Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1937, Blaðsíða 1
7. tölublaS.
Sunnudaginn 21. febrúar 1937.
XII. árgangur.
h.f.
2.592.632
æskumenn kalla
hann höfðingja sinn.
Þaim 22. febrúar 1857 fæddist
í Stanhopestræti í Lundíina-
borg mikilmennið heimsfræga Ro-
bert Steplienson Smvth Baden-Po-
well, stofnandi skátareglunnar og
æskulýðsleiðtogi allra þjóða. Á
morgun er hann því áttræður að
aldri.
Frá öllum löndum heims munu
til lians streyma árnaðaróskir og
þakklæti fyrir hið ómetanlega
starf hans á sviði uppeldismál-
anna og til þroskunar og velfarn-
aðar liinni uppvaxaudi kynslóð.
Faðir lians var víðkunnur guð-
fræðingur, prófessor við Oxford
liáskóla. Hann lagði og stund á
náttúrufræði. En móðir hans var
dóttir W. H. Smyths yfirflota-
foringja. Þau hjón eignuðust 10
börn, eina dóttur og 9 syni, og
var Robert þeirra yngstur.
egar Robert var fjögra ára
misti hann föður sinn, og'
stóð ekkjan uppi með lítil efni og
8 börn, það elsta á 14. ári. En
hún var miklum mannkostum bú-
in, og fengu börn hennar hið besta
uppeldi. Var heimilislífið hið ást-
úðlegasta á heimili hennar. Eldri
börnin hjálpuðu jafnan yngri
systkinunum og vöndust þau öll í
uppvextinum á hlýðni og fórn-
fýsi.
Þegar Róbert litla óx fiskur um
hrygg vann hann ötullega að því
að hjálpa móður sinrii, eins og
hin systkini hans. Hún iagði ekki
mikla áherslu á að troða í börn
sín skólalærdómi, en hjelt þeiin
sama sið, og faðir þeirra hafði
haft, að leiða þau út í náttúruna
og sýna þeim og skýra fyrir þeim
það sem þar bar fyrir auga.
• Tólf ára gamall fór hann í
barnaskóla og fekk þar þann vitn-
isburð, að hann liefði verið skól-
anum til fyrirmyndar. En 19 ára
útskrifaðist hann úr Carterhouse
•
heimavistarskóla, í apríl 1876. Auk
lærdómsins, er ekki var sjerlega
mikill, átti hann það sem meira
var, liraustan líkama, þjálfaðan
Sir Robert Baden-Powell verður áttræður á morgun.