Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1931, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1931, Blaðsíða 4
196 LESBÖK MORGTJNBLAÐSINS hár norðantil, en færi lækkandi að sunnan, og væri að mestu horfinn í horninu, þar sem nú er söluturn- inn, svo græna suðurhallið blasti enn betur við auganu af Stjórnar- ráðstorginu en það gerir nú. Sje rjett á þetta litið, þá er það engum sjerlegum vandkvæðum bundið, að byggja stóreflis bíla- skála og markaðssali á Arnarhóls- túni. Þeir yirðu að mestu neðan- jarðar, og túnið kæmi á sterku r-teyptu þakinu yfir þeim. Jarð- vegurinn gæt-i verið um % m. á þykt., og hann deyfði alt skrölt og bílabaul í skálunum. Jeg er nú ekki sá listamaður, að jeg geti gert góða mynd af því hversu hóllinn liti út með þessu skipulagi, en til þess að skýra hug- mynd mína, hefi jeg gert flatar- uppdrátt af neðanjarðar bílaskála á norðurtúninu og markað fyrir svæðinu þar sem markaðssalir kæmu undir suðurhallinu, en al- menningssalemi við Kalkofnsveg- inn. Þau eru þar hálfu betur sett en rjett fyrir framan glugga stjórnarráðsins. Bílaskálinn tekur yfir alt norð- urtúnið frá Kalkofnsvegi upp að Ingólfsstræti og frá Sölfhólsgötu (sunnan sænska frystihússins) suð ur undir Ingólfsstyttuna. Hann er nálægt 100 m. á hvern kant, og þekur heilan hektar lands. Skipulagið í skálanum getur að sjálfsögðu verið með ýmsu móti, og ef. til vill miklu hentugra en það, sem hjer er sýnt. Meðfram útveggjum skálans hefi jeg sett lokaða bílaklefa, en annars gert ráð fyrir opnum bílastæðum með mjóum götum á milli. Flest bíla- stæðin eru 2,5 m. á breijd og 5 m. á lengd, en milligötur 3 m. Er þetta svipað og gerist erlendis. Með þessum hætti verða: Bílaklefar fyrir 112 bíla Bílastæði fyrir 260 bíla Samtals pláss fyrir 372 bíla Þá er gert ráð fyrir skrifstofum, 4 þvottastæðum, olíusölu og plássi, sem nota mætti fyrir salemi. Um- ferðin um göturnar er öll í eina átt, eins og örvar sýna. A bíla- stæðunum standa bílamir á ská og þurfa aldrei að fara aftur á bak. Það eru satt að segja furðanlega fáir bílar, sem komast fyrir á öllu þessu mikla svæði. Og þó verða þeir í raun og veru nokkru færrþ því jeg hefi ekki markað fyrir öllum þeim fjölda af súlum, sem bera loftið eða ]>akið. Það er bersýnilegt, að þessi 370 bíla- pláss nægja ekki til frambúðar fyrir bæinn. Bótin er sú, að bíla- skálinn má vera tvílyftur, og fer best með þeim hætti. Fæst þá alls pláss fyrir 700—800 bíla- og það ætti að lirökkva langt, Inn í neðri hæðina kæmu öku- hlið við Kalkofnsveg, en inn í efri hæðina yrði ekið úr Sölfhólsgötu eða Ingólfsstræti. Það yrði of langt mál að rekja hjer allar þær athugasemdir, sem gera mætti við þesSa fyrirætlun. Landið er nú eign landsjóðs, en úr því það er ekki ætlað til bygg- ,inga mætti ríkinu standa á sama, þó það væri notað á þann hátt sem hjer er sagt, svo framarlega sem jafnstórt grasi gróið tún helst eft- ir sem áður handa börnum og al- menningi. í Edinborg eru stórar neðanjarðar söluha.llir og prýði- legur blómagarður á þakinu. Nú er aðgætandi, að klöpp er að mestu undir hólnum, og hana þyrfti að sprengja- burtu. Jeg geri ekki mikið úr þeim kostnaði. Bær- inn notar árlega öll ósköp af grjóti ,bæði í götur, höfnina og til annara þarfa. Honum væri ódýr- ara að taka það í Arnarhóli, held- ur en að sækja það langar leiðir upp í Oskjuhlíð og sprengja það þar úr klöppunum. Sumir kunna að óttast raka í neðanjarðarskála, en liann væri vágestur fyrir bílana. Með vand- aðri loftveitu og dálítilli upphitun ætti engin hætta að vera á þessu, síst á efri hæðinni. Þá er eldhættan. Margt mætti gera til þess að draga úr henni, en jeg hefi aldrei sjeð þess getið, að eldsvoði hafi orðið í stóru bíla- skálunum erlendis og er það lík- lega góðu eftirliti að þakka. Að lokum er jarðskjálftahættan. Skálinn yrði að sjálfsögðu bygður úr jámbentri steypu og slík hús standa flestum betur. Það gæti og komið til tals, að skifta skálanum sundur að einhverju leyti, ekki síst ef hann yrði bygður í fleiri atrenn um. Sem stendur hefir fjöldi vöru- bíla feitað sjer stæðis og athvarfs ofan við 'Kalkofnsveginn meðfram Arnarhólsgirðingunni. Þar stendur heil röð af þeim á hverjum morgni. Það er eins og bílarnir vilji inn í hólinn! í suðurhallinu neðanverðu liefi jeg gert ráð fyrir stórum markaðs- skála neðanjarðar. Jeg hefi hugs- að mjer 'hann einlyftan, og kart- öflukjaliara undir nokkrum hluta lians. Svæðið er allstórt, um 55Xlú m., svo það ætti að nægja til alira þarfa. Jeg hefi ekki ,sjeð ástæðu til þess að gera neina áætlun um, hversu þessi geimur yrði notaður eða hólfaður sundur. Kostnaðinn og afkomuna við bílaslcálann höfum við Guðm. Þor- láksson húsameistari, athugað laus lega. Telst okkur svo til, ef vél er lagt í, að pláss fyrir hvern bíl í skálanum myndi kosta um 700 kr., en að ársleigan myndi verða um 20 kr. á mánuði. Er þá fljótreilinað, að í höndum duglegra einstaklinga yrði skálinn stórgróðafyrirtæki, þó hitt gæti vel verið að bærinn tap- aði á honum. Jeg hefi enga áætl- un gert um markaðsskálann, en sennilega myndi hann einnig borga sig vel, ef vel væri haldið á. G. H. — Æ, lögregluþjónn, það er inn- brotsþjófur hjá okkur og konan mín hefir náð í hann. Viljið þjer ekkí koma og reyna að bjarga honum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.