Vísir - 22.12.1975, Síða 3
VISIB Mánudagur 22. desember 1975.
Þessir fiskkassar Alliberts iikjast mjög þeim hugmyndum og skissum
sem islenskir aðilar sendu til þeirra.
Gjöf
til and-
legrar
neyslu
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
afhenti f gær gjafabréf fyrir
þremur málverkum til St.
Jósepssystra á Landakots-
spitaia frá sér og konu sinni.
Málverkin eru eftir Karl
Kvaran, og hefur þeim verið
komiðfyrir á göngum spitalans.
Dr. Gunnlaugur kvað þessa
gjöf vera þakklætisvott til systr-
anna fyrir unnin störf þeirra hér
og einnig sérstakar þakkir fyrir
þá umönnun sem móðir hans
hlaut á spitalanum.
Dr. Bjarni Jónsson yfirlæknir
þakkaði gjöfina fyrir hönd
systranna, og sagði hann m.a.
að hingað til hefðu gjafir þær
sem spitalanum hefðu borist
þjónað likamanum, en að þessu
sinni væri gjöfin fremur til and-
legrar neyslu. — EB.
Dr. Gunnlaugur Þóröar-
son afhendir priorinnunni
gjafabréfið fyrir framan
eitt af málverkunum.
Ljdsm. Jim.
OPNAST
MÖGULEIKAR
Á NÝRRI
FRAMLEIÐSLU
ÍSLENDINGA?
Það fyrirtæki sem mest hefur
framleitt af fiskkössum á Is-
landsmarkað er nú orðið gjald-
þrota. óvist er hvort framleiðsla
á fiskkössum þess heldur áfram.
Þessi spurning er áleitin fyrir
islendinga ekki sist fyrir þeirra
hluta sakir að möguleiki er á að
við gætum farið að framleiða
okkar eigin fiskkassa sjálfir.
Undirbúningsfélag fiskkassa
hf. heitir fyrirtæki sem hefur það
að markmiði að athuga mögu-
ieika á fiskkassaframleiðslu is-
lendinga sjálfra. Þetta fyrirtæki
hefur staðið I bréfaskiptum við
franska fyrirtækið Allibert. Þar á
meðal sent þeim út gögn og skiss-
ur um fiskkassa sem fullnægja
hugmyndum okkar.
í nýjasta hefti World Fishing er
lýst nýrri gerð fiskkassa sem eru
mjög áþekkir hugmyndum og
skissum islendinga. Það undir-
strikar það að hægt sé að fram-
leiða fiskkassa hér á landi.
Þessir fiskkassar sem Allibert
er farið að framleiða og reyndar
lika skissur þær sem islendingar
sendu þeim eru mun fullkomnari
en áður þekktar tegundir.
Þeir spara mikið pláss þvi þeir
geta fallið hver inn i annan. Og i
annan stað er afar auðvelt að
flytja þá til með vélarafli án þess
að nota vörupalla. — EKG
Ný sportvöruverslun
Ný sportvöruverslun hefur litið
dagsins Ijós i Breiðholti. Eigandi
hennar er Ingólfur óskarsson.
Breiðhyltingar þurfa þvi ekki
lengur að fara niður á Klappar-
stig vilji þeir gera verslun sina
við hann.
Auðsjáanlega verður þarnóg af
boltum til sölu, bæði vindlausum
og vindfylltum. Einum slikum
eru þeir að henda á milli sin
íngólfur og verslunarstjórinn
Þorbjöm Guðmundsson. Á milli
þeirra stendur Guðrún Hauks-
dóttir. — VS
Ljósmynd Jim
Nú má hlusta í Sesar
„Hljdmburðurinn hérna var
ekki ndgu góður áður. Nú á hann
hins vegar að vera eins og það
besta sem þekkist,” sögðu for-
ráðamenn diskóteksins Sesars á
blaðamannafundi i gær sem
þeir boðuðu til vegna uppsetn-
ingar á nýju þátalarakerfi.
Hátalararnir eru bandariskir
af Bose gerð, og er það tegund
sem vakið hefur aukna athygli
nú upp á siðkastið. Er styrkur
hátalaranna samtals um 500
Wött. Heimilistæki s.f. hafa um-
boð fyrir þessa hátalara og sáu
um innkaup á þeim.
Nú starfa þrir diskótekarar
hjá Sesar. Það eru þau Goði
Sveinsson sem jafnframt sér
um plötuinnkaup Erlendur
Magnússon og Hulda Jóseps-
dóttir. Sagði Goði að plötur til
diskóteksins væru keyptar i
miklum mæli frá New York og
Chicago. Einnig keyptu þeir
mikið af plötum frá Faco. Væri
spmvinnan við Faco mjög góð
og þeir afarhressir við að kaupa
inn plötur.
Sagðihann aðSesar spilaði oft
til reynslu plötur sem hefðu ekki
náð vinsældum i Bandarikjun-
um eða hér heima. Siðan hefði
Faco það til hliðsjónar i plötu-
pöntunum sinum hvernig þær
likuðu.
Aðaleigendur Sesars eru
Hákon Antonsson og Valur
Magnússon, og hefur hluthöfum
fækkað frá þvf að fyrir fyrirtæk-
ið var stofnað.
Staðurinn tekur um 420 manns
og hefur sætanýting verið mjög
góð. Kváðu diskótekararnir að
aðsóknin hefði aukist og hvað
mest i miðri viku. —EKG