Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1935, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
323
ull, og gátu þeir er stærstir voru
riimað 5—6 pund. Svipað tíðk-
aðist um selsmaga, að þeir voru
blásnir og þurkaðir, og síðan
geymt í þeim lýsi. Hverfa í smá-
lúðum var eigi skilin frá magan-
um, heldur var hvorttveggja
vendilega þvegið og síðan sett í
sýru. Loks var það etið sem
hátíðamatur, þegar það var nægi-
lega súrt, og nefndist þá odd-
ildar. Smálúða var jafnan kölluð
flóki eða lok, og var eigi gert að
því, sem stærri flyðrum, heldur
skift í tvennt, eftir endilöngu, og
nefndist hvor hluti stofn. Alfiski-
flyðrur nefndust þær flyðrur, er
voru alin fyrir sporð.
Landlegudaga notuðu vermenn
til margra hluta, sem eigi mátti
við koma, þegar róið var. Einnig
dvöldu vermenn þá nokkuð við
leiki og kveðskap. Mun oft hafa
verið ærið kátt í eyjunni, þegar
þar var framt að hundrað full-
orðnra manna. Sjaldnast var róið
á helg’dögum í Höskuldsey; ann-
að hvort hvíldu vermenn sig. og
dvttuðu að því, sem þurfa þótti,
ella þeir hjeldu heim til sín með
nýjan fisk og lausung, en svo
nefndu þeir hausa og slóg allt.
Venjulega fóru skipsmenn í Hösk-
uldsey einu sinni til kirkju á
vertíð hverri og stundum oftar.
Kirkju sóttu Höskuldsevingar í
Bmrnarhöfn. eða að Helgafelli. og
gat borið við að þeir yrðii veður-
teptir i þeim ferðum, um lengri
eða skemmri tíma. Formenn í
Hösknldsev lásu jafnan húslestra
á sunnudögum, er þeir voru þar
um kyrrt. Söfnuðust þá oftast
tvær eða fleiri skipshafnir í sömu
búð, og komu þær sjer fyrir
í skálanum. Tnni við fletið stóð
sá, er lesa átti, en þeir sátu sem
hlýddu.
Kvaðir hvíldu engar á ver-
mönnum í Höskuldsey, nema
spítalafiskur; en hann greiddu
aðeins þeir, sem reru um vorver-
tíð, því spítalahlutur var tekinn
þar næsta dag, sem róið var
eftir Ilrbansmessu, en hún er 25.
maí. Árni Magmásson segir í
jarðabók sinni, að Höskuldsev-
ingum beri eigi að gjalda mann-
talsfisk, og veit jeg ekki
hvað þar liggur til grunna, því
samkvæmt lögum átti hver utan-
hjeraðs útróðrarmaður í Snæfells-
nessýslu, sem 30 fiska fekk í hlut,
að g.jalda konungi tvo fiska, og
nefndust þeir manntalsfiskar.
Undanþegnir þessu gjaldi voru
þó vermenn embættismanna,
presta, ekkna og lögrjettumanna.
Formannskaup fyrir haustver-
tíð í Höskuldsey voru XV til XX
álnir, eða sem svarar 30—40 pund
af hertum fiski. Fyrir uppsátur
greiddust X álnir fyrir hvern bát,
ef ekki var um gagnkvæm ítök
að ræða milli Höskuldseyjar og
landjarða. Þannig átti Höskulds-
ey t. d. selstöðu í Staðarbakka-
landi, torfskurð að Berserkja-
hrauni, XII ásauðagöngu í
Grunnasundsnesi, hústorfsristu í
Ogri o. sv. frv., gegn því að hver
þessara jarða hafði aftur á móti
búðarstöðu og uppsátur í eyunni.
Eftir að vertíð lauk hjelt hver
bátur heim til sín. og flutti þá
með sjer fiskiföng öll, sem hann
hafði aflað og enn voru eftir
í eyjunni
Vermenn dvöldu nú á heimilum
sínum nokkuð fram í janúar, en
heldu síðan undir Jökul og stund-
uðu þar vetrarvertíð til sumar-
mála. Snjeru þeir þá aftur til
Höskuldeyjar og reru þar til f.jór-
ar vikur voru af sumri.
Senn eru Höskuldseyjar mið týnd
og glevmd, og það sem enn lifir
um vermensku eyjarinnar, hverfur
að mestu með þeirri kvnslóð, sem
nú er orðin mjög hnígin að aldri.
fÁsamt munnlegum heimildum hefi
jeg og nokkuð stuðst við eftirfarandi
rit: Jarðabók Árna MagnússonarJEftir-
mæli 18. aldar. Gaman'og alvöru, Lovs.
for fsl og-f. B. 20 Tol.þ [U fjj* ry
— Jeg hefi sáð radísum hjerna.
Hafið þjer nokkuð á móti því að
þær vaxi upp með girðingunni
yðar?
Bridge.
S: enginn.
H: 5.
T: 4,3,2.
L:5, 4.
S: 10, 8, 7.
H: 10,8, 7.
T: enginn.
L: ekkert.
S: D, 3.
H: D, 3.
T: enginn.
L: D, 3.
Tígull er tromp. A slær út, A
og B eiga að fá alla slagina.
& Ás, 2. B
H:G,9.
T:enginn. “
L: G, 9. „
Baráttan
gegn barnaþjófum.
Þegar það kemur nú fyrir í
Bandaríkjunum, að barni er stol-
ið, þá eru þegar sendir á stað
bílar með gjallarhornum, eins og
sjest hjer á myndinni. Þeysa þeir
um fram og aftur og er skorað
á fólk háum tónum að hjálpa til
að finna hið stolna barn. Á þenn-
an hátt tekst á stuttri stund að
safna saman fjölda leitarmanna.
Meyer lá á skurðarborðinu og
horfði með skelfingu á hnífinn:
— Þetta er vonandi ekki hættu-
legur uppskurður.
Læknir: Hvernig getur yður
dottið í hug að þjer fáið hættu-
legan uppskurð fyrir 50 krónur?