Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Side 7
LESBÓK MORGUN’BLABSINS
Fjársjóður
í ferðakistu.
I Suður-Frakklandi hefir um þessar
'tnundir verið stofnað einkennilegt fje-
lag og í því eru um 100 menn. Allir
þessir menn hafa látið spanskan —
eða spanska — svikara hafa út úr
sjer fje, vegna fjegræðgi sinnar.
Aðferð svikaranna hefir verið þessi:
Menn hafa fengið brjef frá manni,
: em segist vera í fangelsi á Spáni.
n viðurkennir það, að hann sje
svikari og hafi með óheiðarlegu móti
komist yfir 150.000 franka. Hann er
þess vegffa ríkur, en í fangelsinu hefir
hann enga peninga og hann á að vera
[>ar í 5 ár. Yilji nú móttakandi brjefs-
ins skreppa til Barcelona og hitta þar
nafngreindan fangavörð og borga hon-
um 25.000 franka þá skuli hann fá
afhendingarseðil að ferðakistu, sem
geymd sje á járnbrautarstöðinni í
Lyon, og í þessari kistu sje 150.000
franka í 1000 franka seðlum.
Það eru ekki færri en 100 sem hafa
þekst þetta kostaboð. En þegar þeir
hafa komið til Lyon, hafa þeir ekki
fengið annað en háð og spott. Þar er
engin ferðakista.
Þess vegna hafa nú þessir 100 menn
tckið sig saman og stofnað fjelag til
þess að reyna að hafa upp á þeim
sem sveik j lá.
RmerÍBkt.
Ameríkumenn hafa aðvaranir sínar
alt öðru vísi en aðrar þjóðir. Þegar
bílslys verða og bíll veltur út af vegi,
dettur þeim ekki í hug að taka bílinn,
heldur láta jieir hann liggja þar sem
hann er kominn, öðrum til viðvörunar.
Stundum eru sett spjöld á þessar bíla-
rústir, og á þeim stendur t. d.: „Bíl-
stjórinn fekk 18 mánaða fangelsi".
í Yoshemite-garðinum gnæfir kletta-
gnýpa fram úr fjalli. Þangað koma
óteljandi ferðamenn, en ekki hafa ver-
ið settar neinar grindur á bjargbrún-
ina, heldur aðeins spjald með þessari
áletrun: „Fram af jiessari gnýpu er
800 metra hæð. Það er engin hjálpar-
stöð fyrir neðan“.
Albin Hai.sson
hinn nýi forsætisráðherra Svía.
Trotzky
hefir nýlega fengið leyfi til þess að
koma til Tjekkoslovakiu, en þó er það
bundið vissum skilyrðum. Hann verður
t. d. að skuldbinda sig til jiess að
minnast ekki á stjórnmál.
Gwili André
heitir ein af ný.justu stjörnunum í
Ifollyw ;od. Ilún er af dönskum adtum.
Minningarathöfn.
Nýlega fór fram hátíðleg athöfn í
Tokio í Japan til minningar um þá,
sem fórust þar í jarðskjálftanum
rnikla. Á myndinni sjest borgarstjórinn
í Tokio, Hidejiro Nagata, sem er að
hringja klukku til merkis um j)að nð
, minningarathöfnin b-yvji.
Nýr flokkur í Þýskalandi.
Þeir eru æði margir stjórnmálaflokk-
arnir í Þýskalandi, og nú nýlega hefir
einn bætst við. Kallar hann sig
„Presidialpartei* ‘. Hjer á myndinni
sjest áskorun frá flokknum til borg-
aranna í Berlin og eru þar birt helstu
atriðin úr stefnuskrá flokksins.
...— —....