Lesbók Morgunblaðsins - 07.06.1935, Blaðsíða 8
216
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Smœlki.
Herskráning í Þýskalandi.
í fyrsta skifti síðan stríðinu lauk, hefir nvi farið fram regluleg
herskráning í Þýskalandi. Voru þá kallaðir til skráningar allir piltar
sem fæddir eru 1914, árið, sem stríðið hófst. — Mynd þessi er af ein-
um skráningarstaðnum.
Einkennilegt brjef.
Fyrir tólf árum var fjármála-
ástandið í Þýskalandi þannig að
alvanalegt var að menn yrði að
hafa á sjer miljónir og biljónir
marka, ef þeir þurftu að kaupa
eitthvað.
Hinn 29. ágúst 1923 ætlaði em-
bættismaður nokkui að senda
brjef í pósti, og hurðargjaldið
undir það var 20.000 marka. Hann
hafði aðeins á sjer 200 marka
frímerki, og hefði því orðið að
líma 100 af þeim á brjefið, en þau
komust þar auðvitað ekki fyrir
Þess vegna var eftirfarandi yfir-
lýsing skráð á brjefið, og undir-
rituð af tveimur embættismönn-
um: „20.000 marka í frímerkjum
brendar“.
Já, það var ástand í Þýskaland’
á þeim árum.
Metfiskur.
í Lesbók hefir áður verið sagt
frá því, að hjá Ástralíuströndum
veiða menn hákarla á stöng. Fyrir
nokkru var maður að nafni Mr.
Bullen frá New South Wales að
veiða á stöng úti fyrir Sydney.
Fekk hann þá hákarl, sem vóg
480 kg., var 12^2 feta langur. Er
talið að þetta sje sá stærsti fisk-
ur sem nokkuru sinni hefir veiðst
á stöng.
„Irish Sweepstakeu.
í seinasta Irish Sweepstake komu
þrír háir vinningar á Norðmenn.
Ilngur piltur frá Norðurlandi, nú
búsettur í Los Angeles vann 454
Sterlingspund, stúlka í Ósló vann
jafn háa upphæð, og maður í
Mjöndalen vann 100 Sterlings-
pund.
Vasaþjófur: Því ertu svona nið-
urdreginn?
Annar vasaþjófur: Hann hafði
ekkert í vösunum nema handjárn.
Okukennari: Á bverju er mest
hætta við bifreiðaakstur?
Nemandi; Lögreglunni.
Leiðrjettingar. f grein um Helga
fell í næst seinustu Lesbók urðu
nokkrar prentvillur: Bls. 194 3. d.
19. 1. a. o. skapgerði, les skapgerð;
bls. 196 1. d. 6. 1. a. o. á Skálholti,
les í Skálholti; bls. 196 1. d. 7. 1.
a. o. Mávaholt, les Mávahlíð; bls.
*196 1. d. ll. 1. a .n. Haraldur, les
Hallur; bls. 197 hefir misritast í
nokkru af upplaginu í 1. d. 19. 1.
a. o. Munkahólum fyrir Múkahól-
um; bls. 197 3. d. 15. 1. a. o. Dal-
inn, les Dali inn.
Bankagjaldkeri: Afsakið frú, en
það er eins og þessari ávísun, sem
maðurinn yðar hefir stílað á yður,
sje breytt úr 10 krónum í 100
krónur.
Frúin: Grunaði mig ekki, svona
eru karlmennirnir, þeir halda alt
af saman.