Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1926, Síða 8
LÉSBÓK MORGtTNBLAÐSINS
Í. okt. ’2S.
Lesbókln ðrsgð
Hinn 4- okt. í fyrra kom út
fyrsta eintakið af Lesbók Mbl. —-
Eugin vissa var fyrir því. að á'
framliald gæti orðið á útkomu
liennar. Yar hún því eigi tölusett,
og svo w enn. Fimtíu eintök liafa
komið út síðan.
Þegar Lesbókar-útgáfan byrjaði,
var þetta ekki annað en tilraun,
sem enginn vissi kvernig myndi
reiða af. Það eitt var víst, áð út'
gáfan myndi kosta allmikið fjc,
svo mikið, að óvust vœri hvort
rekstur Morgunblaðsins leyfði að
gefa þann kaupbæti til lengdar.
Á liinn bóginn var mjög freistandi
að reyna þetta, því kaupendur
Morgunblaðsins taka því mjog
vcl, að lesmál sje sem mest
og fjölbreyttast í blöðum þeim,
sem út koma á sunnudögum. Þá
er mest næði til blaðalestws, og
njóta dagblöðin sín því best þá
daga.
Það kom fljótt í ljós, að Les-
bójtiu átti miklum vinsældum að
fagna. Reynt hcfir verið að hafa
efui hennar sem fjölbreyttast, að
liún flytji sem margvíslegastan
fróðleik, bæði úrvalsgreinar eftir
ágæta höfunda, innlenda og út"
lenda og alskonar firjettafróðleik.
Hefir tekist að gera efni hennar
syo fjölbreytt, að það mun eigi
of mælt, að Lesbókin sje Júð
skemtilegasta rit aflestrar sem nt
kemur hjer á landi. Lesbókin mun
og vera sá eigulegasti og mesti
kaupbæti, sem nokkurt íslenskt
blað hefw- gefið kaupendum sín-
um- Um 1000 dálka af lesmáli kef-
ir Lesbókin flutt og nál. 200 mynd-
ir, er fylt hafa 100 (Jálka rúm.
Hefir eigi verið horft í þann eða
annan kostnað, til þess að gera
Lesbókina scm best úr garði. öýni-
legt er, að lesendur Mbl. hafa
kunnað að meta þetta. —- Heík
áskrifendum blaðsins stórum fjölg*
að á þessu ári og er Morguuþlað-
ið nú útbrciddasta dagblað lands
ins. — Fjölmargir halda Les-
bókinni saman, enda þótt þeir
leggi það ekki í vana sinn að
halda saman öðrum blöðum.
Til þess að gera nokkra grein
fyrir, hve þessi fysrsti árgangur
Lesbókarinnar er fyrirferðamikill,
skal á það bent, að væri upplagið
alt sett í eiun hlaða, hverju ein-
taki raðað ofan á annað, væri hlað'
inn 90 metra hár. Hæð hlaðans í
hlutfalli við hæsta hús í bænum
sjest á jneðfylgjandi mynd.
Kaupbætir Morgnnblaðsins. Samanburðarmynd af hæsta lnisi í
Reykjavík og upplagi Lesbókarinnar síðan 4. okt. í íyrra.