Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1926, Page 1
LESBÓK
MORGUNBLAÐSINS.
Flóttamannaheimili.
Starfsemi Þjóðabandalagsins i Aleppo.
(Frá firjettaritara Morgunbl.)
Aleppo í maí.
Á fyrsta þjóðabandalagsfund-
inuin árið 1920, var meðal ann-
ars rætt um það, hvernig ætti að
hjálpa þeim konum og börnum
t'.r á hrakriingi eður í ánauð voru
í hei’naðarlöndunum, og þá aðal-
lega grískum og armenskum konum
er þúsundum saman höfðu verið
fluttar með valdi til tyrkureskra
landa. Var það afráðið að skipa
nefnd til þess að hjálpa þessuin
veslingum og formaður nefndar
þessarar er dönsk stúlka, Karen
Jeppe að nafni. Ilún hafði þá um
nokkur ár staðið fyrir hæli fyrir
armensk börn í Urfa. \'a»v l>að
stofnað af Þjóðverjanum dr.
Lcpsius, sem nú er nýlega látinn.
Var ungfrú Jeppe því gagnkunn-
ug meðferðinni á Armenum. Sett-
ist hún nú að í Aleppo í Sýrlandi,
sejn «r undir franskri „vernd' ‘,
eins og kunnugt er, og setti þar á
fót hæli fyrir armenskar konur.
og börn, sem tókst að flýja úr
ánauð Tyrikja. A þessum fjórum
áffum, sem hælið hefir starfað,
liefir það tekið á móti 1000 flótta-
mönnum.
Sennilega hefir engin þjóð í
heimi þolað aðrar eins hörmungar
og armenska þjóðin nú á síðari
árum. Fyrw- stríðið voru Armenar
miljónir og var mestur hluíi
þeirra í Tvrkjalöndum. Þriðjung-
urinn var chrepinn, eða sálaðist af
illri meðferð í herleiðingum. Nú
sem stendur býr nokkur hluti
hinna eftirlifandi í hinu litla ar-
menska lýðveldi Btrivan í Káka-
sus. Hinir eru á þrakningi um
allan heim. Fjöldi þeirra hefir
sest að hjer í Sýrlandi, eða um
90 þúsundir að því er menn ætla.
Sýrlendinga.” eru eldki nema
mitjón, og það er því enginn hægð
Karen Jeppe, Hedjim Pascha og
Misak nýlendustjóri.
arleikur fyrir þá að skjóta skjóls-
húsi yfir allan þennan fjölda, sjer
staklega vegna þess, að flótta-
mennirnir hafa aðallega sest að
í borgunum, en þar vair ástandið
mjög bágborið fyirir.
Sýrlendingar eru heldur ekkert
lirifnv- af þessum gestum sínum,
sem bii-ði eru af iiðrum þjóðflokki
en þeir sjálfir og liafa annan
átrúnað. Hefir þetta bitnað á Ar-
menum í óeirðunum síðustu, sjer-
staklega í DamaMkus. Var fjöidi
þe:,-ra drepinn þar, en aðrir flvðu
til Beyrut, sem fyr var þó futl
af flóttabði. Hjer í Aleppo hafa
engar óeirðir oi'ðið og samkomn-
l.igið er heldur gott meðal MÚ-
hameðsmanna og hinna loristnu.
í flóttamannabúðunum, sem eru
í rarininni sjerstök borg í útjaðri
Aleppo, eru nú um 17 þúsundir
manna. Hjer er engirin bygging-
arstíll, því að húsunum er hrófað
upp úr alskonar efni og víða hefst
fólk við í t.jaldaræflum. A þessitm
tím;l árs getur það verið viðun-
andi, en þegar rigningatíminn er,
á fólkið hivnnulega a*fi, því.að þá
flóir vatn í stríðum straumum cfl-
ir götnnum. ef götur skyldi kalla,
og fatnaður og sængurldæði er
rennandi blautt dögum og vilkum
saman.
Síðastliðinn vetur var atvinnu
levsi og með mesta móti og hung-
u." og þjáningar þjökuðu mjÖg að
flóttamönnunum. Til þess að bæta
úr sárustu nevðinni, hefir Karen
Jeppe í marga mánuði gefið 7—
800 börnum að borða. Jeg leit á
þá líknarstafsemi. Börnin komu í
flokkum, hvert með sína skál, og
fengu vænan skamt, af heitum
súrmjólkwvelling, sem þau borð-
uðu með góðri lyst og gengu síð-
an burt í sömu röð og þau komil.
Það vakti sjerstalklega eftirtekt
mína, hvað börnin voru hreinleg.
Er auðsjeð að fólkið er mjög
l>rifið, því að alstaðar er lirein-
legt inni, þó örbirgð sje í hverju
koti. Og betl þekkist þar eigi!
Jeg dáist að þessu fólki, sem ber
allar sínar raunir svo vel. Það
ætti skilið betri örliig.
Nokfera hjálp fær það þó víðs-
vegar að, og reynt er að bæta úr
atvinnuskortinum eftir því sem