Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.1934, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.1934, Side 1
JHorðMííiMaiíisins 33. tölublaS. Sunnudaginn 12. ágúst 1934. IX. árgangur. ti<afoldiirpr«nt.*(ni0j* h.f. Buömunöur Friöjónsson: Lanöskjálfti Landið skelfur af Loka völdum, líkt og gerðist fyr á tíð. Gnötrar jörð og gengr í öldum. Goðin liggja á friðarskjöldum. Rignir grjóti úr hamri og hlíð. Hefst við fólk í útitjöldum. Steinbyggingar ganga af göfium gliðna hús úr járni og trjám. Rjáfur lúta reginöflum. Reika menn og bogra á knjám. Undirlög að ægi blám eru sundurtætt á köflum. Því er Loki að þessu stjaki, þessu sparki í jarðar kvið? — Löngu væri ber að baki brysti hann konu sinnar lið. — Landvætt hverri leiðist bið, að loddari sinnaskiptum taki. / Öfl, sem stunda að eyðileggja auðsæld, róma Loka starf. Hlakkar í þeim við hundrað veggja hrun og dýrra minja hvarf. Þegar skarðar þjóða arf þjóstylfingar spertir hneggja. * * Eldar í hömlum undir niðri, ala á Bölverks hildarleik. Jörmunkraftur í jarðar iðri, jötunn mikill, hefst á kreik. Fara þá í feluleik flæðisker á vortíð miðri. Sýknum lýð hefir Bylting búið, bölvun — þvílík hrygðarmynd. Frjórri jörð í flag er snúið; * fólska að verki, dumb og blind. Hagsæld út í veð’r og vind, vítiskrafta hefir flúið. Þegar við auga bylting blasir, bruðla vargar allri krás. Hús verða eins og hrumar snasir, hurðir segja upp meiddum lás. Veðrið draga af versta Ás vondra spila, bófa nasir. Neðstu hellna dólgar dansa. Djöflum er hið besta skemt. Stefnt er að mönnum vá og vansa; vondslega er að fólki klemt. Áður en fái alþjóð hremt, aðför klaufa, drottinn, stansa. * * Laus úr fjötri ef Loki verður, landinu mun í glötun steypt, etjukostur grasrót gerður, gæfu vorri á jökla hleypt; óðal sögu ódýrt keypt, arfur þjóðar stórum skerður. Hví eru dumb og hlutlaus goðin? Hljótt er um þau á vjela-öld. Borg og þorp eru blóði roðin. Bygðir vantar hlífiskjöld. Hel og Loki ef hreppa völd, hverjum verða lífsgrið boðin?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.