Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1935, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 841
i
I
I
Y
J
!
Y
I
I
I
T
Y
Y
I
!
Gróðrarstöð.
Til minningar
um Einar Helgason garðyrkjustjóra.
Rís yfir tindana röðull skær,
roðanum vítt yfir löndin slær,
lífið í dásemdum geislanna grær,
það grípur mig lotningu hljóðri.
Sjá, ólíka stofna við háreist hlið
sem haldi þeir vörð um hið skrautbúna lið,
hjer sameinar náttúran frelsi og frið
í fagnandi jarðargróðri.
Hver hlýtur svo glæstan orkuarð
sem ilmandi fagran jurtagarð?
Og engum til lítils lífið .varð
sem lutu þeim töframætti.
Hvort getur ei blómið átt guðlega sál
fyrst gleðst það og brosir við morgunsins skál t
♦%
og vindurinn flytur þess vinarmál %
í vaggandi hörpuslætti? 4
y
y
Sem liljuna prýðir hvert lítið blað, 4
svo ljómar fegurð um þennan stað, :j:
hjer auganu veitist yndi það |
sem andann í vöku dreymir. :*:
Því starfið er eilíft þó æfin sje stutt,
y einyrkjans hönd getur vegina rutt, |
| hvert bros, hvert orð í einlægni flutt :*:
| ófædda kynslóðin geymir. |
| Karl Halldórsson. k
Y Y
*♦ V
KKM^4M^*KKM^*HMXwXMXwXwMKK*******,MiMM'MW*****M**X******M*,MíM*iM'í***'MXiMX***'Mt*4*HJMíMH*
Forn víkingaborg.
í sumar hafa verið grafnar
upp rústir fornrar víkingaborg-
ar hjá Vaarby-á í Danmörku, um
2—3 km. þaðan, sem áin rennur
í Stórabelti. Þarna hafa menn
komið niður á húsgrunna, sem
eru um 30 metrar á lengd og hin-
ir stærstu, sem kunnir eru frá
fornöld í Danmörk.
Umhverfis borgina hefir verið
virki og þar fyrir utan djúpt
síki. t stórum öskuhaugum milli
húsanna hafa fundist kynstur af
beinum úr nautgripum, hestum,
svínum, hjörtum og villisvínum.
Enn fremur hafa fundist sverð,
lensur og örvaroddar, alt úr
járni.
Þetta er fyrsta víggirta borgin
sem fundist hefir norðan við
Heiðabæ í Sljesvík. Er talið, að
borgin sje frá 8. öld, eða þar um
bil. Þá hefir Vaarby-á verið skip-
geng upp fyrir borgina.
— Jeg þarf að kaupa einhverja
tækifærisgjöf handa gömlum
manni.
— Slifsi*
— Hann hefir skegg.
— Þá útsaumað vesti?
— Hann hefir mjög sítt skegg.
— Þá væri best að hafa það
morgunskó.
„Svarti örninn“.
Hann fór litla frægðarför
til Abyssiníu.
Utlendur blaðamaður, sem er í
Addis Abeba, skrifar á þessa leið:
Ævintýramenn frá öllum lönd-
um heims streyma til Abyssiníu,
til þess að freista þar hamingj-
unnar. Ungir menn, sem full-
yrða að þeir hafi tekið þátt í
Hubert E. Julian.
Chako-striðinu, klæddir í snjó-
hvíta suður-ameríkanska einkenn-
isbúninga, sitja eftirvæntingar-
fullir í biðstofum ráðherranna.
Fyrir nokkru sat jeg við sama
borð og maður nokkur, sem þótt-
ist vera Englendingur, og sagð-
ist ætla að stofna sjálfstæða hjúkr
unarsveit. Og með miklum gor-
geir talaði hann um öll þau sam-
bönd, sem hann hefði við helstu
stjórnmálamenn heimsins. Daginn
eftir vissu allir í Addis Abeba að
þetta var kokainsmyglari og að
hann hafði verið þrælasali í
Uganda.
Af öllum þeim aðskotadýrum
sem hjer eru og hefir tekist að
vekja athygli á sjer, er þó mest
talað um Hubert E. Julían,
„Svarta örninn“. Hann er eini
Svertinginn, sem hefir tekið flug-
mannspróf í Bandaríkjunum, og
blöð um allan heim dáðust að hon-
um, er hann með brauki og bramli