Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1936, Blaðsíða 4
300
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
„Svarti drekinn6í kemur
til skjalanna.
Herinn og fasistar ráða lögum
og lofum í Japan.
„Vjer verdum ætíð aö hafa það markmið fyrir augum að
tryggja oss alheimsyfirráð, yiirráð yfir öllum þjóðum. Það
er himinsins vilji að þetta verði". (Hotta, japanskur stjórn-
málamaður, 1858).
EFTIR sigurinn á Riissum
1904 varð Japan stórveldi;
og síðan hafa Japanar stöðugt
verið að færa út kvíarnar. Árið
1910 lögðu þeir Korea undir sig
Eftir heimsstyrjöldina fengu þeír
nokkrar af nýlendum Þjóðverja
í Kvrrahafi. Fyrir tveimur árum
tóku þeir Mansjúríu og stofnuðu
Manchukuo, og nú eru þeir á
góðum vegi með að leggja Norð-
ur-Kína undir sig, land þar sem
húa um 100 miljónir manna.
Á öllum sviðum keppa Japan-
ar að því að komast fram úr öðr-
um. Herinn hefir sjerstöðu í rík-
inu, því að hershöfðingjar og
flotaforingjar neita því að vera
undir nokkurn gefinn nema keis-
arann, og skeyta engu um það,
hvað stjórnin segir. Og í hvert
skifti sem einhver ráðherranna
hikar við að ráðast í stórræði, þá
kemur „Svarti drekinn“ til skjal-
anna.
Nafnið er upp runnið í Man-
sjúríu. Á kínversku heitir Amur-
fljótið Svarti drekinn. Það er á
landamærum Mansjúríu og Síh-
eríu. Fjelagsskapurinn með þessu
nafni varð fyrst kunnur af því
að hafa komið á stað stríðinu við
Kína 1894. Toyama, leiðtogi
flokksins, krafðist þess, að Japan
segði Kína stríð á hendur.
Það var líka Toyama, sem
krafðist þess að Japan legði Korea
undir sig og jafnvel Mansjúríu,
áður en Rússar næði of öruggri
fótfestu í Asíu. Og til þess að
undirstryka þessa kröfu sína,
nefndi hann fjelagsskap sinn
„Svarta drekann“. Þetta er elsti
fasistiski fjelagsskapurinn. Og
hann hefir farið sívaxandi síðan
Og er nú í mörgum deildum. Toy-
ama er enn foringi hans, þótt
aldurhniginn sje. Og hann hefir
ótrúlega mikil völd á hak við
tjöldin.
Fyrstu mentun sína fekk Toy-
ama í hinum svonefnda „hetju-
skóla“. Skólastjórinn var kona,
sem gekk í karlmannsfötum, og
varð alvarlega reið, ef hún var
kvenkend.
Síðan komu foreldrar hans
honum í verslun, en það dugði
ekki. Toyama fór að ferðast um
landið, og nú stofnaði hann leyni-
fjelagsskap þann, sem hefir myrt
eða limlest marga stjórnmála-
menn, sem ekki hafa viljað hlýða
boðum Toyama.
Sá fyrsti, sem varð fyrir
þessu, var hinn mikli stjórnvitr-
ingur, Okuma greifi, sem hafði
verið hvað eftir annað fjármála-
ráðherra, utanríkisráðherra og
forsætisráðherra. Árið 1871 fekk
hann lán í Englandi til þess að
gera fyrstu járnbrautina í Japan.
Toyama kallaði hann föðurlands-
svikara. Það er mælt, að Okuma
hafi þá hoðið honum 14 miljón
yen, ef hann vidi fara alfarinn
af landi hurt. Þá á Toyama að
hafa svarað: „Jeg skal taka við
peningunum, en jeg fer ekki fet“.
Nú liðu mörg ár án þess að
neitt alvarlegt skeði. En 1892
gaus upp kvittur um það, að
stjórnin væri að gera samninga
við önnur lönd. Þá sendi Toy-
Hirota.
ama einn af lærisveinum sínum
á stað með sprengju. Sprengj-
unni var varpað á vagn Okuma.
Hún reif af honum annan fótinn,
og það lá við, að Okuma blæddi
til ólífis. Árásarmaðurinn drýgði
samstundis sjálfsmorð, og það
voru engar sannanir fyrir því, að
Toyama hefði gert hann út af
örkinni. Að vísu var Toyama tek-
inn fastur, en hann hló aðeins
upp í opið geðið á lögreglunni.
Og yfirvöldin fengu svo mörg
hótunarbrjef, að það þótti ráðleg-
ast að sleppa Toyama. Síðan
hafa engin lög náð yfir hann.
Seinna heimsótti hann Okuma í
sjúkrahúsinu. Okuma spurði hvort
hann væri kominn til þess að skila
sjer fætinum! Toyama brosti ó-
sköp ástúðlega og sagði, að æðstu
valdsmenn landsins ætti altaf að
vera reiðubúnir að fórna einum
fæti fvrir keisara sinn og þjóð.
*
INU sinni vaknaði Toyama
við það um nótt, að einn af
lærisveinum hans var að'laumast
út. Hann sá það á svip hins unga
manns að hann hugði á stórræði.