Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Síða 15
skógi að haustlagi.Gangan varð erfið mjög. Sumstaðar ljet jarð- veðurinn undan eins og kjallara- hleri og myndaði gapandi sprungur. Ekki hinn minsti vott- um runna, hvað þá trje. — Og samt skuluð þjer vita, að þarna vaxa trje í jökulurðunum, hvemig sem það má verða. Þau hljóta að hafa verið á leið þeirra, í tveggja skrefa fjar- lægð frá fótum þeirra, semfálm- uðu sig áfram í blindni, en vandlega falin undir snjónum, betur en nokkur fjársjóður í jörð grafinn. Þannig gengu þeir stundum saman án þess að vita, hvað tímanum leið, og þessi eina og sama hugsun knúði þá áfram. Loksins fundu þeir þetta litla birkitrje, sem spratt upp við fætur þeirra eins og fyrir kraftaverk. Það veitti ekki af fjórum höndum til að rífa það upp, svo fast var það gróið í jörðina. Og fyrst að því af- reksverki loknu urðu þeir þess varir, að þeir voru örmagna af hungri og þreytu. En hvað sem tautaði urðu þeir að halda heim- leiðis og það tafarlaust. Hinar fjórar orlofsstundir voru áreið- anlega löngu liðnar. Þeir sneru v:ð og fylgdu spor- um sínum líkt og litli Poucet hvítu stemvölunum í skógi flagðsins. 1 fyrstu var það leik- ur. En alt í einu virtist verða lengra milli sporanna, og brátt hurfu þau með öllu. Snjórinn hafði jafnað yfir þau. „Átta- vitann“, kallar stýrimaður. — Áttavitann? Hann hafði orðið eftir í bátnum. Þeir námu staðar óttaslegn- ir. En að vísu ekki leng’. Halda áfram. Það var eina vonin um björgun. Það skifti minstu, hvert þeir stefndu. En þeir urðu að ganga áfram.... áfram. .! berjast gegn svefninum, þrátt fyrir þreytuna, hvað sem það kostað'. Og þeir þrömmuðu áfram og drógu trjeð á milli sín. Fram- undan þeim var þessi grái veggur, sem hörfaði stöðugt undan, en v'ldi ekki opnast. — Hve lengi? Það gátu þeir ekk- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ert sagt um. Þar var eyða í minni þeirra. En áfram þrömm- uðu þeir....... Loks sáu þeir eitthvað fyrir framan sig í myrkrinu, ein- hverja skrítna þúst, sem líktist hárri brekku. Þegar þeir komu nær, fundu þeir, að það var gistihús, langt og mjótt, eins og mannlaus geymsluskúr. — Þeir börðu að dyrum, tvisvar, þrisvar sinnum. Ung kona, rjóð og Ijóshærð, kom til dyra og vísaði þeim inn. Hún kom með dauft ljós, færði þeim mjólk og mat, og hvarf svo aftur eins og hún var komin án þess að segja eitt orð. Er þeir höfðu satt hungur sitt, ultu þeir út af og fellu í fasta svefn. Þegar þeir vöknuðu aftur — hve margar klukkustundir höfðu þeir sofið? — hafði ver- ið lagt á borð fyrir þá, alveg eins og í álfasögu. Unga kon- an frá kvöldinu áður sat prjón- andi við ofninn, sem var kyntur með mó. Við hlið hennar sat Ijóshærður risi og var að gera við hnakk. Húsbóndinn bauð þeim að setjast að borðum. Að mál- tíðinni lokinni reyndu þeir að skýra frá, á enskuskotinni flæmsku, með hverjum hætti þeir höfðu komist í land, hvern- ig þeir höfðu vilst og að þeir yrðu að komast tafarlaust um borð aftur. „Good“, sagði ljós- hærði risinn, reis á fætur og gekk út úr stofunni. Á næsta augnabliki hevrðis4' hófatak fyr- ir framan dyrnar. Þeir stigu á bak, og helt, stýrimaður trjenu eins og blómvendi í fanginu. Húsmóðirin kom út í dyrnar, veifaði hendinni og brosti til svars við kveðiu þeirra. Og reiðmenn:rn;r þrír h°ldu af stað í halarófu, húsbóndinn á undan, umkr'ngdir þoku, snjó og bögn. Eúmi stundu síðar höfðu þeir fundið bá+inn s;nn og heilsuðu honnm með fagnaðaróni. eins og bann vær? blettur af föður- landi bm'rra. Þeir kvöddust með „Good-b'”'e“ og handabandi, er var mælskara en heill orða- straumur. Sjómennirnir tóku til 415 áranna, og báturinn færðist inn í hafþokuna, meðan reiðmað- urinn með litlu hestana sína þrjá hvarf inn í landþokuna". ,,Og gistihúsið?", spurði jeg. „Komið hjema'-, svaraði skip- stjórinn. Á flet sitt undir stýrishjólinu breiddi hann út sjókort skreytt ótal smáum tölum og flóknum strikum. Með vísifingri, sem var sprunginn eins og trjábörkur, benti hann mjer á ölfusá, sem rennur til sjávar milli Þorláks- hafnar og Eyrarbakka. Síðan helt hann upp með ánni. „Þarna er það“, sagði hann, „við þessa bugðu. Punkturinn þarna með örinni er gistihús. Þegar þetta gerðist, var það hið eina á 50 mílna svæði hringinn í kring. Staðurinn heitir: öl- fusárbrú". Það eru nákvæmlega sex ár, síðan gamall skipstjóri sagði mjer þessa sögu um borð í „0.99 Jeanne“. Forlögum sínum fær enginn ráðið. Og nú hafa mín leitt mig hingað, inn í þetta sama gisti- hús, vingjarnlegt og bjart, mitt í kyrlátri dýrð heimskautasum- arsins. Ung stúlka, rjóð og ljós- hærð, hefir fært mjer ágætan mat. Og meðan hún gengur hljóðlega um í hinni löngu, loft- lágu stofu, þá kallar útlending- urinn — sem kominn er hand- an yfir höfin — fram svipi horfinna gesta og hinna tveggja flæmsku sjómanna, sem lentu hjer, á þessari fjarlægu vetrar- nóttu, eftir barnslega, þráláta leit að jólatrje. ölfusárbrú (ísland), júlí 1933. José Gers.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.