Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1925, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1925, Side 7
4. ofetóber 1925. LESBÓK M0RGUNBLAÐSTN9 7 Uonið eftir þestu eini Ennlenda fjelagl t*egar þjer ejð- og bruna- tryggið. Sfmi 542. Pósthólf 417 og 574. Simnafni i Insuirance. iröpun eftir útlendum fvrirmynd- um. Hvért er álit manna á hinum íslenska stíl? Til eru þeir menn, sem' halda að íslenskur stíll sje ekki til. En sá sem þekkir nokkuð til stíla- tegunda, þarf ekki annað en að sjá lítilfjörlegan smíðisgrip, til að ’geta greint hvort stílsmátinn er íslenskur eða ekki, enda eru út- lendingar sólgnir í muni, sem gerðir eru í íslenskum stíl og ein- mitt fyrir það, að þeir eru sjer- stakir og einkennilegir í þeirra augum. En þessi þjóðarment á fyrst og fremst að vera til fyrir þjóðina sjálfa og á að koma fram í sem flestum myndum á heimilunum. Ekki einungis í skrautmunum, heldur einnig í öllum húsbiinaði, húsgögnum, útsaum, vefnaði, borð búnaði o. fl. o. fl. Þá á íslenskur byggingarstíll vonandi fyrir höndum að rísa upp. Því þurfa allskonar smiðir og hannyrðakonur að læra sinn íslenska stílsmáta, og ætti þá hin þjóðlega menning í þeim grein- um srnátt og smátt að breiðast út á meðal fólksins. Að mínu áliti er íslenskur skurðlistarstíll eins auðkennilegur frá öðrum stíla- t.egundum, eins og íslenskar fer- skeyttlur frá öðrum skáldskap. En vitanlega þekkir sá ekki sjerein- kenni íslenskrar ferskeytlu, sem ekki þekkir annan skáldskap. Jeg álít að þetta sje eitt af því, sem þarf bráða lækningu hjer á landi, því að íslensku heimilin, bæði til sjávar og sveita sýna það átak- anlega, að þjóðin yfirleitt er bú- in að glata sinni gömlu menningu í þessa átt, en lifir á erlendri sníkjumenningu, sem ber rauna- legan vott um það stig, sem þjóð- in stendur á í þessu efni. -r- Jeg vil að endingu benda á það, segir Ríkarður, að ekkert ís- lenskt listaverk mun hafa öðlast aðra eins frægða erlendis, eins og útskoma kirkjuhurðin frá Val- þjófsstað, sem nú er geymd í „Oldnordisk Museum“ 1 Höfn. — Fáar munu þær bækur vera, sem fjalla nokkuð ítarlega um forn- norræna list, að hennar sje ekki getið í máli og myndum. SKRÍTLUR. Regnhlífin. Það var farið að rigna. Sigurði sýndist maðurinn, sem gekk á undan honum með útþanda regn- hlíf, vera Gunnar vinur hans. — Hann greikkaði því sporið til að ná honum, klappaði honum kunn- ingjalega á öxlina og sagði: — Láttu mig fá regnhlífina þá arns!

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.