Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1937, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1937, Síða 1
orgimMaðsitts 11. tölublaC. Sunnudaginn 21. mars 1937. XII. árgangur. Xtafuluarprentsmiðja h.f. Amundsen við Suðurheimskautið Nú fórum við Hanssen að bisa við sitthvað, sem þurfti að kom- ast í lag, og svo þurftum við altaf að vera viðbúnir að halda uppi athugununum, sem við unn- um nú að í fjelagi, til þess að fá eins nákvæma staðarákvörðun og gerlegt var. Fyrsta athugunin færði okkur heim sanninn um, hve þetta var nauðsynlegt. Það kom sem sje í ljós, að af þessari ágætu athugun — í stað þess að gefa meiri hæð en miðnætur-athugunin — kom út minni hæð og þannig hlaut okkur að verða ljóst að við höfðum komist út af hádegis- baugnum, sem við hjeldum að við hefðum farið eftir. Nú var fyrst og fremst undir því komið að geta ákvarðað norð- ur-suðurlínu okkar og breiddarstig svo við síðan gætum ákvarðað staðinn, sem við vorum á. Til allr- ar blessunar leit út fyrir að veðrið myndi haldast óbreytt. Á hverjum klukkutíma, frá því kl. 6 um morg uninn þangað til kl. 7 um kvöldið, mældum við sólarhæðina og með þessum athugunum fundum við nokkurnveginn áreiðanlega breidd arstig okkar og stefnu hádegis- baugsins. Kl. 9 um morguninn fórum við að búast við fjelögum okkar hvað úr hverju. Eftir okkar útreikn- ingi áttu þeir að hafa lokið ferð- inni — þessum 40 kílómetrum. — En það var þó ekki fyr en kl. 10 að Hanssen kom auga á fyrsta svarta dílinn úti í sjóndeildar- liringnum, og svo leið ekki á löngu áður en annað og þriðji díllinn kom í ljós. Okk.ur ljetti fyrir brjósti hvert sinn sem við komum auga á einhvern þeirra. Þeir komu nálega allir samtímis aftur til tjaldsins. Við skýrðum þeim nú frá bráðabirgða niðurstöðum at- hugana okkar. Það leit út fyrir að tjaldstaðurjnn okkar væri ca. 89° 54'. 30" s.br. og að sjálft heimskautið væri orðið „innan girðingar“. Við hefðum nú vei getað látið okkur lynda þessi úrslit, en af því veðrið var svo gott og bjart, og útlit var á að það hjeldist, og af því að matarforðinn reyndist við nána eftirgrenslan ríkulegur, ákváðum við að ganga þessa 10 kílómetra, sem eftir voru og taka staðarákvörðun eins nærri sjálfu heimskautinu og frekast væri unt. En meðan við vorum að þinga um þetta gengu ferðalangarnir okkar til hvílu — ekki eiginlega vegna þess að þeir væru þreyttir, heldur af því að þetta átti nú einu sinni svo að vera. — En við Hanssen hjeldum áfram athugununum. Seinnipart dagsins fórum við aftur nákvæmlega yfir matarforð- ann og snerum okkur svo að því að ræða um framtíðina. Niður- staðan varð sú að við hefðum nóg- an mat fyrir okkur sjálfa og hund- ana í 18 daga. Hundunum 16, sem eftir lifðu, skift í tvo hópa, 8 í Roald Amundsen. hvorn, og dótinu, sem var á sleða Bjaalands, var skift á sleða Hans- sens og Wistings. Sleðinn sem skil- inn var eftir, var reistur upp á endann í snjónum og var fyrir- taks mið. Vegmælirinn, sem var skrúfaður á sleðann, var látinn eiga sig. Við höfðum tvo aðra og það var alveg nóg handa okkur á heimleiðinni. Allir vegmælarnir höfðu revnst mjög nákvæmir. Tveir tómir matarkassar voru líka skildir eftir. Jeg skrifaði á kassa- fjöl með blýanti frásögn um, að tjald okkar „Holheim“ væri í norð-vestur y^ vestur eftir kompás 5y2 mílu (10 kílómetra) frá sleð- anum. Eftir að hafa gengið frá öllu þessu á einum og sama degi lögðumst við ánægðir til hvílu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.