Vísir


Vísir - 22.12.1975, Qupperneq 11

Vísir - 22.12.1975, Qupperneq 11
11 Ekki tókst islenska landsliöinu i handknattleik að sigra það júgó- slavneska i siðari landsleik þjóð- anna sem fram fór á laugardag- inn i Lajugardalshöllinni. islenska liðið náði samt góðum leikkafla i leiknum — vann upp fimm marka forskot júgóslava, en lokakaflinn var slakur og júgóslavar skoruöu fimm siðustu mörk leiksins og sigruðu 25:20. Leikurinn var jafn í fyrstu, en siðan sigu júgóslavarnir á og i hálfleik höfðu þeir fimm marka forskot 11:16. 1 siðari hálfleik kom islenska liðið mjög ákveðið til leiks og náði þá góðum leikkafla — skoraði átta mörk gegn tveimur og náði að jafna 19:19 og 20:20 — en loka- kaflinn var slakur og júgó- slavarnir skoruðu fimm siðustu mörkin og lokatölurnar urðu 20:25 eins og áður segir. Islenska liðið var mun jafnara i þessum leik en i fyrri leiknum — Axel Axelsson, Ólafur H Jónsson, Stefán Gunnarsson og Björgvin Björgvinsson voru bestu mennliðs ins, en auk þeirra komust þeir Jón Karlsson og Ólafur Einarsson vel frá sinu. Júgóslavarnir virtust hafa takmarkaðan áhuga og virtust ekki leggja sig meira fram en nauðsynlegt var — góður leikkafli islenska liðsins i siðari hálfleik kom þeim samt greinilega á óvart í fyrsta sinn siðan 1933 — eða I 42 ár — léku tvær Evrópuþjóðir til úrsiita I David Cup keppninni i tennis, er Sviþjóð og Tékkoslóvakía mættust i Stokk- hólmi um helgina. Davis Cup er eins konar heimsmeistarakeppni i tennis, og taka þátt i henni flestar þjóðir heims, þar sem þessi iþrótt er leikin að einhverju ráði. Siðast þegar tvær Evrópuþjóðir komust i úrslit, voru það Frakkland og England — og sigruðu eng- lendingar þá 3:2. Það varö einnig lokatalan i og þeir máttu hafa sig alla við i lokin. Það sem fyrst og fremst gerði gæfumuninn var mark- varslan — hún var mjög góð hjá júgóslövunum allan leikinn, en sveiflukenndari hjá islenska lið- inu. Mörk íslands: Ólafur Einars- son 5 (2 viti), Jón Karlsson 5 (3), Axel Axelsson 3, Ólafur H Jóns- son 3, Páll Björgvinsson 2 og þeir Björgvin Björgvinsson og Friðrik Friðriksson eitt mark hvor. Markahæstur i júgóslavneska liðinu var Horvat með fimm mörk. Gunnar Einarsson hélt út til Þýskalands strax eftir fyrri leik- inn við júgóslavá i siðustu viku til að leika með liði sinu Göppingen gegn Milbertshofen. þessari keppni, og það voru sviar með sinn fræga Björn Borg i fararbroddi, sem fóru með sigur af hólmi. Keppnin á miili hans og tékkans Jan Kodes, sem er fyrrverandi Wimbledon meistari, var há- punktur keppninnar i gær. Sagði Björn Borg fyrir leikinn, að þetta væri mikilvægasti leikur, sém hann hefði leikið um dagana og sagðist vera staðráðinn i þvi að sigra. Við það stóð hann — sigraði með 6:4, 6:2 og 6:2 og tryggöi þar með Sviþjóð sigur I fyrsta sinn i þessari miklu keppni. —klp — Leikinn dæmdu norsku dómararnir, Larsen og Bolstad, þeir sömu og dæmdu fyrri leikinn og ekki verður annað sagt en þeir háfi nú verið mun liðhollari Is- lenska liðinu. — BB Björgvinsson hefur vinsælt viðfangsefni inna. Hér er hann á siðari leiknum — en ðsfjarri I þetta sinn. iinar. Var leikurinn háður á heima- velli Milbertshofen — i Miinchen — og var almennt búist við auð- veldum sigri heimaliðsins, sem var í öðru sæti í suðurriðlinum i 1. deild fyrir leikinn. En Gunnar Einarsson sá um að liðið tapaði þvi sæti, þvi að hann átti stórleik — skoraði 5 af 15 mörkum Göppingen! og hafði þó á sér „púka” allan siðari hálfleik- inn. Lauk leiknum með sigri Göppingen 15:12. Hann var einnig i hlutverki „púkans” þegar heimaliðið sótti — tók besta mann þess úr umferð, og gerði það svo vel, að sá skoraði ekki eitt einasta mark i leiknum. Var þetta i fyrsta sinn i mörg ár, sem þessi leikmaður hefur ekki skorað mark i leik. Var hann litið hrifinn af Gunnari eftir leikinn, en það voru aftur á móti aðdáend- ur Göppingen, en mikill fögnuður rikti yfir þessum sigri i Göpping- en i gær, enda hefur liðinu ekki vegnað sem best að undanförnu, og var þvi þetta kærkomin jóla- gjöf fyrir borgarbúa. — klp — BJÖRN BORG SÁ UM SIGUR SVÍÞJÓÐAR! Gunnar hetja FA Göppingen Skoraði 5 mörk og só um að besti maður Milbertshofen skoraði ekki eitt einasta mark Góður kafli en nœgði samt ekki íslenska liðið vann upp 5 marka mun júgóslava og jafnaði 19:19 en tapaði leiknum 25:20 AAeðal fallegra gjafavara sem við bjóðum eru spánskar styttur i miklu úrvali og á mjög góðu verði. Það er yður í hag að koma við hjá okkur. Jólaskreytingar og gjafavörur í miklu og fallegu úrvali OPIÐ TIL KL. 10 ÖLL KVÖLD TIL JÓLA i«i &ypÉ Hyasentu- laukar Kr. 200.- BLOMASKALI MICHAELSEN Hveragerði Sími 99-4225

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.