Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1927, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1927, Síða 1
Leiði 5ueins Pdlssonar 3 náttúrufrceðings og^lœknis Grein þá, sem lijer fer á eftir, um leiði Sveins Pálssonar, hefir Gísli Sveinsson sýslumaður í Yík sent mjer. Þessi skýrsla Hans er svo merkileg og að ýmsu leyti lær- dómsrík, að margur mun hafa gott af að lesa hana. Þessi frásaga um leiði Sveins er eitt af mörgum dæmum um það, hve tómlátir vjer íslendingar erum í því, að varð- veita það, sem orðið getur til minningar um vora bestu menn, sem varið hafa kröftum sínum þjóð vorri til sæmdar. í niðurlagi greinarinnar felast einnig hollar bendingar til þeirra manna, sem ötulast ganga fram í því að sljetta yfir forna grafreiti og eyðileggja eða flytja burtu forna legsteina. í stað þess að vernda þá á þeim stöðum, þar sem forfeður vorir hafa ætlað þeim að standa. Frásögn Gísla sýslumanns er á þessa leið: Menn hafa um hríð haldið, að leiði eða legstað Sveins Pálssonar læknis og náttúrufræðings væri nú hvergi að finna á tilvísanlegum stað, í hinum gamla Reyniskirkju- garði. Sá garður var lagður niður til fulls 1896—’7, er Reyniskirkja ,var flutt og bygð að nýju (1896) og nýr garður bygður þar hjá. Gamli garðurinn var þá sljettaður út og gerður að túni. Þótti mjer ilt til þess að vita, þegar jeg kom hingað í sýsluna aftur og settist að í Mýrdalnum (Yíkurkauptúni), Eftir Guöm. B. Bárðarson Sveinn Pálsson. "II ■ jm » fc ef týndur væri með öllu sá stað- ur, og þó ekki lengra um liðið. Gerði jeg tilramiir til þess að komast að betri niðurstöðu og heti nú loks tekist að finna leiðið, svo 'að fullvíst þykir. Ennþá sjer um- merki gamla kirlcjugarðsins og ýmsra lciða þar, ef vel er að gáð. Ennþá lifir gamalt fólk hjer, sem nokkuð getur um þetta sagt og tilnefnt legstaði í gamla kirkju garðinum. Spurnir hefi jeg haft af því, á ýmsa vegu, og notið þar góðrar aðstoðar Eiríks kennara Sverrissonar. Minnugastur allra eldri marina og kunnugastur þess- um efnum er Vigfús bóndi Brands- son í Reynishjáleigu, enda er býli hans aðeins nokkra faðma frá ganjla garðinum; hann hefir og um langan aldur verið hringjari í JiU Reyniskirkju og verið viðstaddur hverja einustu jarðarför (í nýja kirkjugarðinum) og því fylgst betur incð í öllu slíku en sjálfsagt allir aðrir hjer. Hefir liann gefið mjer svohljóðandi skýrslu, skrif- lega, um leiði Sveins Pálssonar: „RÖk þau, sem jeg undirrit* aður get fært fyrir því, hvur nú sje að finna leiði Sveius læknis Pálssonar frá Suður-Vík, sem andaðist 24. apríl 1840 og graf- inn var sunnan megin við sálu- hlið hinnar foruu Reyniskirkju, eru þessi: Amma mín, Margrjet Brands- dóttir, sem talin vaP skýr og minnug kona, flutti hingað frá Drangshlíð undir Eyjafjöllum 25 ára að aldri, giftist hjer manni sínmn, Einar Eiríkssyni og bjó hjer í Reynishjáleigu, til þess er hún misti mann sinn 1846. Upp frá því dvaldi hún lijer alla æfi til dauðadags og andaðist hjer 89 ára gömul 15. febr. 1884. Jeg er fæddur 24. febr. 1870. Þegar jeg var 10—11 éra (um 1880), var jarðsett að Reyni Guðrún Sveinsdóttir læknis Páls sonar, frá Reynistað. Man jeg enn glögt þá jarðarför. Sagði Margrjet amma mín mjer þá, að Guðrún væri jörðuð í leiði föður hennar, Svein; læknis Pálssonar, sem þá hefir verið 40 ára og vallgróið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.