Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1936, Qupperneq 8
328
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Eitt af herskipum Þjóðverja, sem sökt var í Scapa Flow, „König Albert“, hefir verið haf-
ið af mararbotni og flutt á livolfi í hafnarkví í Rosyth. Yerkamenn eru að ná hinum voldugu
skrúfum af því. Þetta herskip var einu sinni eitt af þeim bestu í þýska flotanum.
Smcelki.
Kennari: Jæja, Eiríkur, ef þú
ert með 2,57 krónur í öðrum
buxnavasanum og 1.97 kr. í hin-
um — hvað er það?
— Ekki annað en jeg er þá í
buxum af einhverjum öðrum.
*
— Hvað á jeg að gefa Sigurði
kennara í afmælisgjöf? Það er alt
funkis heima hjá honum.
— Gefðu honum jarðlíkan, en
það þnvf að /era, teningsmynda'Ö.
— Finst þjer liKa, daginn eft-
ir að þú hefir verið á því, að þú
hafir verið barinn ?
— Nei, jeg er ógiftur.
*
— Þii hefir sjálfsagt sjeð marga
menn ólaglegri en mig.
ÞÖgn.
— Jeg sagði, að þú hefðir sjálf-
sagt sjeð ólaglegri menn en mig.
— Jeg heyrði það vel, en jeg
þarf að hugsa mig um.
*
— Hefirðu nokkurt gagn af bý-
flugunum þínum ?
— Já, þær hafa stungið tengda-
mömmu þrisvar sinnum.
Strákur mætti kennara sínum
á götu, en tók ekki ofan.
— Heyrðu! kallaði kennarinn.
Hvers vegna tekurðu ekki ofan
húfuna þína?
— Jeg er ekki með hana.
— Þú ert víst með hana á höfð-
inu.
— Nei, það er húfa bróður
míns.