Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1929, Page 8
40
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hálmganga.
Páll Stefánsson og Jósef S. Hún-
fjörð þreyttu kveðskaparlist í
Reykjavík 19. jan. 1929.
Kappar snjallir kváðust á
kvöld í Bárusalnum.
Aðra fremri euginn sá
or'ðsins beita falnum.
Yaskir brugðu vigri máls,
varð ei sjeð á milli.
Báðir surfu brand til stáls:
—• Báðir orktu’ af snilli.
Páll þar fyrsta höggið hjó
hólms í þröngum garði,
skjóminn eins og fjöður fló
fyr en auga varði.
Húnfjörð æsti hjörvaþing,
hóf til varnar naðinn,
ítrum greiddi andatæðmg
annað högg í staðinn.
Málfar Páls var mjúkt sem dúnn,
markviss hjör og beittur, —
hinn sem byrstur bjarnarhúnn,
bragðakænn og steyttur.
Fjellu þjettan orð við orð
— öllum skeytum svarað —
eins og þegar borð við borð
best í súð er skarað.
Yið mun brugðið beggja rögg,
bi-ýnan engan svafði,
jafnt af báðum snerran snögg
snilli andans krafði.
Óp og klapp til enda stóð
yfir kvæðablandi,
þar var enginn þings á slóð
þögull áhorfandi.
Eftir langvint stuðlastríð
stefja ljetti rokum,
sigurfaldin hróðrarhríð
hneig að málalokum.
Orðstír góður aldrei deyr,
aldurdaga stendur.
Síðast greppar tignir tveir
tókust fast í hendur.
Steinn Sigurðsson.
ía&foldarprentsmlðja h.f.
Smælki.
Æfilöng tryg'ð. Ceeily Noitoav
hefir kona heitið og átti heima í
Cork í írlandi. Fimtán ára trúlof-
aðist hún 19 ára gömlum póst-
manni, sem John Derfort hjet og
hún sagði við hann: „Farðu út
í heiminn og leitaðu þjer fjár, jeg
skal bíða eftir þjer þangað til þú
sækir mig.“ Hann fór, en gleymdi
fljótt kærustu sinni og svo kom að
því að hann giftist annari. Á brúð-
kaupsdaginn sinn fjekk hann brjef
irá Cecily og þar stóð eins og vant
var: „Jeg bíð altaf eftir því að
þú komir að sækja mig.“ — Eftir
nokkur ár misti John konu sína
og var ekkjumaður í 25 ár. í des-
ember dó hann. Þegar Cecily
frjetti lát. hans, sá hún að von-
laust var að bíða lengur, svo að
hún drap sig á eitri. Hún hafði þá
beðið eftir honum í 45 ár.
Foch marskálkur
yfirhershöfðingi Frakka hefir leg-
i< alvarlega veikur að undanförnu.
Hann: Hvað munduð þjer segja
ef jeg sendi yður koss af fingri?
Hún: Að þjer sjeuð sá latasti
maður, sem jeg þekki!
í Stokkhólmi voru um 480 þús.
íbúa' núna um áramótin. Hefir
borgarbúum fjölgað um 10.463 ár-
ið sem leið.
Pappír úr maís. í Bandaríkjun-
um er nú farið að nota í blöð og
tímarit pappír, sem búinn er tii úr
maísstönglum. Er hann talinn jafn
góður og pappír gerður úr trjá-
graut, fult svo hvítur og tekur vel
við svertu. En þessi pappír er' mik-
ið ódýrari en annar pappír, vegna
þess að maísstengur hafa verið
taldar verðlausar fram að þessu.
Verksmiðjan, sem býr til þennan
nýja pappír, lieitir „Kalamazoo
Vegetable Parchment Paper' Co.“
Miljónamæringum fjölgar stöð-
ugt. í Bandaríkjimum. Árið 1914
voru þar 7000 miljónamæringar,
en 1928 voru þar 40 þús. miljóna-
mæringar.
— Skoðanir kvenna eru hreinni
en skoðanir karlmanna.
— Það er auðvitað vegna þess
að þær skifta oftar um skoðun.
Hann.- Ef þjer viljið segja mjer
símanúmerið yðar, þá skal jeg
hringja til yðar á morgun.
Hún : Það stendur í símaskránni.
Hann: En livað heitið þjer þá?
Hún: Það stendur líka í síma-
skránni.
Skákþrantir.
28.
Eftir Hannes Hafstein.
Hvítt leikur og mátar í 2. leik.
Lausn á skákþraut 27.
1. Hc 4—a 4 Kb 3 x a 4
2. Kd 4—-c 4 a 3—a 2
3. He 2 x a 2 mát.
1 a3—a 2
2. Ha 4 x a 2 eitthvað
3. He 2—b 2 mát.