Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1928, Page 8
40
LESBÓK MOBGUNBLAÐSINS
V.
Neitarðu að hvítu klæðin
klæði það best er þú unnir?
Manst’ ei að fegurstu fræðin
fjekstu — en ekki kunnir?
Óttast’ ef inn blæðir æðin
að ómar þíns lífs verði ’ of grunnir ?
Gleymast þau krafta-kvæðin
ef kveikir vors lífs eru brunnir?
YL
I iiiiniiinga rökkur-móðu
ev mynd er vjer gleymnm eigi,
og bíðum, sem börnin góðu
uns birtir af vaxandi degi. —
Vjer leitum í heilagri lotning
og ljóma sjáum í spori
kveðju frá dagsins drotning
— dögun af hækkandi vori.
J. M. E.
Kvikmyndir teknar f ram yfir
sjónleika og söngskemtanir.
Sönghöllum og leikhúsum breytt
í kvikmyndahús.
Pyrir ófriðinn voru sönghallirn-
ar lang-fjölsóttustu skemtistaðirn-
ir á Englandi, en nú eru dagar
þeirra taldir. Þeim fækkar óðum
og verða að þoka fyrir kvikmynda
liúsum og danssölum. Nú eru á
döfinni ennþá stórfeldari breyt-
ingar' í þessa átt en áður hafa
þekst. Gulliver-fjelagið í London
ætlar að selja hinar alkunnu söng-
hallir sínar fyrir 5 milj. sterlings-
punda. Kaupandinn er Sir Arthur
Gibbons og er tilætlun hans að
breyta þeim í gríðarstór kvik-
myndahús, þa'r sem sýna á kvik-
myndir í stórum stíl.
Sagt er, að sama fjelag hafi í
hyggju að kaupa hið mikla Palace
leikhús og gera það einnig að
kvikmyndahúsi. Það var upphaf-
lega bygt fyrir söngleika. Loks
er í ráði að selja auðmanninum
Schlesinger frá Suður-Afríku og
fjelögum hans 9 sönghallir og
kvikmyndaleikhús í London.
Þessi nýja stefua í skemtanalífi
Englendinga, er eftirtektarvert
tímanna tákn, sem búast má við,
að breiðist víðar ixt. Breytingar
þessar hafa í för með sjer atvinUU-
leysi fjölda manna, sem við leik-
húsin hafa starfað; virðist þó eklti
luega á það bæta.
Mussolini. Páir menn í heimi munu vera eins önnum kafnir og
Mussolini. En hann veit það, að því aðeins getur hann afkastað mik-
illi andlegri vinnu, að hann gæti heilsu sinnar. Hann ríður því út sjer
til hressingar og skemtunar á hverjum morgui og lætut* reiðhestinn
spretta óspart úr spori og hlaupa yfir torfærur og girðingar, eins og
sjá má hjer á myndinni.
Smælki. Skákþrautir.
Það heíir mjög lengi staðið til
að bjarga tveimur skipum, sem
sukku á dögum Caligulu keisara,
af botni Nemi-vatnsins. Það er
kunnugt, að þau höfðu mikla og
dýrmæta fjársjóði að geyma,
myndastyttur, skrautgripi, gim-
steina o. m. fl. Skipin eru á 12
metra dýpi, og þó að 2000 ár sjeu
bráðum liðin síðan þau sukku,
liafa þau haldist svo vel, að enn
ée hægt að ná þeim upp í heilu
lagi. Allan þennan tíma hefiir
ekkert orðið úr björguninni, en nú
hefir Mussolini skrifað undir samn-
ing við 5 fjelög, sem hafa tekist
á hendur að ná stærra skipinu upp
endurgjaldslaust af hollustu við
„il duce.“
Til þess að ljetta björgunarstarf-
ið á að dæla uokkuð úr Nemi-vatn-
inu eftir gamalli rómverskíri vatns-
leiðslu yfir í Alban vatnið, sem
liggur nokkru lægra og er skamt
frá.
íaa.foldarfrentamlSj» h.f.
Eftir H. Hafstein.
abcdefgh
Hvítt leikur á mátar í 2. leik.
L a u s n
á skákþraut II.
1. Bb8—d6 Ke6xd6
2. Dg5—d5 Re7Xd5
3. Rf6—e4 mát
1...... Ke6—f7
2. He8—f8 Kf7Xf8
3. Dgo—g8 mát