Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1935, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1935, Blaðsíða 6
342 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Einn af hinum frægu ,,taxa“-bílum í París. sem notaðir voru til herflutninga þegar hin mikla orusta viy háð hjá Marne, var nýlega seldur til Ameríku, sem kjörgripur. En áður en hann færi var liann kvaddur með viðhöfn, eins og sjest lijer á myndinni. fór til Abyssiníu, til þess að hjálpa kvnbræðrum 'sínum. — Frjettir af mjer hafa verið á fyrstu siðu í öllum blöðum heimsins, einnig í ,,Times“, er hann vanur að segja (en glevmir því þá, að ,,Times“ hefir aldrei birt neina fregn á fyrstu síðu). Hubert E. Julian er t'æddur í London. og kom hingað með enskt vegabrjef. En vinur lians. Abyss- iníukeisari — hann talar altaf um Halié Salisié eins og ]>eir væri fóstbræður -— ljet hanri undireins fá abyssinskt vegabrjef og gerði hann að ofursta! En sannleikur- inn er sá. að vinur hans, keisar- inn, er mjög óánægður með hann. ,,Svarti örninn“, er sem sje mjög ljelegur flugmaður. Eftir málfari lians að dæma, hefir liann hafst meira við í næturklúbbunum í Harlem heldur en hjá Lindbergh. Hann bvrjaði bjargráðastarf sitt í Abyssiníu, með því að brjóta þrjár flugvjelar. og Halié Salisié þolir ekki slíka bruðlunarsemi. Þess vegna var „Svarta erninum" fal- ið að halda sjer við jörðina, og nú átti hann að sendast út á land til þess að æfa nýliða. Kvikmynda tökumaður Paramounts vildi taka mynd af honum, er hann legði á stað. „Svarti örninn“ krafðist þess að fá 50 sterlingspund fyrir það. en felst seinast á 8 pund. Svo lagði hann á stað. ríðandi á múlasna og hin lietjulega sjálfs- fórn hans og trú á sigur svarta kynstofnsins var gert ódauðlegt á nokkrum metrum af filmu. En skamt frá borginni sneri hann aft- ur og læddist inn í borgina — þar vildi hann heldur vera en í liern- um. Englendingurinn Beatty, sem er frjettaritari fyrir „United Press‘“ ljet birta grein um hann í London og var „Svarti örninn“ mjög ó- ánægður með liana. Og er liann hitti Beatty á götu nokkru seinna jós hann yfir hann öllum þeim ó- kvæðisorðum, sem liann hafði lært í skúmaskotum New York. Franskur blaðamaður, frjettarit- ari ,.Paris-Soir‘‘ skarst í leikinn, en Surtur kallaði hann þá „franskt svín“! Stór úlfaþytur! Frakkar fóru til keisarans og kærðu Surt, því að hann hefði eigi aðeins móðgað blaðamanninn, lield ur alla frönsku þjóðina. Nú hefir Herbert E. Julian verið rekinn brott úr Addis Abeba, því að hann reyndist ekki annað en glamrari. nmerískt. Lögfræðingur kom til ynging- arlæknis og spurði, hvort hann gæti gert sig 25 ára gamlan. — Auðvitað, en það kostar 10.000 dollara. — En getið þjer þá ekki gert mig 18 ára? — JÚ, en það kostar 15.000 dollara. — Það gerir ekkert til, jeg vil heldur vera 18 ára gamall. Hálfu ári seinna kom ynging- arlæknirinn og vildi fá borgun- ina. — Það kemur ekki til neinna mála, læknir. Þjer hafið gert mig ómyndugan, og ef þjer ætlið að neita því, þá kæri jeg yður fyr- ir svik.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.