Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1933, Qupperneq 1
15. tölublað. Sunnudaginn 16. apríl 1933. VIII. árgangur.
^ ÍM(uldtrprtaliml(Jt h.f.
fllþýSubókasafn Reukjauíkur.
p
líu áva ajmæli. Eftir flrna Qla.
í lesstofu Alþýðubókasafnsins. Maðurinn sem er merktur X er Sigurgeir Friðriksson bókavörður.
Hinn 19. þessa rnánaðar eru 1(3
á|r iiðin síðaai Alþýðubókasafn
Reykjavíkur tók til starfa.
Þegar íslensku togararnir voru
seldir til Frakklands á stríðsár-
unum, varð það að samkomulagi,
að 20 þús. krónum af andvirði
þeirra skyldi varið til bókasafns
fyrir bæjarbúa, og fyrir þetta
i'je var Alþýðubókasafnið stofn-
að. Byrjaði ]iað með tæplega þús-
und bindum bóka.
Safninu voru þá fengin húsa-
kynni á Skólavörðustíg 3, og voru
þau afar óhentug að mörgu leyti.
En þarna var það þó þangað til
haustið 1928. Aðsókn að safninu
varð þegar í stað miklu meiri
lieldur en menn höfðu gert sjer
vonir um. Fyrsta árið voru t. d.
lánuð út 24.497 bindi og gestir
á lesstofum voru 4065. Næsta ár
voru útlánin 31.961 bindi og gest-
um á lesstofum fjölgaði upp í
5319 og þriðja árið voru gestir á
lesstofum 6830. Síðan stóð að-
sóknin að safninu nokkurn veginn
i stað, og má það óefað kenna
því hvað húsakvnni þess voru
óhentug. Bókaforði safnsins jókst
stöðugt, en aðgangur að því varð
jafnframt öllu ógreiðari vegna
þrengsla. Sáu menn að við svo
búið mátti ekki standa og voru
safninu því útveguð ný húsakynni
í Ingólfsstræti 12 og hefir safuið
verið ]>ar síðan.
Þetta var mikil breyting til
batnaðar, enda kom það fljótt í
Ijós, því að þegar á fyrsta ári
jókst -bókaútlán um þriðjung og
gestum á lesstofu fjölgaði að sama
skapi. Síðan liefir notkun safns-
ins aukist stórkostlega ár frá
ári. Árið 1932 voru t. d- lánuð út
85132 bindi af bókum og er ]>að
rúmlega helmingi meira heklur en
bókaútlán var árið 1929. Aðsókn
að lesstofum hefir aukist álíka
og voru gestirnir 17260 árið 1932.
Þessar tölur tala sinu ináli um