Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1934, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1934, Blaðsíða 8
96 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5mcelki. Minnismerki Edisons. í Bandaríkjunum á ná að reisa Edison minnismerki. Verður það 100 metra hátt og er gert ráð fyr- ir að það muni kosta 2 miljónir dollara. Frummynd minnismerkis- ins sjest hjer. — Hvaða asni var það sem jeg dansaði við áðan? — Bróðir minn. — Ó, fyrirgefið þjer — jeg — jeg hefði sannarlega átt að sjá hvað þið eruð líkir. — Jeg mætti konunni þinni í gær, en hún sá mig ekki. —Jeg veit það. Hún sagði mjer sjálf frá því. — Ef jeg skrifaði nú brjef og stílaði það til mesta grasasnans hjer á landi — hver heldurðu að fengi það? — Það yrði auðvitað endursent. — Haltu þjer saman og' vertu ekki að tala um það sem þú berð ekkert skynbragð" á — heldurðu kanske að þú sjert alþingismaður! Ríkiserfingi Belga. Þessi mynd er af hinum nýa ríkiserfingja í Belgíu, Badouin prins, syni Leopolds konung's og Ástríðar drotningar. Kuldinn í New York. Ovenjuleg harðindi hafa verið í New York í vetur, og er talið að annar eins frostavetur hafi ekki komið seinustu 100 árin. Dag eftir dag mátti sjá fjölda fólks glápa á hitamæla á húsum í borg- inni og furða sig á frostinu og hvað það gæti haldist lengi. — Hvar felurðu þau brjef, sem þú vilt ekki að konan þín sjái? — I saumakörfunni hennar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.