Lesbók Morgunblaðsins - 30.12.1934, Blaðsíða 1
52. tölublað. Sunnudaginn 30. desember 1934- IX. árg.
________________________________________________________________________ f »afold»rpF*i»*«BH9J» f f.
Ofbeldi Júgóslafa
og hörmungar ungversku útlaganna.
Flokkur af Ungverjum, sem vísað hefir verið úr landi í Jugo-
slafíu, bíður eftir því í Budapest að fá einhversstaðar inni.
Budapest, 9. des.
Það þyrfti annan eins mann
og Dante til þess að lýsa hörm-
ungum þeim, sem nú gerast á
landamærum Júgóslafíu og
Ungverjalands.
Hver á eftir öðrum, eins og
gráar bylgjur, sem hníga að
strönd, koma hópar ógæfu-
samra Ungverja til landamær-
anna, fólk, sem stjórnin i Júgó-
slafíu hefir rekið úr landi. I
hundraðaflokkum, þúsunda-
flokkum, stöðugt fleiri og fleiri,
koma þeir, og enginn veit hve-
nær linnir þessum sorglegu
flutn ngum. Margir af útlögun-
um eru ekki famir að gera sjer
grein fyrir því hvað er að ger-
ast, svo undrandi urðu þeir út
af hinum snöggu umskiftum.
Þeir voru reknir á fætur um
miðja nótt, grimmir hermenn
drógu þá fram úr rúmum sínum
og ráku þá umsvifalaust til
landamæranna. Þeim var ekki
leyft að kveðja ættingja sína,
og ekki var þeim leyft að hafa
neitt meðferðis af eigum sínum,
nje það, sem þeim þótti vænst
um. —
Fólk, sem fætt er í þeim hluta
Júgóslafíu, sem tekinn var af
Ungverjum með friðarsamning-
unum, og menn, sem sótt höfðu
um borgararjett þar, voru jafn-
vel reknir úr landi. Þetta er að-
allega fátækt fólk, iðnaðar-
menn, listamenn eða bændur,
sem ekki hafa minstu hugmynd
um hvar á upptök sín sú hat-
ursalda, sem nú hefir skollið
yfir heimili þe'rra.
Á meðal hinna „hættulegu
íbúa“, sem reknir voru úr landi
í Júgóslafíu (og stjórnin segir
að gert sje til þess að tryggja
öryggi ríkisins), eru skólabörn
og ungbörn. Mörg þeirra hafa
verið tekin með valdi frá for-
eldrum sínum og rekin til
vandalausra. Þar eru einnig
margar veikar konur og ósjálf-
bjarga gamalmenni, þar á með-
al blindur maður á níræðisaldri.
Þessi raunamæddi sægur, sem
ber á herðum sjer alt böl mann-