Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1931, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1931, Blaðsíða 5
LESBÓK 1Í0RGUNBLAÐ8INS 167 Jörnndsson frá Hrísey, sonur hins alkunna „hákarla-Jörundar“, eins ■og hann var venjulega kallaður. En skipshöfnin var nær eingöngu ungir og framgjarnir menn, sem ljetu sjer ekkert fyrir brjósti brenna, og hikuðu ekki við að leggja út í ófæru. Nú var ákveðið að sigla til Eyjafjarðar; „Erik“ fór þá á seglum því að ekki var nein vjel í hónum. Var þá norðaustan drif, rnikil alda og kafþoka. Er við höfðum skamt siglt, rák- umst við á dauðan hval á reki. Hann var 40 álna langur og digur ao því skapi. Vildu nú allir ólmir ná í hvalinn, og þar sem ungir og framgjarnir inenn eru saman komnir gætir að jafnaði lítt for- sjálni, því að áhuginn ber hana ofurliði. Svo fór líjer. Vjer rukum í það að setja skipsbátinn á flot, en veður og sjór var svo, að slíkt mundi talin fífldirfska nú á dög- um. Þrátt fyrir alt heppnaðist oss þó að koma bátnum óbrotnum fyrir borð og komast í hann. — Rerum vjer nú að hvalnum og eft- ir mikið erfiði og lífshættu tókst oss að vefja járnfestum um sporð- inn á honum. Við þær bundum vjer 100 faðma langan kaðal og rerum síðan að ,,Erik“ aftur. — Tókst oss að komast þar slysalaust um borð, draga bátinn upp á þilj- ur og festa kaðlinum, svo að örugt þótti. Voru þá segl undin upp og stefnt vestur flóann, með hval- inn í eftirdragi. Var hann nokkuð þungur og gekk því ekki mikið þótt byr væri nógur í byrjun. Ljet báturinn illa að stjórn og reyndi stórum á hann. Ut af Mán- aréyjum fengum vjer stórt áfall og hjeldu þá flestir að öllu væri lokið, „Erik“ mundi sökkva þar og taka óss alla með sjer í hina votu gröf. Þá vildu sumir að höggvið væri á kaðalinn sem hjelt hvalnum, en aðrir voru á móti því — vildu fram í rauðan dauð- ann halda í hvalinn — og þeir rjeðu. En það var guðs mildi að vjer skyldum ekki allir farast þama. Mörg önnur áföll fengum vjer áður en vjer næðum Eyjafirði, en ekkert jafn hart og þetta. Á efitr sáum vjer líka, að vjer höfðum farið klaufalega að ráði okkar, ekki haft nógu langan tauminn á hvalnum; reyndi því meira á bát- inn er þörf var á, og það verð jeg að segja, að það áttum vjer drifinu að þakka, þótt það á hinn bóginn væri ægilegt, að vjer náð- um Eyjafirði. Nú er skamt eftir af þessari sögu. Þegar vjer komum inn í Eyjafjörð tók að lægja, og er vjer komum að Hrólfsskeri var byrinn þrotinn og komumst ekki lengra. En þá voru fengnir margir ára- bátar til þess að taka við hvalnum og reru þeir hann inn til Syðsta- bæjar í Hrísey. Þar var hvalurinn skorinn. Fengurinn var minni en vjer hugðum, því að spikið á honum var orðið skemt, en rengi og þvesti var þó óskemt. Þetta er aðeins ein af þúsundum sagna úr sjómannalífi Islendinga. Hún rifjaðist alt í einu upp fyrir mjer þegar jeg gekk hjerna niður á hafnarbakkann og ætlaði að virða fyrir mjer útsýnið og horfa á sjóinn — og sá þá bát, sem jeg þóttist kannast við. Jeg stakk við fótum, horfði lengi á hann, og spurði svo mann, sem fram hjá gekk hvaða bátur þetta væri. — „Erik, vjelbátur frá Akureyri“, sagði hann. 0g í sömu andrá rifj- aðist það upp fyrir mjer þegar jeg var fyrir 30 árum á þessum sama báti og vjer fundum stóra hval- inn út af Oxarfirði og höfðum nærri að drepa oss alla fyrir hann. — Jeg hefi verið vön því að fara altaf á afmælisdegi mannsins míns sálaða með blóm út á leiði hans, en síðan að jeg varð svona feit, þá hefi jeg látið það duga að hafa baunir á afmælisdaginn lians, því að honum þótti baunir allra mata bestur. Ljúfi líkncirandi. Ljúfi líknarandi. Lát mig skynja og heyra, brimhljóð þinna boða, bergmál þitt í feyra. Haltu mjer í hendi, hreyfðu tungu mína, blessaðu orð og athöfn, auk mjer miskunn þína. Brýtur brim við hjarta, brotsjór vona minna. Vanrækt orð og athöfn á mig kalla og minna. Ekkert markvert unnið, afar mörgu glatað. í mannfjelagsins myrkri margoft ekki ratað. ) Hvað er lífsins löngun? Ljósþrá eftir degi, leit að leiðarmerki, er lýsi alla vegi. Þrá að eilíft alvit á vor hjörtu skrifi, að sannleikurinn sigri og sálir vorar lifi. / Dreg jeg út á djúpið, Dauðinn er í stafni. Hjálp í heljarstríði heim í Drottins nafni! Veikan bát minn brjóta boðar út á hafi. Vægðu, hlífðu voða, vertu friðargjafi! V Sól er sátt við báru, sveipar hana armi; brimhörð geislann brýtur, blika tár á hvarmi. Sendu, sálna faðir, sáttageisla niður! Bylg.ja á hugans hafi, hrópar nú, og biður. Leita jeg og leita, langar til að finna, hlýrri hugarbylgjur, sem hærra og stærra inna, Veit mjer dýrðar Drottinn, dagvitund í sinni að þig í einu og öllu, alla tíma finni. Elín Sigurðardóttir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.