Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.1936, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.1936, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 253 um yfir öll leiðin. Eins og móðir, sem er að svæfa barn sitt. ALLORMSSTAÐUR. Þangað komum vjer um hádegi. Á leiðinni frá Eiðum er farið fram hjá hverju höfðingjasetrinu öðru meira: Egilsstöðum, Ketilsstöðum, Vallanesi. Ketilssfcaðir eru land- námsjörð. Þar bygði fyrstur Ás- röður, sem var kvæntur bróður- dóttur Brynjólfs gamla. Þar er nú einkennileg kirkja. Skamt frá Vallanesi er Grímsá, vatnslítil yfir- leitt, en varð fjölda manna að bana áður en hún var brúuð. Eftir því sem lengra dregur frá Egilsstöðum breikkar Lagarfljót og verður sem stöðuvatn. Heitir það þá Lögurinn og eru kallaðar Lagar- fljótsstrandir þar beggja megin, enda er þar líkara sjávarströnd en vatnsbakba, og í flæðarmáli er fult af einkennilegum steinum sem borist hafa ofan úr háfjöllum og fljótið hefir skolað á land í vatna- vöxtum. Fram undan Hallormsstað er fljótið breiðast, 3 kílómetrar, og þar hefir verið mælt mest dýpi, um 100 metra. Straums gætir þar varla, en þegar hvast er, rísa háar öldur á Leginum. Næsti bær við Hallormsstað er Ormsstaðir. Þar rjett fyrir framan er skógargirðingin, og þegar kom- ið er í gegn um hliðið, tekur við hinn fagri Gatnaskógur, elsti hluti Hallormsstaðaskógar. Þar er ekið eftir laufgöngum. Há og bolmikil birkitrje standa í þjettum röðum beggja megin vegarins og taka greinum saman hátt yfir bílunum, en rjetta þó sumar greinamar inn um opna glugga bifreiðanna, eins og þær vilji taka í hendur á ferða- fólkinu og bjóða það velkomið. Skyndilega kemur maður fram úr þessu yndislega skógarþykni, og þá blasir við bærinn á Hallorms- stað og skólinn þar skamt fyrir ofan undir skógivaxinni brekku, og iðjagræn tún alt um kring bygðina. Þar er fallegt heim að líta, en þó er hvergi jafn unaðslegt eins og í skóginum í Atlavík, sem er dálítið ofar með fljótinu. í bröttum brekkum, innan um kletta og ldungur, er gróskumikill frumskógur svo þjettur að vart verður komist í gegn um hann, og svo hár, að þar er auðvelt að villast þótt glampandi sólskin sje. Neðra, er dalkvos, einnig þakin háum og þjettum skógi, og undirgróðurinn er svo þjettur að maður flækir þar fæturna í grasi og dásamlegum skartblómum. Litlir tærir lækir niða í hlykkjóttum rásum, en í laufi trjánna hátt uppi syngja skógar- þrestir sinn yndislega söng. Þarna grípur mann sú löngun sem Jónas Hallgrímsson lætur Gunnar á Hlíðarenda orða svo: Hjer vil jeg una æfi minnar daga alla, sem guð mjer sendir — —------------------- Um Hallormsstaðaskóg birtist grein eftir Theodór Árnason í Lesbók Morgunblaðsins í fyrra og vísa jeg til hennar um frekari lýsingu á þessum fagra stað. Að- eins má bæta því við, að í skóg- inum milli Hallormsstaðar og Atla- víkur er gróðrarstöð, sem allir verða að skoða, þeir, sem á þessar slóðir koma. Þar hafa verið gróð- ursettar fjölda margar trjátegund- ir. Þar eru meðal annars hávaxin og skrautleg lævirkjatrje, og þar eru hin stærstu grenitrje, sem til eru á íslandi, marg.ar mannhæðir, og með sterkum stofnum. Þessi trje hafa ekki orðið fyrir búsifjum skógarmaðksins, en birkið er víða illa farið, og þó að sögn ekki jafn hörmulega og í fyrra. En þá var maðkurinn þar í algleymingi og má sjá þess glögg merki, því að víða standa dánar og sprekaðar eikur, sem hrökkva sundur eins og kol ef komið er við þær. UTSÝN er fögur frá Hallorms- stað yfir Löginn og hlíðina á móti. Þar blasir við bærinn Arn- eiðarstaðir. Hann á sína sögu geymda í Landnámu. Ketill, sonur Þóris Jjiðranda keypti í Noregi að Vje])ormi, syni Vjemundar hins gamla, Arneiði dóttur Ásbjarnar jarls skerjablesa, er Holmfastur, son Vjeþorms, hafði hertekið, þá er þeir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.