Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1925, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1925, Qupperneq 1
LESÐÓK MORGUNBLAÐSINS. Trj^ggvi Garðarsson var á gangi út Melana fyrir sunnan Reykja- vík, fagra, kalda vetrarnótt. Hann var á seytjánda ári og sat í þriðja bekk Mentaskólans. Að baki hans lá bærinn í hljóð- nm svefni, en framundan drifhvít fannbreiða yfir jörðinni. Norður- ljósin flóðu um dimman, alstirnd- an himininn, iðuðu og bugðuðust í mjú'kum bylgjum, streymdu og köstuðust og lognðu í tryltum, þiigulum dansi. IJað var stillilogn, hreint og napurt veður, en gnýr i lofti eins og á undan stormi og organdi brimyigjiihljóð niður við Skerjaf jörð. Tryggvi gekk bægt og ljet hríf- ast af dýrð og hátíðleik nætur- innar. Augu hans urðu glaðvakandi, stór og undrandi, öll skynjan hans næm og frísk. Alt varð honum að nautn, jafnvel frostsvalinn á kinn- um hans .... og marrið í tárhrein- um snjónum, þegar hann steig til jarðar. Og þó var hrifning hans blandin óljósri löngun eftir enn sterkari áhrifum, enn dýpri lotn- ingu. Hann nam öðru hvoru stað- ar, lijelt niðri í sjer andanum, hlustaði eftir gnýnum í loftinu, horfði á eirðarlaus blossaköstin á himninum.... Kraftar stæltust til umbrota innra fyrir í sál hans, í eftirvæntingu og fögnuði.... sem smám saman urðu að heitri, sárri þrá eftir fróun — eftir hugsun- um, fögrum og djúpum........ Alt í einu brá hann augunum óþolinmóðlega til jarðar og hrað- aði göngunni. Hvern myndi gruna hvar hann nú væri staddur og í hvaða erind- um hann hefði farið að heiman svona seint! A morgun átti hann í fyrsta sinni á a*finni að halda ræðu. I’að er að segja fyrir áheyrendum. Hingað til hafði hann ekki talað nema yfir stokkum og steinum, e inhverstaðar langt fyrir utan bæinn, eða uppi á fjöllum á sumr- in, þegar hann var í sveitinni. í dag eftir tíma liafði hann komið að máli við sögukennara sinn. — A morgun eigum við að hafa kaflann um *frelsisstríð Grikkja, sagði hann.f bókinni er minst á það að Byron hafi tekið þátt í stríð- inu — en hver er þessi Byronf — Vitið þjer það ekki? spurði konnarinn. — Jú — jeg er nýbúinn að lesa bók um liann. Jeg meinti — ætli flestir í bekknum viti ekki lítið um Byron? — pað þykir mjer líklegt. Kannske þjer viljið segja okkur eitthvað um hann á morgun? — Það er einmitt það sem mig langaði til, sagði Tryggvi og herti upp hugann. Mætti jeg ekki halda stutta ræðu um Byron í tímanum a morgun? — Velkomið — ágætt! Þjer fá- ið 15 mínútnr og flytjið dálítinn fyrirlSstur um hann, sagði kenn- arinn og rjetti honum glaðlega hendina. pessar elskulegu undirtektir stigu Tryggva til hiifuðs eins og örvandi vín. Hann gekk heimleiðia í sjöunda himni, stikaði stórum og ýtti sjer áfram ineð stafnum, horfði á húsin og mennina með logandi augum undir hleyptum brúnum. Allir sem mættu honum hlutu að hugsa sem svo: Þarna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.