Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1931, Page 4
196
LESBÖK MORGTJNBLAÐSINS
hár norðantil, en færi lækkandi að
sunnan, og væri að mestu horfinn
í horninu, þar sem nú er söluturn-
inn, svo græna suðurhallið blasti
enn betur við auganu af Stjórnar-
ráðstorginu en það gerir nú.
Sje rjett á þetta litið, þá er það
engum sjerlegum vandkvæðum
bundið, að byggja stóreflis bíla-
skála og markaðssali á Arnarhóls-
túni. Þeir yirðu að mestu neðan-
jarðar, og túnið kæmi á sterku
r-teyptu þakinu yfir þeim. Jarð-
vegurinn gæt-i verið um % m. á
þykt., og hann deyfði alt skrölt og
bílabaul í skálunum.
Jeg er nú ekki sá listamaður, að
jeg geti gert góða mynd af því
hversu hóllinn liti út með þessu
skipulagi, en til þess að skýra hug-
mynd mína, hefi jeg gert flatar-
uppdrátt af neðanjarðar bílaskála
á norðurtúninu og markað fyrir
svæðinu þar sem markaðssalir
kæmu undir suðurhallinu, en al-
menningssalemi við Kalkofnsveg-
inn. Þau eru þar hálfu betur sett
en rjett fyrir framan glugga
stjórnarráðsins.
Bílaskálinn tekur yfir alt norð-
urtúnið frá Kalkofnsvegi upp að
Ingólfsstræti og frá Sölfhólsgötu
(sunnan sænska frystihússins) suð
ur undir Ingólfsstyttuna. Hann er
nálægt 100 m. á hvern kant, og
þekur heilan hektar lands.
Skipulagið í skálanum getur að
sjálfsögðu verið með ýmsu móti,
og ef. til vill miklu hentugra en
það, sem hjer er sýnt. Meðfram
útveggjum skálans hefi jeg sett
lokaða bílaklefa, en annars gert
ráð fyrir opnum bílastæðum með
mjóum götum á milli. Flest bíla-
stæðin eru 2,5 m. á breijd og 5 m.
á lengd, en milligötur 3 m. Er
þetta svipað og gerist erlendis.
Með þessum hætti verða:
Bílaklefar fyrir 112 bíla
Bílastæði fyrir 260 bíla
Samtals pláss fyrir 372 bíla
Þá er gert ráð fyrir skrifstofum,
4 þvottastæðum, olíusölu og plássi,
sem nota mætti fyrir salemi. Um-
ferðin um göturnar er öll í eina
átt, eins og örvar sýna. A bíla-
stæðunum standa bílamir á ská og
þurfa aldrei að fara aftur á bak.
Það eru satt að segja furðanlega
fáir bílar, sem komast fyrir á
öllu þessu mikla svæði. Og þó
verða þeir í raun og veru nokkru
færrþ því jeg hefi ekki markað
fyrir öllum þeim fjölda af súlum,
sem bera loftið eða ]>akið. Það
er bersýnilegt, að þessi 370 bíla-
pláss nægja ekki til frambúðar
fyrir bæinn. Bótin er sú, að bíla-
skálinn má vera tvílyftur, og fer
best með þeim hætti. Fæst þá alls
pláss fyrir 700—800 bíla- og það
ætti að lirökkva langt,
Inn í neðri hæðina kæmu öku-
hlið við Kalkofnsveg, en inn í efri
hæðina yrði ekið úr Sölfhólsgötu
eða Ingólfsstræti.
Það yrði of langt mál að rekja
hjer allar þær athugasemdir, sem
gera mætti við þesSa fyrirætlun.
Landið er nú eign landsjóðs, en
úr því það er ekki ætlað til bygg-
,inga mætti ríkinu standa á sama,
þó það væri notað á þann hátt sem
hjer er sagt, svo framarlega sem
jafnstórt grasi gróið tún helst eft-
ir sem áður handa börnum og al-
menningi. í Edinborg eru stórar
neðanjarðar söluha.llir og prýði-
legur blómagarður á þakinu.
Nú er aðgætandi, að klöpp er
að mestu undir hólnum, og hana
þyrfti að sprengja- burtu. Jeg geri
ekki mikið úr þeim kostnaði. Bær-
inn notar árlega öll ósköp af
grjóti ,bæði í götur, höfnina og til
annara þarfa. Honum væri ódýr-
ara að taka það í Arnarhóli, held-
ur en að sækja það langar leiðir
upp í Oskjuhlíð og sprengja það
þar úr klöppunum.
Sumir kunna að óttast raka í
neðanjarðarskála, en liann væri
vágestur fyrir bílana. Með vand-
aðri loftveitu og dálítilli upphitun
ætti engin hætta að vera á þessu,
síst á efri hæðinni.
Þá er eldhættan. Margt mætti
gera til þess að draga úr henni, en
jeg hefi aldrei sjeð þess getið, að
eldsvoði hafi orðið í stóru bíla-
skálunum erlendis og er það lík-
lega góðu eftirliti að þakka.
Að lokum er jarðskjálftahættan.
Skálinn yrði að sjálfsögðu bygður
úr jámbentri steypu og slík hús
standa flestum betur. Það gæti og
komið til tals, að skifta skálanum
sundur að einhverju leyti, ekki síst
ef hann yrði bygður í fleiri atrenn
um.
Sem stendur hefir fjöldi vöru-
bíla feitað sjer stæðis og athvarfs
ofan við 'Kalkofnsveginn meðfram
Arnarhólsgirðingunni. Þar stendur
heil röð af þeim á hverjum morgni.
Það er eins og bílarnir vilji inn
í hólinn!
í suðurhallinu neðanverðu liefi
jeg gert ráð fyrir stórum markaðs-
skála neðanjarðar. Jeg hefi hugs-
að mjer 'hann einlyftan, og kart-
öflukjaliara undir nokkrum hluta
lians. Svæðið er allstórt, um 55Xlú
m., svo það ætti að nægja til alira
þarfa. Jeg hefi ekki ,sjeð ástæðu
til þess að gera neina áætlun um,
hversu þessi geimur yrði notaður
eða hólfaður sundur.
Kostnaðinn og afkomuna við
bílaslcálann höfum við Guðm. Þor-
láksson húsameistari, athugað laus
lega. Telst okkur svo til, ef vél er
lagt í, að pláss fyrir hvern bíl í
skálanum myndi kosta um 700 kr.,
en að ársleigan myndi verða um 20
kr. á mánuði. Er þá fljótreilinað,
að í höndum duglegra einstaklinga
yrði skálinn stórgróðafyrirtæki, þó
hitt gæti vel verið að bærinn tap-
aði á honum. Jeg hefi enga áætl-
un gert um markaðsskálann, en
sennilega myndi hann einnig borga
sig vel, ef vel væri haldið á.
G. H.
— Æ, lögregluþjónn, það er inn-
brotsþjófur hjá okkur og konan
mín hefir náð í hann. Viljið þjer
ekkí koma og reyna að bjarga
honum.