Vísir - 22.12.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 22.12.1975, Blaðsíða 1
Mánudagur 22. desember 1975. Stálu þrem ávísanaheftum Brotist var inn i Reykjafell i Skipholti 35 aðfaranótt föstu- dags Þaðan var stolið 3 ávisanaheftum, og eru allar ávisanirnar stimplaðar með Reykjafell. Ávisanaheftin eru frá Iðnaðarbankanum, Háaleitis- útibúi, Landsbankanum, Austurbæjarútibúi og aðal- banka Verslunarbankans. Ef menn skyldu sjá ávisanir stimplaðar með Reykjafelli eru þeir vinsamlegast beðnir að gera rannsóknarlögreglunni viðvart. -EA. VIGLINAN AKVEÐIN Sjö jarðýtur tilbúnar að byrja á varnargörðum — Það er búið að á- kveða varnarlinur fyrir Reykjahlið og Kröflu og verið að fullvinna þær á teikniborðinu, sagði Guðjón Petersen hjá Al- mannavörnum við Visi i morgun. Fyrir norðan eru sjö jarðýtur tilbúnar að byrja að ryðja upp varnargörðum hvenær sem er. Það er Pálmi Pálmason, verk- fræðingur sem er að fullvinna þessar viglinur, en hann gegndi þvi starfi i Vestmannaeyjum á sinum tima. — Pálmi fór norður strax og gosið byrjaði til að undirbúa þetta. Hann kannaði svæðið og mældi það út með tilliti til þess hvar væri fljótlegast og best að byggja varnargarðana. Við skráðum allar jarðýtur þarna i nágrenninu, og þær eru sjö tals- ins. Stjórnendur þeirra eru til- búniraðbyrjahvenærsem þeir fá fyrirmæli um það. — Reykjahlið og Krafla yrðu i mestri hættu ef gos ykist og milli þeirra staða og gossins koma garðarniref þörf krefur. Þarna er nóg efni i varnargarða og aðstæð- ur góðar. Það er ekki talin ástæða til að hefjast handa strax, en það er semsagt allt tilbúið ef þörf krefur. —ÓT. MESTAR LÍKUR Á NÝJU GOSI NORÐAN VIÐ LEIRHNJÚK „Þetta tal um vænt- raunhæft. Sprungan anlegt gos i Þeista- liggur um Leirhnjúk reykjabungu er ekki sunnan frá, norður um j|P li íTT'fí U mk ’ rs”H| * Pjfjt 1 P!f i táí 81 n.ijf í ® 11 ;¥£ 1 T' K j : M Sveinbjörn Björnsson fylgist með linuriti sem skráir beint inn skjálftamælingar frá Valahnúk ofan viö Ilafnarfjörð. Linuritið sýndi allsnarpan kipp rétt þegar myndin var tekin I morgun, en ekki var búið að mæla styrkleika hans og staðsetningu, en nokkurn veginn var talið öruggt, að hann ætti upptök sin fyrir norðan. Ljósm. Jim. — Allt tal um gos í Þeista- reykjabungu óraunhœft segir Sveinbjörn Björnsson jarðeðlisfrœðingur Grjástykki, og allt norður i Kelduhverfi yfir þjóðveginn rétt vestan við Ásbyrgi. Af þessu svæði stendur Leir- hnjúkur hæstur i 550 metra hæð. Ef það opnast greið leið fyrir kvikuna á lægra svæði leitar hún fremur útrásar þar,” sagði Sveinbjörn Björnsson jarðeðlis- fræðingur hjá Raunvisinda- stofnun Háskólans i viðtali við Visi i morgun. „Við vorum að fá núna ná- kvæma aflestra af mælunum fyrir norðan, sem staðsettir eru m.a. i Kröflu, Reykjahlið og Skinnastað i Axarfirði, og af þeim má sjá að snörpustu kipp- irnir núna eiga upptök sin næst Skinnastað. Stærsti kippurinn mældist i gær laust fyrir eitt 4,5 og i morgun mældist annar 4,1. Það er ekki hægt að segja' fyr- ir um hvar gos verður eða hvenær, en likurnar benda til að það verði fremur á svæðinu norðan við Leirhnjúk. Þó eigum við alls ekki von á gosi norður i Axarfirði. Það sem við þurfum sérstak- lega að vakta eru hræringar á Mývatnssvæðinu sjálfu. 1 fyrri gosum opnaðist sprunga i Bjarnarflagi og hraunið rann niður að Reykjahlið. Það eina sem hefur komið fram þarna núna er sprunga sem myndaðist undan einu húsi i Kisilþorpunu. Likur eru á þvi að hugsanlegt gos norðan eða sunnan Leir- hnjúks gerði boð á undan sér, með snarpari jarðhræingum, en á þessu svæði eru hreyfingar á jarðskorpunni, raunar á óvenju- lega löngu svæði. Hér i húsinu fáum við aflestra af mælum á Reykjanessvæðinu, en mælarnir fyrir norðan sýna hræringarnar auðvitað ná- kvæmar, og skýrslur frá þeim fáum við simleiðis,” sagði Sveinbjörn Björnsson. —EB Víglinan hefur veriö ákveöin. Hér er Ólafur Hauksson, blaðamaður VIsis, að setja niður eina mælistikuna sem farið verður eftir við byggingu varnargaröa ef þörf krefur. Mynd: Bragi Guðmundsson. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, var að sjálfsögðu mættur. Hann fékk leirslettu I höfuðiö úr gignum i baksýn, en sakaði ekki (mynd BG) Hrikaleg lœtí — Ilúsið gekk i bylgjum og lætin voru hrikaleg, þegar við gengum inn núna rétt áðan, sagði Ólafur Hauksson, blaöa- maður VIsis, þegar hann talaði frá simstöðinni á Lindarbrekku I Kelduhverfi laust fyrir ellefu i morgun. —Ljósakrónur sveifluðust til og hlutir hrundu úr hillum og af borðum. Þetta er einn snarpasti kippurinn sem við höfum fund- ið. Vísir fékk upplýst hjá Raun- visindastofnun Háskólans að kippurinn hefði verið yfir fjögur stig á Richter-kvarða. — ÓT.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.