Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1925, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1925, Blaðsíða 3
11. (yktóber 1925. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Ferð til Finnlands. Eftir Björn Gudmundsson kennara. Járnbrautarstöðin í Helsingfors. Ef'tir hinn fræga b.vggingameistarsl* Saarinen. Hinn sjerkennilegi stíll stingur í augun. „Ólafur helgi.“ Ólafur helgi („Hellig 01av“) átti að fara frá Kaupmannahöfn 1. ágúst kl. 10 f. m. För sú hafði verið auglýst löngu áður, og var stofnað til hennar aðallega vegna norræna kennaraþingsins í Hels- ingfors. Bennett’ Rejsebureau í Kauphiannaböfn efndi til farar- innar. Gefinn var köstur á fari fram og aftur og fæði allan tímann og umhirðu fyrir kr. 300, 410, 475, 500, 525 og 625 og 750, aðeins handa tveimur fapþegum hvort. Mismunur verðsins var aðallega fólginn .í stærð og viðhöfn svefn- klefanna, því öllum var heimilt að vera hvar sem var í skipinu á daginn, og matur samur fyrir alla. Olafur helgi er eign gufuskipa- fjelagsins ,Seandinavian-Ameriean Line‘ og er 10 þús. tonn að stærð og getur farið með 14 sjóm. hraða á klst. Gullfoss, sem vera mun um einn sjöundi af þessari stærð, myndi ekki sýnast stór við hlið hans, en í samanburði við stærstu línu-skipin, sem sum eru nær 60 þús. ton, myndi Ólafur sýnast smár líkt og Gullfoss hjá honum. Þetta er þó óvenjulega stór og góður farkostur hjer milli Norð- urlandanna, og hefir margan fýst að rej'na liann, því öll rúm urðu upptekin. Lagt af stað frá Höfn. Frá kl. 8 um morguninn voru þessir rúmlega 800 farþegar að þokast um borð. Það tók tíma að skoða farseðlana, atlmga og merkja öll vegabrjef. Stimamjúkir, hvítklæddir þjón- ar hjálpuðu farþegunum að bera pjönkurnar upp stigana (land- gangana), sem bæði voru brattir og langir, og síðan er á skipsfjöl k( m, að vísa á klefa og rúm. Fjöldi fólks var á hafnarbakk- anum og beið þess að klukkan yrði 10 og Ólafur legði af stað. Svo kom stundin, og hægt og há- tíðlega leið „hinn lielgi“ fánum skreyttur stafna rnilli út úr höfn- inni. Ótal myndtökumenn tyltu sjer upp hvar sem komist varð á landi, og fjöldinn fylgdi veifandi svo langt sem kómist varð. Öll vinstri hliðin á Ólafi moraði af veifandi, mislitum manngrúa. Á siglingu. Aldrei er víst skipalaust á Eyr- arsundi. Nokkuð var það, að nú moraði þar af öllum tegundum skipa, smáum og stórum, er stefndu í ýmsar áttir. Fögur er sigling um sundið, og nutum við nú veðurblíðunnar, hressandi liafgolu og indæls út- sýnis á þiljum uppi þennan fagra ágústmorgun. Lúðrasveit skipsins ljek við og við á ýmsum stöðum á skipinu til skemtunar. Legustól- ar og setustólar voru til afnota á öllum þiljum. Þótt borðsalir skipsins væru margir og rúmgóðir, rejmdust þeir samt of litlir, svo margir urðu að bíða næstu umferðar; var það all-löng bið um miðdag- inn, því þá voru rjettir þrír og ekki sem greiðust afgreiðsla hjá þjónunum, og ljetu þeir þó liönd- ur standa fram úr ermum. Ann- ars áttu þeir ekki sjö dagana sæla í þessari ferð, vesalings þjónarn- ir ;• svefninn 3—4 tímar, stundum alls enginn timi til miðdagsverð- ar, aðköll og aðfinningar, sem þeir tóku með mestu rósemd og jí fnaðargeði, en drykkjuskilding- arnir áttu að jafna yfir þetta alt. Það væri synd að segja, að matur hefði ekki verið bæði nógur og góður, enda held jeg að fæstir hafi enst til að setjast 6 sinnum að borðum, eins og ætlast var til. Má það frekar óhóf teljast og engum holt. Sviplítil landsýn. Klukkan um 5 síðdegis fórum við frain hjá Borgundarhólmi. — Þeim sem vanir eru að sjá fjöllin á Fróni rísa úr ægi, þykir „ ekki mikið til hæðanna koma á Borg- undarhólmi eða landsýnar yfir- leitt þar úr Eystrasalti; löndin verða, strax og nokkuð kemur frá landi, að ógnar tilkomulítilli rönd er aðeins eygist út við sjónhring- inn og oft hulin móðu. Meðfram strönd Sviþjóðar. Kl. 11 árdegis næsta dag, sem var sunnudagur, sigldum við inn í skerjagarð Svíþjóðar. Varla getur fegurri innsiglingu, leiðin liggur í ótal krókum, um örmjó sund víða, milli skógivaxinna eyja með fögrum snmarbý’lum og baðstöð- um. Þennan dag sólskin og sunn- anvindur. Mörg hundruð kapp- siglarar og lystisnekkjur, með há- um drifhvítum seglum liigðu leið sína um sundin. Það var gaman að sjá skipströllið okkar ösla með fullri ferð inn þessi þröngu sund,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.