarkeppn-
ina, en siðan leika fjögur efsiu lið-
in saman um Sviðþjóðarmeist-
aratitilinn og okkar markmið er
að vera i þeim hópi.”
Eftir þvi sem sænsku blöðin
skýra frá þá hefur Jón verið
„stjarnan” i liði Lugi i siðustu
leikjum — og hann beinlinis skot-
ið liðinu i efsta sætið. Jón skoraði
6 mörk i leiknum gegn Frölunda
ogvar skotnýting hans i þeim leik
70%. Ekki lét hann heldur sitt eft-
ir liggja i leiknum gegn Kristian-
stad, þótt hann fengi sérstaka
gæslu — tókst honum að skora 5
mörk — og var að venju drýgstur
þeirra Lugi-manna.
Jón Hjaltalin er markahæstur i
Lugi — hefur skorað 36 mörk,
Claes Ribendahl hefur skorað 33
mörk og landsliðsmaðurinn Eero
Rinne hefur skorað 23 mörk.
Eins og sjá má þá er Jón nú i
mjög góðri æfingu, og það vekur
þvi furðu að landsliðsþjálfarinn
Viðar Simonarson skuli ekki hafa
séð ástæðu til að fá Jón yfir til
Danmerkur —og ekki sisteftir að
ljóst var að Ólafur Einarsson
myndi ekki leika með landsliðinu.
Viðar lýsti þvi yfir að Jón væri
æfingarlaus — og það væri
megin-ástæðan fyrir þvi að hann
vildi ekki fá hann inn i liðið.
Þarna fer Viðar með algjört fleip-
ur — Jón hefur æft m jög vel og er
i mjög góðri æfingu — enda hefur
undirbúningur Lugi-liðsins senni-
lega aldrei verið betri. Fyrir
„Alsvenskan” lék liðið t.d. 27
æfingaleiki á 45 dögum og oft við
sterk lið eins og t.d. Refstad,
Noregi, Stadion, Fredrici-a og
HG Danm., TSV Altenholtz,
Þýskalandi, og auk þess sterk
sænsk lið eins og t.d. Helsingör,
Heim, Hellas og Drott svo að ein-
hver séu nefnd. '— BB.
SKANSKA DAOBLADET Fl
llfdröiligt före paus — böttre efter...
Jons skarpskytte
báddade för viktig Lugi-vinst!
‘
^ I :Han ivarade di för fyrt d. ett .Urkt för.vtr och ett kom-
•rtt, mil och detu gav Lugl öv.rU*e pakt aníallMpel. La*et uknar dock
’0-8. Det var förreaUn försU öe rtttU aveluUma.
, __ ■*•**' »m .klllnaden inlednlngen blev trög för bAda U-
M W •»_ n K«n- Lánga aníall och lnga .kott pA
rt pZ/on \
SQttp
JElter
.915
t dece»«bc
i\«“
)ons 90<
ncrvet
vóddnde
sc9ern.
o\ Inð1
* ®fter n fýjí va>’if0oi ‘ dag rström.
■%n2r»ftULbl** de. , ájgWfjSíí We.Lennart Ny-
'feEíSítw
^WBBÍ
'Uut'í' •!
tsn» , Karlss
n sotn cíier i
Litið sýnishorn af skrifum sænsku blaðanna eftir leik Lugi og Vástra
Frölunda. Þar er Jón Hjaltalin Magnússon i öllum fyrirsögnum og tal-
inn maður leiksins....en samt er hann ekkinógu góður til aðfá að vera á
æfingu með islenska landsliðinu!!!...
Lugi, lið Jóns Hjaltalins
Magnússonar, er nú i efsta sætinu
i „Alsvenskan”, i Sviþjóð meö 10
stig, annað lið, Heim er með sömu
stigatöiu — en markahiutfall Lugi
er + 23 mörk —Heim + 22 mörk.
„Þetta hefur gengið mjög vel
hjá okkur I siðustu leikjum”,
sagði Jón Hjaltalin i viðtali við
Vfsi i morgun þegar við höfðum
samband við hann i Kockums
skipasmiðastöðinni i Malmö —
Jón Hjaltalin Magnússon átti
stórleik nteð liði sinu Lugi i
leiknunt gegn Vastra Frölunda i
siðustu viku og skoraði þá 6
mörk og var skotnýting hans i
leiknunt 70%. Myndin er af
Jóni skora eitt af 6 mörkunt
sinum i leiknunt og varnar-
ntenn Frölunda koma engum
vörnunt við.
SKÍÐAFATNAÐUR
Finnski
skíðafatnað-
urinn er
kominn
nú sem fyrr er hann á
mjög góðu verði, iita-
úrvalið er mikið og
fallegt, og allar stærðir
eru til.
Einnig mikið
úrval af:
skíðurn,
skíðahönskum,
skíðahjálmum,
skíðagleraugum,
skíðahúfum og
CABER
skíðaskóm
Önnur lotan i heimsbikar-
keppninni á skiðum hefst i dag i
Madonna di Campiglio á ttaliu.
Þar eru allir helstu skiða-
kappar heims — sem á annað
borð treysta sér i keppnina —
mættir, og er búist við hörku
baráttu.
Þarna verða aðeins karlmenn
sent keppa — konurnar luku
sinni heimsbikarkeppni númer
tvö i gær og eiga fri frant á
þriðjudag i næstu viku, en þá
byrjarkeppni hjá þeim i Cortina
d'Ampezzo á italiu.
Búist er við hörku-keppni hjá
körlunum um helgina — sér-
staklega þó i bruninu. Á siðustu
æfingunni i brautinni i gær náði
Franz Klanimer, Austurriki,
bestum timanum, og hann er
staöráðinn i því að sigra i þetta
sinn. t keppninni I Val d’Isera
um siðustu hclgi féll Klammer i
bruninu og hann verður að sigra
um þessa helgi til að eiga mögu-
leika gegn Gustavo Theoni,
ttaliu, sem er efstur i stiga-
keppninni eftir fyrstu keppnina.
Þessi mynd er tekin af honum i
Val d'Isere er hann sigraði i
stórsviginu og hann slær ekkert
af frekar en fyrri daginn.
Jón Hjaltalín skaut
Lugi í fyrsta sœtið!
— Á nú hvern stórleikinn ó fœtur öðrum og skorar mörg mörk í hverjum leik þó
að hans sé sérstaklega gœtt — og hefur hann nú skorað flest mörk Lugi
TBfflWW
saaam
TITCril ...... ______ ....
Jón Karlsson var með góða nýtingu I landsleiknum viö dani i gærkvöldi. Hann skautsex sinnum aðmarki og skoraði fimm mörk. t kvöld
leikur islenska liðið aftur við dani — i þetta sinn heitir það óopinber landsleikur — en hann er liður I 4ra liða keppni, sem lýkur á sunnudag-
inn. Taka þátt ihenni, auk islenska og danska landsliðsins, ungverska liðið Tatabanya og danska liðið Arhus KFUM....
„íslenska liðið betra
en heppnina vantaði"
— sagði Viðar Símonarson landsliðsþjólfari, um landsleik íslands og Danmerkur í
Randers í gœr. Þjóðirnar leika aftur í kvöld — en það er ekki opinber landsleikur
„Ég er að mörgu leyti ánægður
með útkomuna hjá okkur”, sagði
Viðar Simonarson landsliðsþjálf-
ari i viðtali við Visi i morgun um
landsleik dana og islendinga i
handknattleik i Randers i gær-
kvöldi. Danir sigruðu i leiknum
17:16 eftir að þeir höfðu haft yfir i
leikhléi 8:7.
„Mér finnst islenska liðið vera
méira sannfærandi á leikvellin-
um” sagði Viðar, „það notaði
breidd vallarins mjög vel og
leikflétturnar gengu oftast upp
hjá okkur. Boltanum var komið
inná linumennina, en þeim mis-
heppnaðist alltof oft að koma
boltanum i markið þó þeir væru
bara með markvörðinn fyrir
framan sig — og það gerði útslag--
ið i leiknum. Með aðeins betri
nýtingu hefðum við átt að sigra i
leiknum með 4 til 5 marka mun —
þvi að eins og ég sagði, þá misnot-
uðum við of mörg tækifæri.
Strákarnir voru nokkuð tauga-
óstyrkir i byrjun enda höfum við
æft tvisvar á dag — og þeir þvi
lika þreyttir. Danirnir náðu strax
upp þriggja marka forskoti sem
okkur tókst svo að minnka niður i
eitt mark i lok hálfleiksins.
Þessi munur hélst svo út allan
leikinn, danirnir voru tvö mörk
yfirilokin, litlu munaði að okkur
tækist þá að jafna metin.
Varnarleikurinn hefur stórlag-
ast, en þó eru homin nokkuð opin
ennþá — en það er hlutur sem við
verðum búnir að laga áður en
heim verður komið. Markvarslan
i leiknum var mjög góð og ekkert
hægt út á hana að setja, Óli Ben
stóð i markinu allan timann og
varði mjög vel. Jón Karlsson var
með bestu útkomuna 6 skot og 5
mörk.
Við leikum aftur við dani i
kvöld hér i Árhus, en það er ekki
opinber landsleikur. Á morgun
leikum við svo við Arhus KFUM
— og á sunnudaginn við ung-
versku meistarana Tatabania —
en heim koraum við á mánudag-
inn.
Mörk islenska liðsins i gær
skoruðu: Jón Karlsson6 (2) viti,
Axel Axelsson 3, Stefán Gunnars-
son 2, Gunnar Einarsson 2, Ólafur
H. Jónsson 2og þeir Árni Indriða-
son og Páll Björgvinsson eitt
mark hvor”, sagði Viðar og bað
um bestu kveðjur heim — og
sagði að öllum liði vel. — BB.
Tekið ó í Njarðvíkum
Sveitakeppni Judósambands
íslands verður háð i iþróttahúsinu
i Njarðvik i kvöld og hefst kl. 20.
Hér er um að ræða tslands-
meistaramót I sveitakeppni, en
það var i fyrsta sinn haldið i
fyrra, og sigraði þá A-sveit Judo-
félags Reykjavikur. Sveitakeppni
er mjög vinsælt keppnisform i
judo og á vaxandi athygli að
fagna hér á landi sem erlendis.
Keppt er i 5 manna sveitum, þ.e.
hver sveit er skipuð mönnum úr
öllum þyngdarflokkum.
Sú sveit sem sigrar á þessu
móti öðlast rétt til að taka þátt i
Evrópubikarkeppni meistara-
sveita á næsta ári.
S Tommv Galt — ég er 'N
buinn aft f á nóg af þér! Þú
mætirá skrifstofunni
klukkan sex....þafter /
/'•sjskipun — SKILIÐ! 'y/á
Galt gerir ekkert nema aö æsa þig
ogaöra upp, Alli. Þú veröur aö taka
bann i gegn!
Hann er lika góöur
leikmaöurþaö gerir
w gsfumuninrt!
Þá þaö
Þú ræöur!!
Tommy Galt. ungur en skapmikill
leikmaöur sem Milford FC hefurkeypt írá
Skotlandi er rekinn út af i sinum öörum Jeik
meö aöalliöinu. Framkvæmdastjórinn vill
tala viö hann eftir leikinn, im Tommv segist
ekki hafa tima til þess.
Ali hefur haft yfir fimm milljarða I laun frá
þvi að hann byrjaði að keppa.
Pétur Sigurðs-
son knattspyrnu-
maður Akureyrar
Hinn góðkunni knattspyrnumaður á Akur-
eyri — Pétur Sigurðsson — var i gær útnefnd-
ur „Knattspyrnumaður Akureyrar 1975” f
hófi á Akureyri i gær.
Það var í sumar sem gullsmiðirnir Sig-
try ggur ogPétur á Akureyri ákváðu að gefa
veglegan bikar til að veita „Knattspyrnu-
manni Akureyrar” ár hvert. Var kosin fimm
manna nefnd til að velja á milli kappanna —
tveir úr hvoru knattspyrnufélaginu á staðn-
um og annar gefandinn.
í gær voru svo úrslitin gerð kunn og urðu
þau þessi:
(Atkvæðafjöldi fyrir aftan)
Pétur Sigurösson, Þór 16
Þormóður Einarsson, KA 14
ArniGunnarsson, Þór 11
Haraldur Haraldsson, KA 10
Samúel Jóhannsson, Þór 7
Jón Stefánsson, KA 6
Pétur Sigurðsson, sem er 33 ára gamall,
lék lengi með ÍBA-liðinu. Fyrir þrem árum
hætti hann að leika, en byrjaði aftur f sumar
— eftir að ákveðið var að leggja bandalags-
liöið niður og tefla fram tveim liðum I 3.
deild, sem reyndar leika nú bæði i 2. deild
næsta ár.
Ali hefur haft
góðan pening
fyrir boxið!
t sjálfsævisögu Muhammad Ali, sem búist
er við að komi út eftir áramót —....hann þarf
ekki að treysta á jólabissnessinn eins og rit-
höfundar hér á landi.... segir þessi konungur
hnefaleikanna frá því hvað hann hafi haft f
tekjur frá þvi að hann gerðist atvinnumaður í
iþróttinni skömmu eftir ólympíuleikana í
Róm 1960.
Tölurnar sem hann gefur þar upp
eru: ....fimm milljarðar, þrjúhundruð og niu
milljónir fimm hundruð sextfu og fimm þús-
und krónur.
Að sjálfsögðu er þetta islenskar krónur, en
i dollurum er þetta um 30 milljónir. Fyrir þá
sem hafa gaman af tölum samsvarar þessi
upphæð — sem kóngurinn hefur fengið fyrir
að „lemja” aðra karla — áætlaður tekju-
skattur allra skattskyldra islendinga sam-
kvæmt frumvarpi til fjárlaga árið 1976!!
— klp —