Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1928, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1928, Blaðsíða 6
78____ - LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 200 miljón ára. Fyrir skemst.n fanst í Wanvichshire í Englandi beinagrind af einu þeirra kynjadýra, sem iifðu á jörðinni a júra- tímabilinu, og menn nefna Plesiosaurus. Forstjóri náttúrugripa- safn Breta, Swinton prófessor, álítur að beinagrind þessi sje 200 miljóna ára gömul. — Hjer birtis mynd af beinagrind þessari.Hefir hún geymst alveg furðulega vel, er lítið sködduð og allar tönnur heilar í skoltunum. Hiifuðið hefirverið lítið og þríhyrnt, skallinn nokkuð breiður og trjóna fram úr Þrjú augu hefir dýrið haf't, eitt í miðju enni. Dýr þetta hefir aðallega lifað í sjó. beinlínis, svaraði hann vandræða- lega. —• Jæja, blessaður vertu. Farðu með henni hvert á land, sem þú vilt, og góða skemtun. Sje þig á morgun.-------- Jeg fór heim og hugsaði, hvort alt væri að snúast við á þessum degi. Fyrst var það nvi tóbaksleys- ið og leiðindin, svo kom þessi píla- grímur lirifninganna eins og þruma úr heiðskíru lofti með ci- garettur, fjekk hjá mjer ástakvæði ti! stúlku, sem jeg hafði aldrei sjeð nje heyrt, og að lokum rakst jeg svo á siðferðispóstulann hann Jóhann, sem var að fara í bíó með stúlku. Jeg kveikti mjer í cigarettu og for að Jesa The double traitor eft- ir Oppenheim, en þegar jeg var lcominn að því, er þau Anna og Norgate horfðust innilega í augu og töluðu í hálfum hljóðum, var barið að dyrum. — Hvaða bölvað ónæði er þetta, hugsaði jeg og opnaði hurðina. TJti fyrir stóð ung stúlka. Jeg kæri mig ekki um að lýsa henni nánar, en hún var ansi lagleg og bauð af sjer góðan þokka. Jeg reyndi árangurslaust að giska á, hvaða erindi híin ætti til mín. — Eruð þjer Gunnar Bjarnason frá Hvalvík ?, spurði hún. — Já, viljið þjer ekki lcoma inn og fá yður sæti? Jú, hún þáði það. — Jeg heiti Guðrún Helgadóttir, sagði hún. Og eins og þjer sjáið hefi jeg orðið við ósk yðar. — Ósk minniT endurtók jeg og glápti á hana steinhissa. —- Já, um að koma til yðar í kvöld, sagði hún hálfgletnislega. — Koma til mín í kvöld? sagði jeg og klóraði mjer í höfðinu. — Fyrirgefið fröken, en hjer er um einhvern misskilning að ræða. — Voruð þjer þá bara að gera grín að mjer? sagði hún lágt, og leit niður fyrir sig. Það er ekki ein báran stök fyrir mjer á þessum drottins degi, hugs- aði jeg og kveikti mjer í eigar- ettu. Fari bölvað, ef jeg sltil nokk- urn skapaðan hlut í þessu. Það er best að ganga beint til verks, og komast að kjarna málsins. tr- Segið mjer hreinskilnislega, hversvegna datt yður í liug að koma hingað? spurði jeg stúlk- una. — Af því að þjer sögðust vilja óska að jeg yrði hjá yður í kvöld, svaraði hún, án þess að líta upp. Nú rann skilningsljósið upp fyr- ir mjer eins og kveikt væri á hundrað kerta rafmagnsperu. — Stúlkan var Gunna, piltagullið, sem ungi maðurinn elskaði. Jeg hafði ort fyrir hann kvæði til hennar og skrifað nafnið mitt und- ir það af gömlum vana. Svo hafði hvorugur okkar athugað það neitt, en hann smelti kvæðinu í umslag og sendi það samstundis. Afleið- ingin var auðvitað sú, að Gunna fjekk ástkvæði í pósti með nafninu mínu undir, þar sem jeg ljet í ljósi þá ósk, að hún yrði hjá mjer í kvöld. — Og nú var hún komin. Veslings ungi maðurinn, sem vildi eiga Gunnu, hugsaði jeg með sjálfum mjer. Nú gengur hann um gólf heima hjá sjer eða úti á göt- unni og brennur í skinninu af ást og óþolinmæði, en stúlkam er hjer, heldur að jeg hafi beðið sig að koma. Astandið er ískyggilegt, eins og útgerðarmenn segja, m. ö. o. alt í grænum sjó. En hvað sem er unr það, þó að illa liti út í bili með allan þennan misskilning um mannaskífti, þá fór alt vel á endanum. Mig dauð- iangar til að segja nánar, frá öll- um smáatvikum, en jeg hefi iofað Gunnu því, upp á mína æru og trú, að lofa engum að vita neitt meira að sinni. Nú kynni einhver að spyrja, hversvegna jeg hafi lofað þessu. Það er ofur eðliÍegt. Við Gunna erum trúlofuð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.