Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1936, Blaðsíða 8
304 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Undirbúningur krýningarhátíðarinrar í Englandi er þegar byrjaður, þótt langur tími sje enn
til stefnu. Hjer á myndinni sjást nokkrir atvinnuleysingjar vera að búa til alls konar gripi, sem eiga
að skreyta hina stóru almenningsbústaði. Einn af mönnunum er að mála stóra mynd af Játvarði
konungi.
Smczlki.
Ung frú hafði keypt gæs í
sunnudagsmatinn. Hún lagði
hana á eldhúsborðið við hliðina
á matreiðslubók. Það var dýr og
vönduð matreiðslubók með mynd-
um og þar var mynd, sem sýndi
hvernig ætti að skera gæs í sund-
ur. Konan velti gæsinni lengi
fyrir sjer og kallaði svo í mann
sinn:
— Heyrðu, jeg get hvergi
fundið punktalínuna á gæsinni!
*
Kennari átti í vandræðum með
krakkana. Þau voru svo skiln-
ingssljó. Hann var með jarðlík-
an, bendir á það og segir:
— Eiríkur, hjer styð jeg á
hnöttinn. Hvaða land er hinum
megin á honum?
Eiríkur þegir.
— Þetta er ósköp auðskilið,
segir kennarinn. Hugsaðu þjer
að jeg boraði hjer gat í gegn um
hnöttinn og þú skriðir inn í það.
Hvar myndirðu þá koma út?
— Út um gatið.
— Ertu hamingjusamur í
hjónabandinu?
— Já, konan er gull; hún hjálp
ar mjer bæði við matreiðsluna og
uppþvottinn.
— Hvers vegna ætlarðu að gift-
ast henni?
— Jeg elska hana.
— Það er engin ástæða, í liæsta
lagi afsökun.
Hann: Sástu ungu stúlkuna,
sem gekk fram hjá okkur?
Hún: Þessa máluðu, með litaða
hárið, fölsku tennurnar og í
gamla kjólnum — nei, hana sá
jeg ekki.
— Hefirðu beðið hennar Siggu?
— Nei. Fyrst og fremst er hún
ári eldri en jeg, og svo er hún
trúlofuð Kalla Jóns, og hann get
jeg ekki þolað.
*
Skoti lá fárveikur. Læknir
sagði við konu hans:
— Jeg held að jeg geti bjarg-
að honum með uppskurði. Það er
eina vonin.
— Hvað kostar það ? spurði
hún.
— Tuttugu pund.
— Þá hefi jeg betra tilboð frá
greftrunarfjelaginu.