Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1926, Qupperneq 5
30. mai 1926.
LESBÓK MORQUNBLAÖSENS
5
búða þvrfti að úthluta hverri
sýslu.
Heimsókn Vestur-íslendinga.
Vitneskju þarf að afla um
það, hvað búast megi við að mik-
ið verði úr hinni fyrirhuguðu
heimsókn Vestur-íslendinga, og
imdirbúa það sem best, að
hún geti orðið þeim til sem mestr-
ar ánægju. Og kemur mjer þá til
hugar, að það, sem þeiin muni
þjrkja mest í varið, auk þátt-
tökunnar í sjálfri hátíðinni, væri,
að geta átt þess kost, að sjá sem
flestir átthaga sína og sem mest
af landinu, þann tíma, sem þeir
dvelja hjer.
Geri jeg því ráð fyrir, að þeim
mundi sennil. þykja mest um vert,
að geta farið sem víðast í bif-
reiðum um landið; enda er það
svo, að það besta, sem hjer cr
upp á að bjóða, er landið sjálft,
öræfin og hin frjálsa náttúra út
um sveitirnar.
Vegamál, Kaldidalur akfær.
o. fl.
Nú eru vegagerðir eitt af
nauðsynjamálum þjóðarinnar, og
hugsa jeg mjer því, að það ætti
að vera einn aðalliðurinn í mót-
töku Vestur-íslendinga, að hraða
'þeim sem mest; og er það þá
meðal annars sambandið við Borg
arfjörð, sem taka þyrfti til at-
hugnnar. Leiðirnar, sem um hefir
verið talað, er sveitaleiðin ann-
ars vegar og vegur um Uxahrygjjþ
og Lundareykjadal hins vegar. -I-
En bifreiðafær vegur báðar þess
ar leiðir mundi verða mjög dýr,
og óvíst, að vegagerðinni yrði lok-
ið í tæka tíð. Hygg jeg því, að
ástæða væri til að athuga, hversu
mikið það mundi kosta, að gera
akfært fyrir bifreiðar leiðina frá
Þingvöllum til Borgarfjarðar, um
Kaldadal. Húsafell og Reykholt.
jMikið af þessari leið er þannig,
að litiu mun þar þurfa til að
kosta, til þess að gera akfært.
En leiðm sjálf er ein af tiikomu-
mestu fjallvegum landsins.
Ef úr þessu gæti orðið, og vega
kerí'ið að öðrn leyti væri gert sem
fullkomnast, hugsa jeg mjer, að
verði Vestur-fslendingarnir svo
margir, að það taki því fyrir þá,
að leigja sjerstakt skip til farar-
innar, þá ættu þeir að koma með
bifreiðar sínar með sjer, tjöld og
svefnpoka. Gætu þeir þá ekið
fram og aftur um landið eftir
vild sinni, frjálsir og sjálfráðir
um það, að taka sjer náttstaði
þar, sem þeim þætti best henta,
án þess að óþægindi og vandræði
þyrftu að hljótast af, sakir fólks-
eklu og húsnæðisleysis í sveitun-
um. Hefi jeg átt tal um þetta við
nokkra Vestur-lslendinga, sem
lijer eru staddir, og lýst þeiin vel
á þessa fyrirætlun. Leyfi jeg
mjer því að skjóta þessu fram til
athugunar beggja megin hafs.
Hvert sýslufjelag sitt afmarkaða
svæði á Þingvöllum.
A Þingvöllum hugsa jeg mjer,
að úthluta ætti hverju sýslu- og
bæjarfjelagi ákveðinn stað handa
mönnum þaðan, til þess að reisa
þar tjöld sín. A sama hátt hugsa
jeg mjer, að alþingi og gestir
þess hafi einnig sinn ákveðinn
stað í þessu skyni, og eins Vestur-
Islendingar, og ennfremur að mót
tökunefndir, til þess að greiða
götu útlendinga, sem hingað
koma, fengju á sama hátt ákveð-
in svæði til umráða. Til þess að
taka á móti Dönum, skoða jeg
Dansk-ísl. fjelagið sjálfkjörið, og
eins Norðmenn, búsetta í Reykja-
vík, til þess að greiða götu Norð-
manna, er hingað kæmu o. s. frv.
Umhyggja fyrir almenningi.
Nefndir þær, sem tækju á móti
útlendingum og sýslu- og bæjar-
fjelög, hygg jeg að hagkvæmast
væri, að hefðu hvert í
sínu lagi allan veg og vanda af
kínu fólki, og semdu fyrir þess
nönd um nauðsjmlegar veitingar
því til handa, að svo miklu leyti,
sem einstaklingunum er ekki ætl-
að að nesta sig sjálfir. En vitan-
lega þyrfti yfirstjórnin að vera
í ráðum með, og aðstoða fram-
kvæmdarstjóra sýslanna, bæjar-
fjelaganna og nefndanna eftir
föngum, bæði um veruna á Þing-
völlum, og ferðirnar milli Reykja-
víkur og Þingvalla, og eins skemti
ferðir, er ástæða þætti til að
gera mönnum kost á að þjóðbá-
tíðinni lokinni.
Til þess að gera almenningi al-
staðar á landinu sem jafnjfreið-
Silkolin.
Munið eftir að biðja
kaupmann yðar um hina
alþektu „Silkolin“ ofn-
sveru. Engin ofnsverta
jafnast á við hana að gæð-
um!
Anör. J. Ðertelsen.
Sími 834. Austurstræti 17
ri ri n rflPrPC
i3TSiiSu3ruijC*3rulK^l31jUU4JuuOl3uwUn
ast að sækja þjóðhátíðina, þarf
að hafa fleiri skip í förum, svo
að sem minstur tími fari til sjó-
ferðanna fyrir hvern og einn, og
ættu þá þessir framkvæmdar-
stjórar að vera yfirstjórninni til
aðstoðar, til þess að greiða fyrir
því að innanhjeraðssamgöngurnar
og strandferðirnar standist sem
best á.
Almenningur sjái sem mest um
sig sjálfur.
Að mínu áliti er verkaskifting
í þá átt, sem jeg hefi talað Uin,
mjög áríðandi, með því að jeg lít
svo á, að til þess að þjóðliátíðin
fari vel úr hendi, útheimtist, að
almenningur útbúi sig sem mest
sjálfur, og fólkið sjái sjer að sem
allra mestu leyti sjálft fyrir vist-
um, svo að það geti notið útilífs-
ins og útilegunnar í sem fylstuin
mæli, í stað þess að hrekjast á
milli veitingaskála. Þetta hefir
auk þess þann höfuðkost í för
með sjer, að það gerir þjóðhátíð-
ina miklu ódýrari en ella.
Næði á Þingvöllum.
Að endingu vil jeg ekki ganga
fram hjá því, að Þingvallanefnd-
in gerir í áliti sínu ráð fyrir kvik-
myndasýningum á Þingvöllum
1930, oj? margskonar öðrum skemt
unum. Þetta er erlend tíska, til
þess að hafa saman fje, sem jeg
álít rjettara að gera ekki of mikið
að, svo að fólkinu gefist næði til
þess að s'kemta sjer sjálft og
finna að máli frændur og vini
hvaðanæfa af landinu og frá Vest
urheimi, því að mönnum verður
þaðminnisstæðara og meiri ánægja
að því eftir á, en kvikinyndum
og öðrum venjulegum bæjarlífs-
skemtunum.