Vísir - 22.12.1975, Síða 5

Vísir - 22.12.1975, Síða 5
Mánudagur 22. desember 1975. 5 Brot af samvisku heimsins Á svölunum Þuriður Guðniundsdóttir eigin útgáfa, 54 siður Þessi þriðja ljóðabók Þuriðar Guðmundsdóttur sýnir okkur inn i hugarheim nútimakonu sem finnur til vanmáttar gagn- vart ógnum lifs og samtima. I hljóðlátri hæversku sinni biður húnaðsérverði kennt að leika á hörpuna sem hún likir lifinu við: Kenndu mér að leika á þetta undarlega hljóðfæri Kenndu mér að finna fegursta tóninn Óskin er fróm, en þess sér engin merki að hún hafi ræst, andstæður lifsins og grimmd valda sárum undirtón i ljóðun- um, skáldkonan teflir gjarnan saman fegurð lifsins — oft á saklausu skeiði bernskunnar — en snögglega brjótast stað- reyndirnar inn i þennan heim og bitra tón hans, skyggja lit hans: Við vorum börn og báðum daginn um leikföng daginn sem brosti svo biturt og bar okkur blikandi sverð sin Skáldkonan deilir andlegum kjörum með svo margri nú- timamanneskju sem ekki finnur til samkenndar með kristni — ensaknar hins vegar trúarinnar sem hún hefur glatað við að fullorðnast og kynnast heimin- um: Það hefur fennt og falin eru spor hinna þriggja vitringa Svartur, stjörnulaus himinn og hugur þinn i hjálparvana leit að litlu fjárhúsi sem þér finnst þú hafir gist i fjarlægri bernsku Þuriður Guðmundsdöttir finnur til með heiminum og tjáir hugmynd sem menn orðuðu gjarnan hér áður fyrr: Ég er barn i heimi ótta og brot af samvisku þinni Það er stórt að lita á sig sem brot af samvisku heimsins og hafa ekki skipað sér i neinn hóp sem álitur sig hafa einkaleyfi á þeirri tilfinningu. Þuriður (iuðniuiidsdóttir 1 fáum ljóðum kemst skáld- konan nálægt þvi að brjóta niður afstöðuna: ég með von mina, samvisku, trúargeymdir og vel- vilja gagnvart þessum harða heimi — og tjáir þá mishljóminn heillegar, samlagast honum að nokkru leyti, dæmi um það er kvæði eins og Hús án glugga og Takmark, en það hljóðar svo: t heimi villu hungurs og efa er takmark þitt falið ferð um öræfi ókunnra nátta umlokið fjöllum þess dags er dregur þér lokum tómið úr krepptum hnefa Menn taki eftir þvi hvar takmarkiðfelstogaðþaðer tóm sem dagurinn dregur úr kreppt- um hnefanum. Þetta er heiðarleg og tónhrein bók gerð af listfimi sem hæfir stefjum og efni. Ef ég mætti óska mér einhvers um stefnu þróunar skáldkonunnar væri það helst að hún beraði stef sin meir og skerpti um leið and- stæðurnar innan ljóðanna, en ég veit að þetta eru markli'til orð, það sem mun vaxa verður að vaxa eftir sinum eigin lögmál- um. Þorvarður Helgason Ársdvöl erlendis UMSÓKNARFRESTUR um ársdvöl er- lendis ’76-’77 á vegum NEMENDA- SKIPTA KIRKJUNNAR rennur úr 30. desember n.k. Mörg lönd koma til greina. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á biskupsstofu, Klapparstig 27, Reykjavik. Simi 12236. Æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. ^fréttirnar vism MORRAHIJFM FRÁ HETTI, BORGARNESI RLÆÐIR ALLA NÝ SAIÐ*AÝJAR GERÐIR FÁST í KAUPFÉLAGINU OG í SÉRVERZLUNUM UM LAND ALLT Saumavélin, sem gerir alla saumavínnu einfalda, er NECCHI spor mögnuð lífi Fullkominn íslenzkur leiðarvisir með skýringamyndum NECCHI Fæst hjá kaupmönnum og Suðurlandsbraut 8 kaupfélögum víða um land Simi 8-46-70

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.