Vísir - 22.12.1975, Page 7
7
VISIR Mánudag
ur 22. desember 1975.
c
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
D
Fyrir utan skrifstofur OPEC I Vinarborg f gær. Einn af sendifuiltrúuin Kuwait, dr. Mohammed Nasseer, sést hér leiddur burt særöur á
öxl eftir skæruliöana.
SKÆRULIÐARNIR f OPEC-SKRÍFSTOFUNUM:
Fá að fljúga með gíslana
líklega til Alsírborgar
Taka með sér sendinefndir 13 OPEC-landa þar á meðal 9 eða 10 ráðherra
Stjórn Austurríkis lét i
nótt undan kröfum
skæruliðanna sem í gær
tóku hús á skrifstofum
OPEC (samtökum olíu-
söluríkja) í Vínarborg.
Skæruliðarnir fá að
fljúga frá Vín með helstu
olíumálaráðherra heims
fyrir gísla.
Bruno Kreisky kanslari
skýrði frá þessari ákvörðun
stjórnar sinnar eftir sjö stunda
viðræður við ræningjana i nótt
sem sendiráösritari Iraks i Vin
hafði milligöngu um.
Kreisky sagði að skæru-
liðarnir hefðu lofað að sleppa
gislunum um leiö og þeir væru
komnir á ákvörðunarstað.
Það var gert ráð fyrir að þeir
færu frá Schwechatflugvelli kl.
7 i morgun og leiöinni að likind-
um heitið til Alsir. Stungið var
upp á Alsir eftir að dr. Kreisky
hafði ráðfært sig við
Bouteflika, utanrikisráðherra
Alsir.
Grunur austurrisku lög-
reglunnar er sá að fyrirliði
skæruliðanna sé sá sami Carlos
eða „sjakalinn” frá Venezuela
sem lögregla fjölda landa hefur
leitað eftir þrjú morð, sem
framin voru i júni.
Er fundurinn búin?
Skæruliðarnir sex ein stúlka
þar á meðal, ruddust inn á fund
oliumálaráöherran.'i i gær-
morgun. Stóðu yfir umræður um
verölækkun á oliu. Hryðju-
verkamennirnir létu kúlunum
rigna úr hriðskotabyssum yfir
gangana og felldu tvo öryggis-
verði.
Blaðamenn sem biðu viö and-
dyrið frétta af ráöherrafundin-
um sáu skæruliðana ganga inn i
skrifstofurnar, án þess að átta
sig á hvað var á seyöi — „Þetta ‘
var unglegt fólk og bar iþrótta-
töskur. Einn þeirra vatt sér að
okkur og spurði, hvort
ráðherrafundurinn stæði ekki
enn yfir, en við jánkuðum þvi,”
mundi einn þeirra eftir á.
Blaðamennirnir horfðu á eftir
sexmenningunum inn i skrif-
stofuganginn, en andartaki
siðar heyrðu þeir skothrið.
Einn skæruliðanna fékk kúlu i
magann, og var íluttur hættu-
lega á sig kominn á sjúkrahús.
En skæruliðarnir gera það að
skilyrði að hann verði með
þeim i flugvélinni þegar þeir
fara og hafa heilbrigðisyfirvöld
beygt sig fyrir þeirri kröfu.
Helstu olíu-
ráöherrar
I skrifstofunum náðu skæru-
liöarnir 60-70 gislum á sitt vald.
Þar á meðal eru áhrifamiklir
fulltrúar landa sem ráða yfir
þrem fjórðu oliulinda heims.
Eins og Ahed Zaki Yamani,
oliumálaráðherra Saudi Arabiu,
Tayed Abdel-karim, oliumála-
ráðherra íraks, Ezzeddin
Mabrouk, oliumálaráðherra
Libýu, Belaid Abdessalem,
innanrikismálaráðherra Alsir,
Jamshid Amouzegar, innan-
rikisráðherra Irans, svo að
nokkrir séu nefndir.
Samkvæmt samkomulagi
skæruliðanna við yfirvöld
Austurrikis hafa þeir með sér i
flugvélinni sendinefndir OPEC-
landanna þrettán þar á meðal
niu eða tiu ráðherra, en sleppa
strax i Vin starfsfólki OPEC-
skrifstofanna.
Beint gegn
furstunum
Skæruliðarnir kalla sig
„fylkingararm úr byltingu
Araba”, .og virðist aðgerð
þeirra beint að hinum ihald-
samari, oliurikjum og fursta-
dæmum við oliuflóann. I orð-
sendingu þar sem þeir lögðu
fram kröfur sinar fordæmdu
þeir Israel og hófsamari
leiðtoga Arabalandanna,eins og
Anwar Sadat, Egyptalandsfor-
seta. Þessar fordæmingar voru
lesnár upp i útvarpi Austurrikis
á tveggja stunda fresti.
1 frétt frá Venezuela þar sem
vitnaö er i Hernandez Acosta
námamálaráðherra Venezuela,
en hann er á valdi skæru-
liöanna, segir að skæruliðarnir
hafi skipt gislunum i tvo hópa.
— I öðrum eru fulltrúar Saudi
Arabiu, Irans, Kuwait og fleiri
Arabalanda og þykir greinilegt,
að skæruliðunum er alveg sér-
staklega annt um þann gisla-
hóp.
Dr. Kreisky var fölur og
þreytulegur þegar hann i
morgun sagði blaðamönnum frá
ákvöröun sinni. — „Það var
erfiö ákvörðun, en mér finnst
hún sú rétta,” sagði hann.
Gislarnir hafa gengist inn á
að fara með skæruliðunum i
flugvélinni.
Ekki örlátur á
lif annarra
Kreisky var viðbúinn þvi að
þurfa að sæta gagnrýni fyrir
undanlátsemi Austurrikis and-
spænis nauðungarkostum
skæruliða. — „En maöur getur
ekki verið örlátur á lif
annarra,” sagði hann.
Þetta er i annað sinn á tveim
árum, sem kannslarinn setur
mannslifin ofar öðru i viðureign
við skæruliða. — 1 september
1973 lokaði hann flóttamanna-
hæli gyðinga i Auturriki til þess
að þyrma lifi fjögurra gisla i
löndum araba á flugvellinum i
Vin. Fengu skæruliðarnir einnig
þá að fara frjálsir ferða sinna
eftir að hafa sleppt gislunum.
Skæruliðarnir að þessu sinni
hótuðu að byrja á þvi að taka af
lifi gislana frá Iran. en siðan
skyldu fulltrúar Saudi Arabiu
fylgja á eftir ef kröfum þeirra
yrði ekki sinnt.
VILL SKERA UPP HEROR GEGN
HRYÐJUVERKAMÖNNUM
EINS OG FLUGRÆNINGJUM
Carlos Andres Peres, forseti
Venezúela, lét eftir sér hafa i
gærkvöldi að alþjóðasamkomu-
lag um aögerðir gegn hryðju-
verkamönnum væri eina leiðin til
að hindra atburði á borð við töku
OPEC-skrifstofanna I Vin í gær.
Meðal gfsla i skrifstofunum var
Valentin Hernandez Acosta,
námamálaráðherra Venezuela.
Peres forseti sagði við blaða-
jnenn i gærkvöldi að það rifjaðist
upp fyrir honum alheimssam-
komulagið sem gert var til að
sporna gegn ránum á flugvélum.
„Eftir að það samkomulag var
undirritað var endi bundinn á
flugrán á alþjóölegum vett-
vangi,” sagði hann. — „I minum
augum er timi kominn til svipaðs
samkomulags gegn hryðjuverka-
mönnum,” hélt hann áfram.
Forsetinn hefði eins getað bætt
þvi við að lengi voru sjóræningjar
plága á höfunum uns riki verald-
ar tóku höndum saman að útrýma
þeim.
Stýrir
sjak-
alinn
aðgerð-
inni í
Vín?
Sendiráösritari Iraks i Vin sem
hafði milligöngu i viðræðunum
við skæruiiðana i OPEC-skrif-
stofunum segir að fyrirliði skæru-
liðanna hafi kallast Carlos og tai-
að bæði ensku og frönsku.
Grunur austurrisku lögregl-
unnar er sá að þar sé að verki sá
Carlos frá Suður-Ameriku sem
lögregla flestra landa vesturálfu
hefur leitað frá þvi i júni i sumar.
„Sjakalinn”, Carlos Martinez,
eins og eitt margra nafngifta
hans hljómar. — Uppljóstrarar
frönsku lögreglunnar visuðu á
hann sem eitt af handbendum
arabiskra skæruliða. Þegar
lögreglumennirnir komu til að
handtaka hann i ibúð einni i
Paris, og höfðu i för með sér
uppljóstrarann, skaut Carios þá
til bana, og launaði svikaranum
meö kúlu i höfuðið.
Carlos Martinez sem skildi eftir
sig þrjá menn myrta i Paris þeg-
ar hann slapp úr höndum lögregl-
unnar hefur öðru nafni verið
kallaður „sjakalinn” eftir leigu-
morðingjanum I metsölubókinni
„Dagur sjakalans”.
Sendiráðsritarinn lýsir skæru-
liðaforingjanum semkaldrif juðum
en þó skapgoðum og hláturmild-
um i viðræðum
I blaðafréttum af flótta
„sjakalans” var frá þvi skýrt að
lögreglan hefði fundið i slóð hans
lista yfir þá sem Carlos hugsaði
sér fyrir fórnarlömb. A þeim lista
voru nöfn ýmissa mektarmanna,
þar á meðal Yamani fursta-oliu-
málaráðherra Saudi Arabiu, sem
nú er á valdi skæruliðanna.
Sjakalinn sást siöast i London i
júli, en gekk úr greipum bresku
lögreglunnar sem leitar hans
bæði til að framselja hann
frönsku lögreglunni vegna morð-
anna og vegna ólöglegra vopna
sem hann faldi i ibúð i London. —
Tvær vinkonur hans i London
voru fangelsaðar fyrir að fela
vopn og fölsuð vegabréf fyrir
Carlos. Þriðju vinkonu hans er,
leitað i Venezuela, heimalandi
sjakalans.