Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1936, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1936, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21 Si^mundur M. Long: Isienskur ævintýramaður Sigurgeir sonur síra Jón Þor- steinssonar frá Reykjahlíð, flutti úr átthögum sínum austur á Fljóts dalshjerað. Kona hans hjet Ólöf Gabríelsdóttir. Þau bjuggu á Galtastöðum ytri í Hróarstungú mörg ár, og áttu fjölda barna. Með þeim kom að norðan unglings maður, hálfbróðir Ólafar, sam- mæðra, Guðmundur Hallgríms- son. Um Guðmund þenna Hallgríms- son má með sanni segja, að „ann- að er gæfa en gjörvuleiki“, því að honum var margt einkar vel gefið. Hann var vel meðalmaður á hæð, fallegur í vexti og fríður í andliti, vel skynsamur, ljettmáll, kátur og skemtilegur í viðbúð. En á hinn bóginn einstakur ó- reiðumaður, drykkfeldur og kven- hollur í frekara lagi, stefnu og staðfestulaus og ekki við eina fjöl feldur. Mun þó í insta eðli sínu enginn klækjamaður hafa verið, en eins og vanalegt er og við- gengst, eru slíkir menn oftast sjer gera sig gildan þegar ekkert er í húfi! Kvöld. Stjörnubjartur himinn og tungl- skin! Kvöldkyrð og djúpur frið- ur I Á sjúkrastofum Vífilsstaða eru ljósin slökt. Hjúkrunarkonur og starfstúlkur allar eru komnar til hefbergja sinna og hafa lagt af sjer einkennisbiininga, slæðu og kappa. Þessi blessaður dagur er þá liðinn, segja þær andvarpandi! Á göngum hælisins er enn ljós — og þárna gengur engilhvít hiúkrunarkona! Hún er vöku- kona og á að vaka þegar hinar sofa. Skyldu nú allir sofa nema hún ? Góða nótt, litla hvíta vöku- kona — góða nótt! og öðrum til ásteytingar og vand- ræða með ýmsu móti. Guðmundur mun hafa gifst til- tölulega ungur. Kona hans hjet Lovísa Jörgensdóttir Kjerulf. Þau voru ekki lengi saman; hún dó á Háreksstöðum í febrúar 1863. Eftir dauða Lovísu var Guð- mundur um hríð á ýmsum stöðum á Austurlandi. Haustið 1864 var hann í Eskifirði. Þar voru þá bú- endur annars vegar Jón Sigfússon og Elín Þorvarðardóttir; ætla jeg að hann hafi verið á þeirra snæri. Hinn ábúandinn var Sesselja Sig- fúsdóttir, ekkja Jóns Jónssonar frá Kollstaðagerði. Guðmundur var í þingum við Sigríði dóttur Sesselju. Áttu þau barn saman. Fleiri launbörn mun hann hafa átt á þeim árum, þó þess verði hjer ekki framar getið. Sumarið 1867 var Guðmundur hjá hvalveiðamönnunum amer- ísku á Vestdalseyri við Seyðis- fjörð. Þar voru um 20 íslendingar um sumarið, meiri hlutinn af þeim drykkjumenn og draslarar, sem voru þó dugandi menn að öðru leyti. Einn af þeim hje't Óli Finn- bogason, Vopnfirðingur, montinn og mikill á lofti, en heimskur og lítilmenni. Óli hjelt afmælisveislu sína um sumarið, og veitti þá löndum sínum og samverkamönn- um rausnarlega. Þá kvað Guð- mundur: Einn er hjer maður okkur með í verki og eligan betri vin er hægt að fá, hann er sem Gunnar hetjujafninn merki, hann er sem Njáll, ef vitið reynir a. Óli hann heitir og er norðurþjóða ættblómið mesta sem að stendur nú, Honum vjer allir ættum virðing bjóða, í eining segja: Húrra, lifi þú! Guðmundur kemur úr siglingum. Það var á milli 1875 og 1880, hvert árið man jeg ekki, að Guð- mundur Hallgrímsson kom snemma um sumarið frá Danmörku til Seyðisfjarðar, og fór þangað aftur um haustið. Meðan hann dvaldist heima, fór hann upp á Hjerað að sjá ættingja sína og kunningja, og var hvarvetna vel tekið. Hann var vel klæddur, kunni frá mörgu að segja, þar eð hann hafði þá verið sjómaður ár- um saman, búinn að fara víða og sjá margt. Var líka vel tölugur og hafði ærna skynsemi til að gera frásagnir sínar - áheyrilegar og skemtandi. Jeg var þá veitinga- maður á Fjarðaröldu. Var Guð- mundur hjá mjer nokkra daga um haustið að bíða eftir skips- ferð til Danmerkur. Sagði hann mjer frá ýmsu, þó nú sje margt af því gleymt. Ekki veit jeg hvar Guðmundur hefir verið, eða hvað langt hefir liðið frá því hann var á Vestdals- eyri, sem fyr er getið, og þar til hann sigldi. En af Akureyri fór hann að áliðnu sumri, eða um haust, sem háseti á skipi, sem fór til Kaupmannahafnar. Var liann þá svo gjörsnauður, að fjögur mörk (kr. 1.33) var öll hans peningaeign er hann steig á land í Danmörku. Guðmundur kemst í kynni við „ekkju“. En ekki hafði hann lengi dvalið í Kaupmannahöfn, er hann komst í kynni við ríka ekkju, sem helt þar hús ásamt dóttur sinni gjaf- vaxta. Tók ekkjan liann að sjer, veitti honum kost og klæði ríkti- lega. Kvaðst hann hafa verið hversdagslega í frakka, með hvítt brjóst og pípuhatt og úr í vasa. Lifðu þau konan og Guðmundur eins og hjón um veturinn, og hafði liann aldrei fyr átt slíka ævi. Ljet liún sem sjer þætti ákaf- lega vænt um hann. Þó skildist mjer á Guðmundi að dóttirin og hann he'fði einnig varið góðkunn-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.