Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1927, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1927, Blaðsíða 8
‘224 LESBÓK MORGUKBLAfiSlNS Bandaríkjum, seiu mestan áliu'ia liafa á flugferðum, kvað svo að orði nýlega, að loftið væri hjóð- brautin mesta, sem heimur hefði nokkru sinni þekt — vegur, sem þekur jörð alla, og aldrei þarfn- ast aðgerðar, Þau ummæli eru at- hyglisverð; ekki síst okkur íslend- ingum, sem samgöngur eru sjer- staklega erfiðar sökum strjálbýlis og staðhátta. En þótt engum dyljist, að oklv- ur standi næst, að ráða sem best og skjótast fram iir innanlaudsmal- um okkar í þessu sa^mbandi að komast að því með athugunum og tilraunum eins fljótt og kringum- stæður leyfa, hve heppilegar flug- ferðir myndu bygða milli á ís- landi, má okkur eigi gleymast, að við lifum eigi sjálfum oss alger- lega. Getum það eigi þó okkur svo fýsti. Smáþjóð erum við og fátæk að vísu, en samt hluti umheims- ins, leggjum okkar skerf beinlínis eða óbeinlínis til heimsþarfanna og heimsmálanna. Við erum hluthafar í fram- leiðslu annara landa, en leggjum einnig af mörkum okkar fram- leiðslu. Okkur ber fyrst að horfa inn á við, gæta þess að innanlands sje að öllu vel um hnúta búið; því verður eigi neitað. En okkur sæinir einnig að horfa út á við, verða okkur þess vitandi hvert hlutverk við fáum innti af hendi í alþjóða samstarfi, hvort sem um auknar samgöngur meðal þeirra eða önnur mál er að ræða. Þegar þess er gætt, er spurn- ingin: „verður ísland lendingar- staður á flugferðum milli Ameríku og Evrópu?“ ekki eins óviturleg eða fjarstæð og virðast mætti að fyrsta, áliti. Og aldrei hefir áhug- inn á flugferðum yfir Atlantshaf, frá Ameríku til Evrópu, eða Ev- rópu til Ameríku, verið meiri en einmitt nú. Á hálfsmánaðarfresti hefir 2 amerískum flugmönnum tekist að brúa Atlantshaf loftleiðina. Komst annar þeirra, sem kunnugt er til Parísar, en hinn til nágrennis Ber- línar. Þriðji flugmaðurinn, Byrd, heimskautsfari, kvað ætla að fljúga innan skamms til Parísar og þaðan aftur til New-Yorkborg- ar, svo að kalla í einni lotu. Svo langt er komið flugvjelagerð og flugferðum. Má búast við bætt- um og auknum samgöngum loft- leiðina í náinni framtíð. Lindbergh ofursti, er það afrek vann nýlega, að fljúga fyrstúr einsamall yfir Atlantshaf, spáir því, að áður mörg ár líða muni koinið á reglubundn- um verslunarloftferðum milli Ame- ríku og Evrópu, ferðum er íarnar verði á skömmum tíma og öruggar sjeu og vænlegar fjárhagslega. Þó gleymir hann eigi aðl benda á örðugleika þá, sem eru á vegum flugmannanna — sjerstaklega stormana og þokurnar. Hann veit. brýna þörf lendingarstaða. Legg- ur hann því til að bygðir sjeu á hafi úti lendingarflekar og skýli, að flugmenn geti þangað leitað er óhagstætt veður krefur og haldið þar kyrru fyrir uns veður batnar. Sjeu skýlin útbúin að loftskeytum, matvælum og öllum þægindum, fyrir flugmenn og farþega. Ur annari átt hefir komið fram bending í þessu samgöngumáli, er frekar snertir okkur Islendinga og, lcom mjer til að skrifa grein þessa. I ritgerð einni nýútkominni rit- ar William Mitchell hershöfðingi — hann var foringi flughers Bandaríkja á stríðsárunum — all- langt mál um flugferðir yfir At- lantshaf. Meðal annars farast liouum svo orð: „Nú sem stendur eru tvær tegundir flugvjela, gerð- ar hjer á landi, sjerstaklega hent- ugar til slíkra nota (þ. e. ílugs yfir Atlantshaf) — Fokker þrí- vjela flygillinn og Ford þrí-vjela- flygillinn. Eru hvorutveggja vjel- ar þessar öruggar injög sökum þess hve vel þær eru að orku búnar. Þær eru einnig þægilegar fyrir farþega, láta vel að stjórn, og gætu verið útbúnar með lientugum leiðsögutækjum. Flugvjelar þessar gætu farið frá New-Yorkborg til Parísar í þrem áfongum — fyrst frá New-York til Labrador, síðan frá Labrador til íslands, loks frá fslandi til Lundúna eða Parísar. (Leturbr. mín). Með þessu móti þyrftu far- þegar eigi að vera lengur í flug- vjelunuin en fimmtán klukkust. í einu, þar sem lendingarstaðirnir veittu þeim tækifæri til hvíldar og hressingar." Uppástunga þessi er mjög metkileg, þegar þess er gætt frá hverjum hún er sprottin. Hvern ár- angur hún ber er eigi gott að segja. Framtíðin ein sker úr því. iHitt er víst, að hún er okkur ís- lendingum atliyglisverð. Kæmist hugmynd þessi í framkvæmd mundi það þjóð vorri mikið gagn. Fjárhagslega mundi það mikill hagur. Með því yrði Islaud einnig lilekkur, sein saman knýtti tvær álfur heims. Mætti eigi vænta nýrra menningarstrauma af slíku sambandi ? Eflaust virðist sumum að hjer sje um dagdrauma tóma að ræða. Hver veit? Allar framfarir mann- kynsins eiga rót. sína að rekja til draumlanda þess. Og altaf eru nýir draumar að rætast. Því er oss vel að hafa vakandi auka á fram- gangi þessa máls. St. Olaf College, 14. júní 1927. Richard Beek. Brjefamerkl I. S. í. 1. S. 1. hefir látið gera mjög snotur brjefamerki, sem seld verða til ágóða fyrir væntanlega för íslenskra íþróttamanna á 01- ympiuleikaua og fyrir undirbún- ing að þjóðhátíðinni. Merki þessi kosta 10 og 20 aura, Er á öðru þeirra mynd af manni er fleygir sjer tií sunds, en á hinu mynd af íslenskri glímu. Merkin eru lit- prentuð og verða til prýðis á hverju brjefi. Fram og aftur yfir Atlantshaf. Nú hefir ínaður einn, Courtney að nafni, það í hyggju, að fljúga fram og aftur yfir Atlantshaf í einni ferð. Hann ætlar að koma við í Azoreyjum í vesturleið, en fljúga í einum áfanga austur yfir. líia'r6r<íaffcWntSml8ía h.f.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.